Feykir - 08.03.2006, Síða 4
4 Feykir 10/2006
Gestir á samkomu til styrktar krabbameinssjúkum börnum sem nemendur í áfanganum frumkvöðlafræði i Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra stóðu fyrir nú í febrúar. Mynd: PIB
Brynjar Páll Rögnvaldsson skrífar________
Margt að gerast
í Fjölbraut
Fjölbrautaskóli er einn af áfangastöðum lífsins, sem gerir manni kleift að undirbúa sig
fyrir vinnumarkaðinn og lífið almennt. Honum fylgir mikið nám og mikill metnaður en
skólanum fylgir einnig mikið félagslíf. Það er akkúrat félagslífið sem er mjög áberandi
þessa dagana í Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra. Nokkrir atburðir hafa verið haldnir
upp í skólanum síðustu vikur og fjölmargir atburðir eru framundan.
Söngkeppni
Nemendafélags FNV
Söngkeppnin í Fjölbrauta-
skólanum var haldin 1. mars
síðastliðinn. Söngkeppnin er
árlegur liður og sigurvegarinn í
keppninni fer sem fulltrúi
skólans í lokakeppnina sem er
haldin í Reykjavík þetta árið,
en í íyrra var hún haldin á
Akureyri. Það voru 10 atriði
sem tóku þátt að þessu sinni og
þótti kvöldið takast alveg
ótrúlega vel, miðað við að flest
lögin voru skráð inn seint.
Verðlaun voru veitt fyrir
frumlegasta atriðið og fyrstu
þrjú sætin.
Fyrir frumlegasta atriðið
fékk Jóel Þór verðlaunin, en
hann tróð upp á snilldar hátt
nteð laginu „Dúndrandi
standpína“ og var það mál
manna að þarna hafi
skemmtilegasta atriðið farið
fram. 3.sætið féll í skaut Ingva
Hrannar Ómarssonar, en hann
söng lagið „M iddle of nowhere"
með hljómsveitinni Hot Hot
Heat. í öðru sæti var Eurovision
lag Bosníu „Call me“ sem var
þýtt yfir á íslensku sem „Til í
knallið?“. Það voru þær Dana
Ýr Antonsdóttir, Guðrún
Þórdís Halldórsdóttir og
Hrund Jóhannsdóttir sem
sungu það. Loks var komið að
l.sætinu og var það lagið
„Hann og Hún“ sem bar sigur
Fyrirjól settu nemendur upp frumsaminn söngleik, Uppgjörið, og tókst vel til. Mynd.AG
Stúdentsefni bökuðu fyrir samkomu í Bóknámshúsinu ínóvember. Mynd: OAB
úr býtum. Þetta rapplag, með
þjóðlegu ívafi, samdi Brynjar
Páll Rögnvaldsson og Helgi
Sæmundur Guðmundsson,
sem rappaði, samdi textann.
Ragnheiður Silja Jónsdóttir
spilaði undir á fiðlu. Þetta
verður glæsilegur fulltrúi
skólans í aðalkeppninni sem
fer fram þann 3. apríl nk.
Opnir Dagar í FNV
Opnir dagar hafa verið árlegur
viðburður í fjölmörg ár. Opnu
dagarnir ganga út á það að
krakkarnir í skólanum taka
þátt í alls konar námskeiðum
og uppátækjum í nokkra daga,
og er skólinn svo opinn
almenningi. Þetta vekur alltaf
upp samhug nemanda og
rnikla stemningu, þegar þessir
dagar eru. Það er ýmislegt í
boði, eins og til dæmis þá er
hægt að sækja matreiðslu-
námskeið hjá Ástu Búa,
tölvuleikjamót í Tekken tölvu-
leiknum vinsæla í Ifiaystation,
alþjóðlegt blótsyrðarmót sem
verður í umsjón Þorsteins
Hjaltasonar, kvikmyndagerð,
dansnámskeið og margt fleira.
Opnu dagarnir standa yfir
frá 8.-10. rnars og líkur þeim
með Árshátíð nemendafélags-
ins sem verður haldin 11. mars.
Árshátíðin er haldin í íþrótta-
liúsinu og þar verður matur frá
Kaffi Krók, ýrnis skemmtiatriði
og ntun hljómsveitin Á móti
sól halda uppi dansleik alla
nóttina, ásamt skagfirsku
hljómsveitinni Ú.F.F.
og verður farið til Tenerife á
Kanaríeyjum. Þar verða þau í
góðu yfirlæti á finu hóteli og
slaka á eftir prófstress og
útskrift. En til þess að borga
fyrir utanlandsferð, þá þarf
náttúrulega ýmis konar
fjáraflanir. Þeir sjö nemendur
sem ætla að fara í þessa ferð,
héldu til dæmis kökubasar í
anddyri Kaupfélags Skag-
firðinga með góðum árangri.
Þar voru seldar alls konar
dýrindis tertur og einnig voru
seldir geisladiskar og „Blátt
Áfram“ armbönd, sem eru
armbönd til styrktar samtök-
um gegn kynferðisofbeldi á
börnum.
Krakkarnir munu á næstu
vikum standa í ýmis konar
fjáröflunum og munu til dæm-
is halda páskabingó upp í
Bóknámshúsi í byrjun apríl og
svo eiga þau eftir að halda fleiri
kökubasara, þar sem sá síðasti
tókst líka svona vel upp. Einnig
er hið árlega maraþon, en
margir muna eftir maraþoninu
í fyrra þar sem nemendur ýttu
heila baðkari fullu af skyri til
Akureyrar. Munu nemendurn-
ir í ár fara í það á næstu vikum
að auglýsa ntaraþonið og leita
að styrkjum.
Það er því margt skemmtilegt
sem hefur verið að gerast í
skólanum undanfarnar vikur
og eflaust verður nóg að gerast
á næstunni.
Brynjar Páll Rögnvaldsson.
Útskriftarnemendur
Útskriftarnemendur eru búnir
að panta sér ferð í útskriftarferð
Helgi Sæmundur rappadi af miklum móð til sigurs i Söngkeppni NFNV.