Feykir - 16.08.2006, Síða 5
29/2006 Feykir 5
fylgdu þeir honum að
Auðunarstofu. Þeir voru í
sparibúningi með hvíta hanska
og sýndu þá virðingu sem
þessum farmi bar. Hólamenn
báru síðan kassana í hús. Tár
hrundu af hvörmum sumra
og tilfmningin að nú væru
bækurnar loksins komnar
heim var sterk. Þetta fyllir svo
vel inní myndina þegar
prenthúsið hefur verið grafið
upp og menn eru smám
saman að gera sér grein fyrir
gerð þess.
Sýning hefur verið sett upp
í tilefni af þessari frábæru gjöf
og verður hún opin í
Auðunarstofu út þessa viku
frá kl. 14-18. Hallfríður
Ólafsdóttir, flautuleikari
rammaði dagskrána inn með
fallegum flautuleik og
fánaberar voru tveir knapar úr
kennaraliði skólans á fallegum
hestum og settu þeir auðvitað
sérstakan blæ á fallega athöfn.
Hátíðarguðsþjónusta var í
Hóladómkirkju þar sem Jón
Aðalsteinn Baldvinsson,
vígslubiskup predikaði og
altarisþjónusta önnuðust Karl
Sigurbjörnsson biskup
íslands, Dalla Þórðardóttir
prófastur og Gunnar Jóhann-
esson sóknarprestur. Auk
þeirra koinu að útdeilingu
Sigurður Sigurðarson vígslu-
biskup og David Hamid
biskup í ensku biskupa-
kirkjunni. Kór Hóladóm-
kirkju og Kammerkór Skaga-
fjarðar sungu undir stjórn
Jóhanns Bjarnasonar og
Jóhönnu Marínar Óskars-
dóttur, en Jóhann var jafn-
framt organisti en Sveinn
Sigurbjörnsson lék á trompet.
Ritingalestra lásu Skúli
Skúlason rektor Hólaskóla og
Björg Baldursdóttir formaður
sóknarnefndar. Guðsþjón-
ustan var hátíðleg og falleg, en
eins og gjarnan vill verða á
svona hátíðum þá kornust
færri inn í kirkju en vildu.
Ríkisútvarpið tók guðsþjón-
ustuna upp og geta menn
heyrt hana í útvarpinu næst-
komandi sunnudag 20. ágúst
kl. 11:00.
Að guðsþjónustunni lok-
inni bauð Hólanefnd í
hátíðarkaffi í Hólaskóla. Þar
var m.a. boðið uppá fallega
skreytta heljarstóra afmælis-
köku sem bökuð var af
kokkinum á veitingastaðnum
Undir Byrðunni.
Lokaathöfnin í dagskránni
var hátíðarsamkoman í
reiðhöllinni, þar sem Ólafur
Ragnar Grímsson forseti
fslands flutti ávarp, Þorsteinn
frá Hamri, skáld flutti
frumsamið ljóð og Hallfríður
Ólafdóttir lék á flautu. Kór
Hóladómkirkju og Kammer-
kór Skagafjarðar sungu á
samkomunni. Ávörp fluttu
einnig Christina Odenberg
biskup í Lundi í Svíþjóð, Skúli
Skúlason rektor Hólaskóla,
Alastair Summerlee rektor
Meistarakokkar Selsbursta heilgrilludu nauten þaðtók tæpan sólarhring.
Gestir á Hólahátíð gátu kynnt sér fornleifarannsóknir á Hólum.
Háskólans í Guelph í Kanada,
Guðni Ágústsson, landbún-
aðarráðherra, Herdís
Sæmundardóttir, formaður
skólanefndar Hólaskóla og
Karl Sigurbjörnsson biskup
fslands. Guðni afhenti
frumvarp um að Hólaskóli
verði gerður að formlegum
háskóla og gladdi það menn á
staðnum. Einnig kom
Þorsteinn Gunnarsson rektor
HA færandi hendi með
listaverk gert af Kristni
Hrafnssyni sem gefið er af
öllum háskólunum. Um
kvöldið bauð Karl Sigur-
björnsson biskup íslands til
kvöldverðarboðs þar sem
meðal annarra töluðu Sturla
Böðvarsson samgönguráð-
herra og fýrsti þingmaður
kjördæmisins, formaður
byggðaráðs Skagafjarðar
Gunnar Bragi Sveinsson og
Erik Norman Svendsen
biskup Kaupmannahafnar.
---------------------------------------------------------------------
V
vinimumAla
STOFNUN
Störf á Hvammstanga
Vinnumálastofnun mun 1. janúar nk. opna þjónustuskrifstofu á Hvammstanga.
Verkefni hennar er að annast umsýslu og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til for-
eldra sem réttinda njóta til greiðslu í fæðingarorlofi samkv. lögum nr. 95/2000
um fæðingar og foreldraorlof.
Af þessum ástæðum auglýsir Vinnumálastofnun laus til umsóknar eftirtalin átta
störf lögfræðings, sérfræðinga og sérhæfðra skrifstofumanna til að starfa á skrif-
stofunni:
• Starf lögfræðings sem jafnframt veitir skrifstofunni forstöðu. Verkefni hans
felast m.a. í túlkun laga og meðferð kærumála og samskipti við úrskurðar-
nefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála. Hann skipuleggur verklag starfsstöðv-
arinnar í samráði við yfirstjórn Vinnumálastofnunar og annast samskipti við
aðrar starfseiningar stofnunarinnar.
• Störf þriggja sérfræðinga með háskólamenntun. Verkefni þeirra er m.a. að
annast sérhæfð afgreiðslumál, sinna eftirliti og samantekt tölfræðiupplýs-
inga.
• Störf fjögurra sérhæfðra skrifstofumanna. Til þessara starfa er ekki gerð sér-
stök menntunarkrafa en þessum starfsmönnum er ætlað að sinna almennum
afgreiðslumálum, skjalavörslu, símþjónustu o.þ.h.
Allir starfsmenn munu fá þjálfun áður en skrifstofan verður opnuð og því er gert
ráð fyrir að þeir hefji störf á tímabilinu sept.-nóv. nk. Hluti þjálfunarinnar mun
fara fram í Reykjavík.
Starfsmannanna bíða spennandi verkefni við að byggja upp nýjan vinnustað og
að treysta þá þjónustu sem Vinnumálastofnun hefur verið falið að sinna.
Hjá stofnuninni starfa nú um 80 manns á 11 starfsstöðvum vítt og breitt um
landið. Þeim er öllum ætlað að tengjast hinni nýju starfsstöð og sinna upplýsing-
amiðlun og þjónustu fyrir hennar hönd.
Laun eru greidd samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Áhugasamir umsækjendur geta kynnt sér starfsemi Vinnumálastofnunar á heim-
asíðu hennar: www.vinnumalastofnun.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist Vinnumálastofn-
un, Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu, 150 Reykjavík, fyrir 28. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, og
Unnur Sverrisdóttir, forstöðumaður stjórnsýslusviðs Vinnumálastofnunar, í síma
515 4800.
..___________________________________________________________________/
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR
Sérfræðikomur
Edward Kiernan
kvensjúkdómalæknir verður með móttöku
4., 5., og 6. september n.k.
Tímapantanir í síma 455 4022
( m Heilbrigðisstofmmin
Scmðárkróki