Feykir - 13.12.2006, Blaðsíða 4
4 Feyfcir 46/2006
verkefrium í atvinnulífinu og
tekið áhættu?
„Jú, jú, það fer mikil orka og
tími í nýsköpun. Hjá mér er
þetta árátta. Ég hef aldrei
yfirgefið viðskiptalífið þó að ég
hafi farið í stjórnmál. Ég er
haldinn þeirri vissu að við
verðum sífellt að leytast við að
skapa ný verðmæti. Annars
verður stöðnun. Þjóð eins og
við íslendingar sem er komin í
fremstu röð hvað snertir
lífsgæði, verður að halda stöðugt
áfram að horfa til nýrra verð-
mæta. Nýsköpun ásamt frjáls-
urn viðskiptum og frjálsri
verðmyndun er drifkrafturinn í
hinu opna vestræna hagkerfi.
Ég hef tekið þátt í þessu og á
vonandi eftir að gera það
áffarn."
-Sumir segja að þið Davíð
Oddsson, fyrrverandi
formaður Sjálfstæisflokksins
og forsætisráðherra, hafið
unnið náið saman?
„Oft á tíðum gerðum við það.
Ég hef hins vegar alla tíð verið
trúr og dyggur sjálfstæðismaður
og ein af höfúðskyldum sjálf-
stæðismanns er að vera ávallt
reiðubúinn að styðja formann
flokksins. Þorsteinn Pálsson var
og er mikill vinur minn. Þegar
Davíð bauð sig fram gegn
Þorsteini taldi ég mér skylt að
standa þétt með sitjandi
formanni flokksins, hvað ég og
gerði frarn á hin síðustu sáru
augnablik.
Hin harða afstaða mín með
Þorsteini hefur ekki skyggt á
neitt á milli okkar Davíðs. Einu
sinni barst þetta í tal milli okkar.
Ég var þá formaður Vinnu-
veitendasambandsins og var að
vinna fyrir Davíð á hans fyrsta
starfsári. Hann færir þetta í tal
að ég hafi lagt mig allan fram
um að koma í veg fýrir að hann
yrði formaður flokksins og
forsætisráðherra. Égbenti Davíð
á að síðan þá hefði fýrst og
fremst eitt gerst. Hann hefði
skipt um skoðun en ekki ég. Nú
væri hann sammála því sem ég
hefði alla tíð haldið fram, að
menn ættu alltaf að styðja og
styrkja formann Sjálfstæðis-
flokksins.
Davíð hló við og við ræddum
þetta ekki meira."
-Norðvesturkjördæmi er
sennilega erfiðast yfirferðar
allra kjördæma á landinu.
„Ég skal ekki leggja dóm á það.
Ég var mjög á móti þessari
kjördæmaskipan og taldi hana
vitleysu. Sjónarmið stjórna
flokkanna er að reyna að tryggja
jöfnuð þeirra á milli og með það
að leiðarljósi var núverandi
kjördæmaskipan kornið á. Ég er
enn á móti henni. Það var til
dærnis alveg dæmalaus vitleysa
að kljúfa hinn forna Norð-
lendingafjórðung. Skynsamlegt
væri að tengja betur saman
Skagafjörð og Eyjatjörð en af
því að þetta eru orðin tvö
kjördæmi talar enginn fyrir því.
Saga atvinnu og mennningar
segir okkur að Norðurland er
einn landshluti. Fyrr en síðar
kemur að því að menn
viðurkenna þessi mistök. Helst
vildi ég sjá einmenningskjör-
dæmi og landslista til hliðar til
þess að jafna vægi á milli
flokkanna en það er annað mál.
Norðurlandskjördæmi
vestra og Vesturlandskjördæmi
voru sameinuð Vestfjarðakjör-
dæmi. Það er mikil reynsla að
kynnast sem þingmaður
tveimur nýjum kjördæmum.
Þessu fylgir mikil vinna en fýrst
og fremst hefur mér fundist hún
ánægjuleg. Okkur þing-
mönnum er ævinlega vel tekið.
Ég sé engan meginmun á fólki
effir því hvort það býr innst til
dala Norðanlands eða á
útnesjum Vestfjarða. Fólkið er
nákvæmlega eins en lífsstíllinn
er frábrugðinn vegna þess að
umgjörðin er mismunandi.
Eitt verð ég þó að nefna sem
var nýtt fýrir mig, sem er ættaður
af Vesturlandi og alinn upp á
bryggjum Vestfjarða. Það er
þessi mikla lífsgleði hesta-
mannanna í Húnavatnssýslum
og Skagafirði. Ég get ekki annað
en dáðst að henni. Það er alveg
ótrúleg lífsfýlling sem þetta dýr
veitir stórum hópi manna."
-Þú hefur verið hreinskilinn
og sagt þína skoðun en ekki
endilega grætt á því í
pólitíkinni. Er þetta taktík
eða ertu svona að eðlisfari?
