Feykir - 16.08.2006, Page 2
2 Feykir 29/2006
Fjör á Skagaströnd 18. -20. ágúst
Kántrýdagar
Undirbúningur fyrir fjöl-
skylduhátíðina "Kántrý-
dagar á Skagaströnd"
ervel á veg kominn, en
verður hún haldin 18. - 20.
ágúst.
Að sögn Magnúsar B.
Jónssonar sveitarstjóra á
Skagaströnd er stefnt að því að
skapa notalega og skemmti-
lega íjölskyldustemningu.
Kántrýdagar hefjast á
föstudagskvöldið en þá
verður gesturn og gangandi
boðið í sjávarréttasúpu í
tjaldi á hátíðarsvæðinu.
Súpan verður að hætti
Steindórs meistarakokks.
Dagskráin verður ijölbreytt
og skemmtileg en vonast er
eftir góðri mætingu.
Laugardaginn 19. ágúst
verður dagskrá fyrir yngri
kynslóðina sem hefst kl.
11 með dorgveiðikeppni.
Um miðjan daginn verður
fjölskylduskemmtun á palli
þar sem boðið verður upp á
ýrnis skemmtiatriði undir
stjórn Helgu Brögu.
Um kvöldið verður síðan
dagskrá á palii þar sem ýmsir
góðir skemmtikraftar munu
korna fram. Bæði á föstudags-
og laugardagskvöldið verða
dansleikir og kántrýstemning
í Kántrýbæ.
Leiktæki fyrir börn verða á
hátíðarsvæðinu og verða sett
upp á föstudag kl 18 og eftir
hádegi á laugardag og fram
eftir kvöldi.
Hvammstangi
Hestamannamót
Hestamannamót Húnvetn-
inga og Dalamanna verður
haldið næstkomandi laug-
ardag á Hvammstanga.
Keppt verður í A- og B-
flokki, flokki ungmenna og
unglinga og 100 og 150 m.
skeiði. Einnig verður grillað og
slegið á létta strengi.
Mótið hefst á laugardags-
morgun klukkan hálf tíu.
Frestur til að skrá sig er til
klukkantíufimmtudagskvöldið
17. ágúst í síma 891-9431.
Skráningargjöld eru 1.500
krónur á fyrstu skráningu og
1.000 krónur á hverja eftir
það.
Leiðari
Systkynin
frá Herríðarhóli
Guðsþjónustan íÁbœjarkirkju í Austurdal hefur lengi
veriðfastur liður á dagskrá verslunarmannahelgarinnar í
Skagafirði.
Að lokinni messu er kirkjukaffi á Merkigili. Systkyni Helga
heitins Jónssonar frá Herríðarhóli í Rangárþingi hafafrá
1997 boðið á hverju ári 300 gestum til veislu.
Þau heiðra þannig minningu bróður síns með einstökum og
eftirminnilegum hœtti.
Ámi Gunnarsson
Öháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgetandi:
Feykirhf
Skrifstofa:
Aðalgötu2i,
Sauðárkróki
Blaðstjórn:
Arni Gunnarsson, Áskell
Heiðar Ásgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
ÓlafurSigmarssonog
Páll Dagbjansson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Árni Gunnarsson
arnig@krokur.is
Sími 455 7100
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
Sandra Dögg Þorsteinsd.
feykir@krokur.is
Simi 455 7175
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Askriftarverð:
210 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
250 krónur með vsk.
Setning og umbrot:
Nýprent ehf.
Prentun:
Nýprent ehf.
Skagafjörður - Los Angeles - Skagafjörður
Rokksfjörmilvfið skoðað af
Skagfirðingum
Magni, Marinó Bjarni, Eyrún Huld, Vala Bára og Heiðari góðum gir.
Áskell Heiðar Ásgeirsson, sviðsstjóri hjá Sveitarfélaginu
Skagafirði og kona hans, Vala Bára Valsdóttir leiks-
kólakennari vörðu Verslunarmannahelginni á frekar
óvenjulegum stað, í Hollywood, Los Angeles.
Flestir sem sækja drauma-
verksmiðjuna í Hollywood
heim eru í leit að frægð og
frama en því var þó ekki
þannig farið með Heiðar og
Völu, eða hvað? Heiðar
verður fýrst fyrir svörum:
„Nei, við vorum ekki að reyna
að “meika'ða” eins og sagt er,
við vorum hinsvegar að kíkja á
“meikdrauma” litla bróður
míns, Magna sem þarna dvelur
um þessar mundir við tökur á
Rockstar sjónvarpsþættinum
eins og alþjóð veit.”
- Hvernig kom það til að þið
kíktuð í heimsókn til Magna,
þetta er nú ekki alveg næsti
bær?
„Þetta er vissulega mikið
ferðalag, við vorum t.d. um 20
Vala Bára mátar sig við Meryl Streep.
tíma á ferðalagi frá Los Angeles
til Sauðárkróks! Þetta kom
þannig til að Eyrún Huld,
sambýliskona Magna og
Marinó Bjarni sonur þeirra
fengu boð ffá Rockstar
þættinum á mánudagskvöldi
(þann 31 .júlí) um að bóka ætti
flug fýrir þau tveimur
sólarhringum síðar ff á Keflavík
til Boston, þaðan til Las Vegas
og síðan þaðan til Los Angeles.
Þar sem Marinó er nú bara 10
mánaða og Eyrún þarna á leið
í sína fýrstu ferð yfir At-
lantshafið þá treysti hún sér
ekki til að fara ein með strákinn
og úr varð að við tókum að
okkur að fylgja henni, en það
þótt vel við hæfi að hún hefði
með sér landffæðing og
leikskólakennara! Icelandair
styrkti okkur hvað varðar
flugið og reyndist okkur rnjög
vel, við hjónin greiddum
hinsvegar sjálf okkar hótel og
uppihald.”
- Og hvernig kom svo
“draumaverksmiðjan”
Hollywood ykkur fýrir
sjónir?
„Við stoppuðum auðvitað
bara þarna í nokkra daga en
okkur fannst þetta sérkennilegt
samfélag og óamerískt og það
er sömuleiðis upplifun Magna
af Los Angeles. Þarna gengur
auðvitað allt út á að “meika'ða”
og þeir sem við hittum t.d. í
þjónustu við ferðamenn á
svæðinu virðast hafa áhuga á
fáu öðru en fræga fólkinu og
þeirra lifnaði. ViðValatókum
t.d. tveggja tíma skoðunarferð