Feykir


Feykir - 08.03.2006, Page 7

Feykir - 08.03.2006, Page 7
10/2006 Feykir 7 Guðmundur Valtýsson skrifar_ Vísnaþáttur 425 Heilir og sælir lesendur góðir. Þakka góðar upplýsingar vegna íyrirspurnar í síðasta þætti um vísu eftir Gísla í Mikley. Er nú ljóst að Grímur sá er fjallað var um þar er Þorgrímur Stefánsson er lengi dvaldi á Tyrfmgsstöðum á Kjálka. Starfaði hann ýmis- legt utan heimilis, meðal annars við vegavinnu. Gaman er að byrja þáttinn að þessu sinni með nokkrum glettum eftir Gísla. Eitt sinn í vegavinnunni orti han svo um Grím. Hanrt segist œtla að safna auð og sést því aldrei kenndur. Þarna gengur Grimur tneð Rauð, greitt og báðuin stendur. Grímur fokreiddist og skammaði Gísla. Sagði þá Gísli að strákaf- jandarnir hefðu breytt vísunni, en rétt væri hún svona, enda vissu allir þvílíkur snillingur hann væri að ná hestum. Hann segist ei œtla að safna auð ogséstþví tíðum kenndur. Þarna gengur Grítnur að Rauð, greitt og klárintt stendur. Einhverju sinni er vegamanna- flokkurinn dvaldi um sumartíma í tjöldum hjá Framnesi, átti þar heima falleg stúlka Sigrún að nafni, sem kölluð var Rúna. Eitt sinn er Gísli hafði rætt ítarlega við Grím um þesssa stúlku orti hann svo. Þorgrítnur elskar tneyjar tnest af mönnum hér í sveit. Hann segir að Rúna séþó best og sœtnilega heit. En hjá henni gallar finnast þó í hljóði sagði hann mér að hún vœri allt of miðjumjó og nterði undan sér. Annað sinn hafði flokkurinn tjaldað hjá Miklhóli í Viðvíkur- sveit. Var eitt kvöld ákveðið að lyfta sér upp og fara í heimsókn að Sleytustöðum. Voru þar meðal annars heimilisfólks þrjár heima- sætur. Urðu vegamenn að vaða bæði Hjaltadalsá og Kolku. Dag- inn eftir var Grímur lasinn og sagðist hafa forkælst í ferðinni. Um það böl orti Gísli svo. Að Sleytustöðum Grímurgekk ogglatt þar lék að sprundum inni. Uns sting í andlega fótinnfékk og forskjöplaðist afbrúkttninni. Gaman er að fá hér í viðbót eina vísu sem ort er um Grím. Er hún eftir Hjörleif Kristinnsson á Gils- bakka. Voru tildrög hennar þau að hann sá Grím koma ríðandi utan Kjálkaveginn á gráum hesti er hann átti. Þorgríntur á þe)'sireið þrœðir Kjálkaveginn. Vantar bara beinni leið og brennivín áfleyginn. Er hér var komið sögu í srníði þessa þáttar, datt mér í hug að hringja í vísnafróða konu í Skagafirði. Tjáði hún mér að sitt álit væri að framangreindur kvið- lingur “Þorgrímur elskar meyjar mest...” væri ekki eftir Gísla held- ur bróðir Hjörleifs á Gilsbakka, Þorbjörn Kristinnsson. Lét hún mér í té eftirfarandi vísur eftir Þorbjörn sem ortar eru um Grím á þessum vegavinnuárum. Mœta vel ég Þorgrím þekki það er lagá honum enn. Hér í tjöldum eru ekki áleitnari kvennamenn. Gleði sólin sumar bjarta sigri harttta þítta enn. Öska þér af öllu hjarta allra heilla vega metm. Bið lesendur, þá helst Skagfirð- inga, að gefa mér upplýsingar um hvað rétt er og jafnframt fleiri vísur sem tengjast Grími eða veg- amannaflokknum. Einhverju sinni kom það fram í fréttum að á alþingi hefðu fimm stjórnarliðar setið hjá við at- kvæðagreiðslu á mikilsverðri til- lögu stjórnarinnar. Davíð Odds- son lét þá hafa eftir sér að þarna hefði átt sér stað slys sem ekki myndi endurtaka sig þegar búið væri að tala betur við þessa pilta. Um þær skýringar orti Sigfús Þor- steinsson á Hauganesi svo. Nú tnargir að Davtð gera gys og gloppóttum trúnaði manna. En alltafgeta nú orðið slys eins og dœntin sanna. Valt er að treysta á viðsjált lið sem vill ekki boðum hlíða, En á því getur víst orðið bið að allir lœri að skríða. Þegar Freyvangsleikhúsið sýndi fýrir nokkru söngleikinni Jesú Kristur súperstjarna gekk illa að finna aðalleikara. Fór svo að úr rættist og hljóðaði þá fyrirsögn í dagblaði á þessa leið, “jesú Kris- tur fannst í EyjafJarðarsveif’.Af því tilefni orti Sigfús. Nú