Feykir - 08.03.2006, Síða 8
Óháð fréttablað á
Norðurlandi vestra
8. mars 2006 :: 10. tölublað :: 26. árgangur
SKAGFIRÐINGABRAUT 29 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI453 6622
Óvenju mikill hvalreki á Garðssandi í Hegranesi
Þrír hvalir og einn
útselur
Búið að draga dýrin saman og eins og sjá má er tófan farin að gana í.
Óvenju marga hvali hefur rekið á Garðssandsfjöru við
Hegranes í Skagafirði að undanförnu. Vitað er um að
minnsta kosti þrjá hvali og einn útsel sem fundins hafa
á fjörunni.
Hvalirnir þrír sem rekið
hefur á Garðssandi við
Hegranes í Skagafirði, eru
háhyrningur og tvær hnýsur.
Þeir fundust fyrir nokkru
og hafa ábúendur í Garði og
Keflavík m.a. skoðað gripina
f)TÍr nokkru.
Allmargar vikur eru síðan
fýrsta hvalinn rak og eru tófur
og vargur farnin að gana í
hræin. Því var gripið til þess
ráðs að færa þau saman í þeim
tilgangi að að athuga hvort
unnt væri að liggja fyrir rebba
við hræin. Óvenju mikið hefur
Háhyrningurinn strandaður 22. febrúar.
sést af tófu í Hegranesinu
undanfarið að sögn bænda.
Rétt er að brýna fyTÍr
þeim sem rekast á hvalshræ,
að tilkynna það, eins og
reglur bjóða, til viðkonrandi
heilbrigðiseftirlits og til
Hafrannsóknarstofnunar.
Rökkurkórinn í Skagafirði_____
Tónleikar á laugardag
I frétt af vetrarstarfi Rökk-
urkórsins í Skagafirði í
síðasta Feyki láðist að
dagsetja tónleika kórsins
er verða í Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 11. mars.
Þeir hefjast þeir kl: 16:00 en
um klukkan 21:00 að kveldi
sama dags verða tónleikar í
Sólgarðaskóla í Fljótum.
Þá láðist að geta effirnafns
annars af gestaeinsöngvurum
á vortónleikum kórsins en þeir
eru Alexandra Chernyshova,
tónlistarkona á Hofsósi og Ari
Sigurðsson, frá Holtsmúla.
Nýtt veiðihús við Blöndu
Eitt qlæsilegasta
veiðmús landsins
Harpa Hlín Þórðardóttir framkvæmdastjóri sölusviðs hjá
Lax-á, sem er leigutaki Blöndu, segjir að nýja veiðihúsði
við Blöndu í Langadal verður eitt glæsilegasta veiðihús
landsins, en það verður opnað í byrjun veiðitíma í sumar.
Landeigendur við Blöndu
réðust í það stórverkefni í
vetur að byggja stórglæsilegt
700 fm veiðihús í Langadal.
Húsið mun verða hið glæsile-
gasta og mun nú loksins fyrir
endan á gisti vandamálum
við stórlaxa ánna.
Það mun vera skyldukaup
á gistingu fyrir veiðileyfishafa
á svæðum 1 og 2 í veiðihúsinu
frá opnun árinnar 5. júní til
30. júlí. Veiðifyrirkomulag
í Blöndu er örlítið breytt frá
sl. ári en nú verða svæði 1 og
2 einungis seld saman frá 6.
til 30. júlí. En utan þess tíma
í sitthvoru lagi. Það verður
veitt á 4 stangir á svæði 1, 4 á
svæði 2 og 2 á svæði 3
Veiðihúsið er á áætlun og
orðið fokhellt en áætlaður
skilatími er 20 maí. Ekkert
er til sparað í þessu vandaða
veiðihúsi, 12 tveggjamanna
gistiherbergi, stór stofa og
rúmgóður matsalur, laxa
geymsla, þurrk herbergi,
fullkomið eldhús , allt þetta
er rammað inn með stórri
verönd þar sem eru heitir
pottar og sauna.
Auglýsing______________
Adalfundur Feykis
Aðalfundur Feykis ehf. ver-
ður haldinn föstudaginn
30. mars næstkomandi.
Fundurinn hefst klukk-
an fimm síðdegis. Hann
verður í Bóknámshúsi
Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra á Sauðárkróki.
Teknir verða fyrir árs-
reikningar rekstraráranna
2004 og 2005. Dagskrá verður
nánar auglýst síðar.