Feykir - 16.08.2006, Side 3
29/2006 Feykir 3
um Hollywood og nágrenni
sem gekk eingöngu út á það
að sýna okkur hvar þessi
stjarnan bjó og hvar hin
stjarnandó. Núvitum viðt.d.
hvar Dr. Phil býr, ef einhver
hérna fýrir norðan kynni að
þurfa á aðstoð hans að halda!
Hápunktur ferðarinnar fyrir
Völu var reyndar að rekast á
“Dr. Jack” úr Lost-þáttunum
á hótelganginum einn morg-
uninn!”
- Fenguð þið að hitta
þátttakendur í
kapphlaupinu um
söngvarastöðuna í
Supernova?
Okkur var boðið að vera við
upptöku á þættinum sem
sýndur var sl. þriðjudag (þ.e.
8.ágúst) þar sem þau sungu
sitt lagið hvert. Þættirnir eru
teknir upp á sunnudags-
eftirmiðdegi og það var mikið
ævintýri og hápunktur
ferðarinnar að vera þar. Það
er auðvitað mikið umstang og
margir starfsmenn við eina
svona upptöku og þetta
“rann” allt mjög vel, “sándið”
var svakalegt og sviðsmyndin
og Ijósin eins og þetta verður
flottast. Þó var þetta líka
einhvern veginn allt rnikið
smærra en það sýnist vera í
sjónvarpinu og það sama má
segja um suma úr hópi
keppenda og dómara. T.d. er
Dave Navarro agnarsmár og
sömuleiðis þær stöllur Dilana
og Jill, sem nú hefur reyndar
fengið reisupassann. Þeir
keppendur sem við hittum
þarna, t.d. Storm, Dilana og
aðrir sem eru i kringum þetta
voru öll mjög viðkunnaleg,
enda ber Magni þessu fólki
öllu vel söguna. Við hittum
líka á frábæran þátt, nánast
allir voru að gera sitt besta.
- Hver haldið þið svo að
standi uppi sem sigurvegari
Rockstar og þar með
söngvari Supernova.
Nú verður Vala Bára fyrir
svörum
„Ég held að þau Magni,
Dilana, Storm og Lucas verði í
fjórum toppsætunum. Mér
finnst Dilana mjög skemmtileg
og ég held líka upp á Storm en
ég er eldd viss um að ég myndi
nenna að hlusta á heila
tónleika með Lukasi. Hvað
Magna varðar væri hann vís
með að vinna, hann er
fjölhæfur söngvari, þeJddr
alskonar rolck- og popptónlist
auk þess sem hann er mjög
þægilegur í samstarfi og
umgengni.”
- Mikið hefur verið rætt og
ritað um Magna síðustu vikur
og mánuði og flestir virðast
hrífast af framgöngu hans í
Rockstar. Eins hefur nokkuð
borið á því að það komi fólki
á óvart hversu mikill rokkari
drengurinn er og einnig
hversu góður söngvari hann
er, hvað segir stóri bróðir
hans um þetta?
„Jú, það er auðvelt fyrir mig að
segja núna, ég vissi þetta alltaf,
en ég hef auðvitað vitað það
lengi að hann hefur fallega og
sterka söngrödd og hann hefur
markvisst bætt hana og sýna
söngtælcni síðustu ár. Fyrir
mér er hann fyrst og ffemst
rolckari, ég kenndi honum að
hlusta á U2, síðar tók hann
mildu ástfóstri við Pearl Jam
og Metalica þar sem Jason
Newsted var innanborðs.
Hann var meira að segja með
sítt hár öll sín unglingsár! Ég
hef líka fýlgt hljómsveitinni
hans, Á móti sól um víðan
völl, hérlendis og erlendis og
það geta þeir staðfest sem það
hafa gert að þar hefur hann oft
sungið kröftugt rolck þó að
plöturnar þeirra innihaldi að
mestu léttara popp. Þetta
þekkja t.d. þeir sem hafa sótt
böll með þeim í Miðgarði!”
- Hvað gerist svo ef hann
vinnur?
„Þá förum við a.m.k. á
áramótaball í Las Vegas! - Nei,
þá er hann samningsbundinn
þeim að ég held í ár, það
verður nú plata og heimsreisa
þar sem hún verður kynnt. En
það bíður betri tíma að spá í
það!”
vV
::: Vélasýning ::: Húsdýragaröur ::: Fræðsluerindi::: íslenskt handverk :::
Smalahundakeppni::: Hrútasýning ::: Kálfateyming ::: Kynbótasýning hrossa
::: Fyrirtæki kynna vörur sínar og þjónustu :::
:: Frábært tækifæri fyrir bændur að kynna sér það nýjasta sem í boði er
::: Skemmtun fyrir alla fjölskylduna :::
Opnunartími:
Föstudagurinn 18. ágúst
kl. 13-19 Landbúnaðarsýning
kl. 12 Yfirlitssýning kynbótahrossa
Laugardagurinn 19. ágúst
kl. 10-19 Landbúnaðarsýning
Sunnudagurinn 20. ágúst
kl. 12-18 Landbúnaðarsýning
Aðgangseyrir kr. 1.000 • Frítt fyrir 12 ára og yngri
www.horse.is/landbunadarsyning