eflaust hefja aðir leit svo eignist himnavist, fyrst að Eyja-fjarðarsveit fann sinn Jesú Krist. Bið lesendur að hygla þættinum með efni og upplýsingar eftir því sem þeir treysta sér til. Hef heyrt að loka vísa þáttarins muni vera eftir Halldór Kristjánsson í Heynesi, er ekki viss um að hún sé rétt með farin. Efbœta vilt mannlíf í bœ eða sveit svo böli og þraut megi linna. Þá byrjaðu fyrst á að raska þinn reit en rífðu ekki upp gróðuritm hitma. Verið þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi. S: 452-7154. Lamont gerir tvö stig. Kappinn hefur staðið sig með vel siðan hann kom til liðs við Stólana. Mynd: PIB Valur - Tindastóll 80-89 Stólarnir aftur í efstu deild Tindastólsmenn spiluðu við Val í Reykjavík á sunnudaginn í 16. umferð 1. deildar íslandsmótsins í körfubolta. Ljóst var að með sigri í leiknum tryggðu Stólarnir sér sigurinn í 1. deild og þar með sæti í Úrvalsdeildinni í haust. Auðvitað höfðu strákarnir betur gegn Val og sigruðu 80-89. Glæsilegt! Valsmenn byrjuðu reynd- forystuna framan af en ar betur í leiknum og höfðu Stólarnir kláruðu fýrri ísmót Neista á Svínavatni___________________ Nær 90 keppendur tóku þátt a ismótinu Það voru hátt í 90 kepp- endurá ísmóti Neista.sem haldið var á Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu síðastliðinn sunnudag. Keppendur komu víða að og skemmtu sér vel, enda afbragðs veður og fsinn traustur. Örlítil snjóföl var á vatninu, sem gerði brautina enn betri. Ræddu menn um að þarna væru aðstæður svo góðar að ástæða væri að halda þarna árlegt stórmót. Helstu úrslit urðu þessi: Tölt 1. flokkur 7 Bjarni Jónasson Narfastöðum á Kommu 8 v 2 Ólafur Magnússon Sveins- stöðum á Gáska 8. v brúnum I. flokkur. Mynd: Húni.is 3 Tryggvi Björnsson Blönduósi á Stínólu 8. v. brúnni Tölt2. flokkur 1 Harold Vandermootele á Fána 9 v. rauðstjörnóttum 2 Guðný Helga Björnsdóttir á Brynjar/ 20 v. brúnstjörnóttur 3 Sigrún Þórðardóttir á Þóru 12 vjörp Ungmenni 1 Helga Una Björnsdóttir Orða 9v. jörp 2 Jónina Lilja Pálmadóttir OddkellBv. brúnn 3 Sylvía Rún Rúnarsdóttir Hrókur lOv. rauðglófextur hálfleikinn vel og jafnt var í hálfleik 46-46.1 síðari hálfleik reyndust okkar menn sterkari og juku muninn jafnt og þétt og sigruðu sem fýrr segir 80- 89. Þau lið sem lenda í sætum 2 til 5 munu leika til úrslita urn hitt lausa sætið í úrvalsdeildinni. Nokkuð ljóst er að það verða Valur, Þór, Þorlákshöfn, FSu og Breiða- blik. Stjarnan á reyndar enn tölffæðilega ntöguleika á sæti í úrslitakeppninni. ÍS - Tindastóll 74-96 í gærkvöldi spilaði lið Tindastól næstsíðasta leik sinn á tímabilinu en leikið var við ÍS í Reykjavík. Stólarnir náðu strax góðu forskoti og voruyfir í hálfleik, 26-48. Allir leikmenn Stólanna tóku þátt í leiknum og sýndu góða takta og aðeins einum leikmanni mistókst aðskora í leiknum. Lokatölur urðu 74-96. Svavar var stigahæstur nreð 22 stig, Antwan Lamont gerði 15, Kiddi Friðriks 13, Óli Barðdal og ísak Einars 12 hvor en aðrir minna. smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar biríingar á feykir@krokur.is Til sölu Toyota Hilux2.4 bensín, árg. 1992, upphækkaður, 38" dekk, loftdæla o.fl. Ekinn 160þúsundkm. Góður bill. Verð700þúsund. Upplýsingar í síma 452 2945. Til leigu Lítil íbúð til leigu niðri íbæ. Upplýsingar í síma 453 5812 og 8479193 Benx til sölu Til sölu Mercedes Benz sendibill árgerð 1998. Burðargeta 2320 kg. Igóðustandi. Upplýsingar gefur Bjarni Haralds- sonísíma 453 5124. Til sölu Tilsölu bamavagn og vagga notað af tveimur börnum. Upplýsingar i sima 866 9906 Bingó Stórbingó verðurí Skagabúð, A-Hún. sunnudaginn 12. mars kl. 14:00. Fjöldi glæsilegra vinninga. Vöfflukaffi selt í hléi. Allir velkomnir. Kvenfélagið Hekla. IAthugið að við tökum ekki kort)

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.