Feykir - 16.08.2006, Side 7
29/2006 Feykir 7
Guðmundur 1/altýsson skrifar
Vísnaþáttur 434
Heilir og sælir lesendur góðir.
Byrjum að þessu sinni á vísu sem
trúlega er ort á Hólurn í Hjaltadal.
Höfundur Einar Sigtryggsson á
Sauðárkróki.
Hér í frægum fiallasal
fátt mun hugann þvinga.
Hólastaður í Hjaltadal
var hjarta Skagfirðinga.
Höfundur næstu vísu er Baldvin
Halldórsson, er flutti alfarið
til Ameríku 1894, þá rúntlega
þrítugur. Hefur hún stundum
ranglega verið eignuð Jóni
Ásgeirssyni frá Þingeyrum.
Dómar falla eilífð í
öld þótt spjalli minna,
gæta allir œttu því
eigin galla sinna.
Næstu tvær vísur eu líka eftir
Baldvin.
Fífill hár ogfjóla smá
fljóta í tára böðurn,
daggargárar glitra á
grœnum smárablöðum.
Daggarbletti blikar á
blómin létt í sporum,
ánœgð rétta arma þá
upp úr klettaskorum.
Að lokum frá Baldvin, þessi vísa
sem hann hefur trúlega ort á efri
árum.
Óðum hallast, heilsa,fiör,
hár á skalla fúna.
Það má kalla égflýtiför
fram á gjallarbrúna.
Sá snjalli hagyrðingur Jóhann
Magnússon frá Mælifells á ntun
eitt sinn hafa ort svo.
Einn þóttfangi auðnuhag
öðrum strangur reynist skólinn,
eftir langan œvidag
undirganga líkt mun sólin.
Við samferðamenn á lífsleiðinni
segir Jóhann.
Nú mun fundum fœkka um skeið,
fyrr við undutn satnan,
gatþá lunditt létt og heið
lífgað stundargaman.
Til Lovísu konu sinnar yrkir
Jóhann.
Ellitt þó að mœði tnig
tná ég vera glaður.
Meðan aðeins á ég þig
er ég gœfumaður.
Skagfirðingurinn Sigurður ).
Gíslasson var góður hagyrðingur
og mikill vísnasafnari. Mun hann
vera höfúndur að þessari.
Ekki tnyndu allir því
utta- og telja gaman,
en gömlum skrœðum get ég í
grúskað tímum satnan.
Önnur vísa kemur hér eftir
Sigurð.
Ég að skráningu vísna vinn
vel það öðru heldur.
Margur glatast gimsteinninn
gleymskunni ofurseldur.
Gaman er að þessari vísu Sigurðar.
Þegaryrkja vísu vil
verður mér að spyrja.
Ætli hún sé ekki til
áður en ég byrja.
Um síðastliðna verlunarntanna-
helgi var sagt frá miklum
vatnavöxtum á Austurlandi. Var
um tíma lokað brúnni yfir Jöklu.
Eftir að útvarp okkar landsmanna
flutti svipaðar fréttir í september
2004. Orti Aðalsteinn L. Valdi-
marsson þessa ágætu limru.
Voldugfram vellir hún Jökla
vætir mjög stíflur og sökla
vita nú þar
verkfœðingar
að hún er tneir en í ökla..
Einhverju sinni er tíðindi voru flutt
frá Ólympíumóti íþróttamanna
var aðal fféttaefhið lyfjaprófun. Að
því tilefni orti Aðalsteinn.
Methafar sýndust ei syfiaðir
sveigutn aflárviðri klyfiaðir.
Þáðu myntgylltu
og þvagglösin fylltu
aldeilisyfir sig lyfiaðir.
Þegar Aðalsteinn heyrði, að
einhvert vinsælasta sjónvarpsefni
síðari tíma væru sýningar frá
strandblaki kvenna varð þessi til.
Allmargir áhorfit nenna
og uttaðs í lendunutn kenna,
efað þeir sjá
sjónvarpað frá
strandblaki stinnrassa kvenna.
Ekki hefur heilsufar Framsóknar-
flokksins verið upp á marga
fiska síðustu ár, þó keyrt hafi
um þverbak síðustu vikur. Þegar
Aðalsteinn heyrði að konur sem
honum tilheyrðu, stæðu í ströngu
í valdabaráttu, varð til þessi ágæta
lintra.
Um völdin er voðaleg senna
og vaxattdi kynbunditt spettna.
Virðast þeir etttt
vandræðamenn
flokksbrœður Framsókttarkvettrta.
Gott er í framhaldi af þessu að
rifja næst upp þessa ágætu vísu
Guðmundar G. Halldórssonar á
Húsavík.
Flokkuritttt er á leið til loka
leyna sér ekki viðbrögð hörð.
Setja œtti Halldór í
síldarmjölspoka
ogsenda hann austur
á Hornafiörð.
Verið þið þar nteð sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
Tekist é i leik Tirtdastóls og Hvatar. Mynd: Valgeir K.
3. deildin í knattspyrnu____
Hvöt felldi Stólana
Fákaflug 2006
Reyna við
heimsmet
Fákaflug 2006 fer fram
dagana 25. - 27. ágúst nk.
að Vindheimamelum í
Skagafirði.
Keppt verður í
A-flokki, B-flokki og
Tölti í fullorðinsflokki.
Einnig verður keppni í
ungmennaflokki, unglinga-
flokki, barnaflokki og 100
m fljúgandi skeiði sem fram
á að fara á kynbótavellinum,
og á að gera atlögu að
heimsmetinu.
Það verða þrír inn
á vellinum í A-fl„ B-
fl.,ungmenna- unglinga og
barnaflokki. Ekki riðið fet
og stökk.I töltinu verða tveir
inn á í einu. Ef þátttakendur
verða fleiri en 25 í grein verða
b-úrslit í greininni.
Skráning fer fer fram
á tölvupóstfangið fritz@
mi.is eða í síma 8991019
til og með miðvikudagsins
23. ágúst nk. Tilgreina þarf
nafn keppenda, kennitölu,
keppnisgreinar (og upp á
hvaða hönd verði riðið í
töltinu), nafn hests og IS
númer. Athugið að öll hross
þurfa að vera grunnskráð í
Worldfeng, að öðrurn kosti
verður skráning ekki tekin
gild. Þátttökugjöld eru kr.
2.500 fyrsta skráning kr. 1.500
eftir það. Þátttökugjald í
barna og unglingaflokki er
kr. 1.500.
Lið Tindastólsfékk
nágrannana frá Blönduósi
í heimsókn síðastliðið
fimmtudagskvöld og
þurftu Stólarnir að sigra
til að geta gælt við þann
fjarlæga möguleika að
komast í úrslitakeppni 3.
deildarinnar. Eftir leikinn
var draumurinn hins
vegar úti því Hvöt gerði
sér lítið fyrir og lagði
Stólana 0-2.
Sagt er frá því á vef
Tindastóls að Stólarnir hafi
haft yfirhöndina framan af
leik, spilað góðan fótbolta
en ekki tekist að skora þrátt
fyrir ágæt tækifæri. Um
ntiðjan hálfleikinn braut
markvörður Blönduósinga
illa á Birni Inga sem korninn
var einn í gegn og átti
ekkert annað eftir en að
renna boltanum í markið.
Allir áttu von á því að sjá
markmanninn fá rauða
spjaldið en örn Arnarson
dómari kenndi eitthvað í
brjósti um kappann og sýndi
honum því það gula. Eftir
þetta færðist harka í leikinn
og dómarinn notaði gula
spjaldið í gríð og erg - eða
sjö sinnum á hálftíma kafla.
Staðan 0-0 í hálfleik.
Tindastólsmenn höfðu
áfram tögl og haldir í síðari
hálfleik en á 66. mínútu
skoraði Ólafur Sigfús
Benediktsson og aðeins
fimm mínútum síðar gerði
Frosti Bjarnason annað
ntark Blönduósinga.
Eftir þetta datt leikur
Stólanna niður og á 80.
mínútu fékk Steini Gests
að líta rauða spjaldið.
Úrslitin þar með ráðin og
Blönduósingar sem spilað
hafa vel í suntar geta látið sig
hlakka til úrslitakeppninnar
sem hefst 26. ágúst.
nj- “ln
Síðsumarsýning kynbótahrossa
á Norðurlandi
Yfirlitssýning kynbótahrossa hefst kl: 12:00
föstudaginn 18. ágúst á Sauðárkróki.
Sýningin er haldin í tengslum við landbúnaðarsýningu Flugu.
■^3 LEIÐBEIIMIAIGAJVIIÐSTÖÐIIU ehf.
_____________________________________________________P
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
þúsundkm. Upplýsingarísíma
Bíll til sölu
Mitsubishi Carisma GDI til sölu.
Gullfallegur og vel með farinn bíll,
árg. 98, keyrður 110.000.
Sumardekk og vetrardekk á
álfelgum fylgja með.
Verð i kringum 450þús, tilboð
óskast í símum 8681232 eða
4535871.
Hús til sölu
- gerið tilboð
TilsöluerAðalgata 12, 155m2,
tveggja hæða, þarfnast mikils
viðhalds. Öllboðskoðuð. Tilboð
gerist fyrir 7. ágúst.
Upplýsingar í síma 8626118 eða
shp@simnelis
Avensis til sölu
Toyota Avensis 1800 sjálfskiptur,
árgerð 05/2000, ekinn 124
8925536.
LandCruiser til sölu
Toyota LandCruiser VX árgerð
1999tilsölu. Billinn er sjálfskiptur,
leðurklæddur og í fínu lagi.
Upplýsingari síma 8935417.