„Maður tapar yfirleitt á því
pólitískt. Ég held að að þetta eigi
eitthvaðviðmínalyndiseinkunn.
Mér leiðist innihaldslaust mas.
Ég vil vera hreinskilinn og það
fólk sem mér þykir vænst urn
segir segir sína skoðun um-
búðalaust og er ekki að hringla
endalaust um ekki neitt."
-Þú hefúr stundum tekið
mikið upp í þig í umræðu um
kjarasamninga?
„Ég hef alltaf sagt það sarna.
Þegar launþegar bera ffarn sínar
kröfur hafa þeir rétt fýrir sér,
vegna þess að launakröfur
byggja á samanburði og það er
alltaf hægt að finna einhvern
sem rnaður telur að hafi það
betra. En ef þú lítur á heildina
hefúr það alltaf orðið launþeg-
um til mestra vandræða þegar
sarnið er um hærri kaupmátt en
framleiðslumáttur þjóðarinnar
leyfir. Þá gerist ekkert annað en
að þessar hækkanir eru teknar
af fólki aftur í formi verðbólgu.
Hinir lægst launuðu fara alltaf
verst út úr þessu. Þegar menn
eru að nudda sér utan í fátækt
fólk og segja “ég er svo mikill
vinur þeirra sem búa við verstu
kjörin”, er það þvi miður
undantekningalaust hræsni.
Þeir sem standa verst að vígi eru
oft skuldugastir og tapa mest á
verðbólgunni. Mig svíður off
undan því hvað menn geta sagt
rangt til um þessa hluti."
-Nú hafa orðið miklar
breytingar á íslensku
þjóðfélagi undanfarin ár.
Hvað sérð þú sem brýnustu
verkefni næstu ára?
„Líf þessarar þrjúhundruð-
þúsund manna þjóðar sem býr
á þessari stóru eyju í norður-
hjaranum er eins og eilíf
kraftaverk eins og skáldið Davíð
Það er stutt í jólin og þeir sem
eru orðnir leiðir á söltuðu og
reyktu kjöti hafa góðan
valkost í t.d. kalkún.
Fyllingjyrir kalkún
(passar jyrir 4-6 kg kvikincii)
l/2stkfranskbrauð
200 g sveppir
50 g þurrkaðir villisveppir
50 g pistasíuhnetur
1 stk saxaður laukur
1 stk gulrót söxuö
3 stk egg
1 dl portvín
2 dl rjómi
10 stk fersk salvíulauf (söxuð)
saltog pipar
Skorpuskerum franskbrauðið
og rífum það niður í skál. Síðan
tökum við egg, portvín og
ijóma og hrærum saman og
Stefánsson sagði. Við verðum
alltaf að vera viðbúin því að
þurfa að berjast fyrir okkar
tilveru í santkeppni við aðrar
þjóðir. Við lifum ekki í þessu
landi án þess að byggja það.
Þaðsem mér, útgerðarmann-
inum og fiskverkandanum,
blöskrar hvað mest um þessar
mundir, er vitlaus urnræða um
íslenskan landbúnað. Það er
búið að telja saklausu fólki trú
unt að stærsti myllusteinninn
um háls íslenskra launþega sé
kostnaður við landbúnað. Þetta
eru ósannindi og það er sífellt
verið að endurtaka þau. Ég hef
rætt við margt vel gefið og
menntað fólk sem trúir þessari
endaleysu. Þegar menn horfa
upp á svona rangfærslur verða
þeir að þora að berjast. Menn
verða að þora að slást. Bændur
eru ekki áþján á þjóðinni.
Búskapur í sveitum er forsenda
fýmir byggð í landinu.
Beinir framleiðslustyrkir til
landbúnaðareru kannski miklir
á amerískan eða e\Tópskan
hellum \úr franskbrauðið.
Látið liggja í bleyti í 2 klst.
Sveppum, villisveppum, pista-
síuhnetum, lauk, gulrót og
salvíu er blandað saman við
brauðblönduna og kr)'ddað
með salti og pipar.
Þá er fýllingunni troðið inn í
fúglinn og er fuglinn steiktur
við 170 gráður í u.þ.b. 40
mínútur á kíló.
Til þess að konta í veg fýrir að
bringukjötið þorni er gott að
bræða 300 g af smjöri og væta
hreinan grisjuklút í smjörinu
og leggja yfir bringuna þegar
nota bene fúglinn er orðinn
brúnaður og ausa fitu og safa
sent fellur til í skúffúna annað
slagið yfir grisjuklútinn. Þá
helst góður raki í bringunni.
Trönuberjasulta
mælikvarða en þeir eru smáir
fýrir ríka þjóð. Þeir eru ekki
meiri en hjá ríkum þjóðurn
eins og Norðmönnum, Sviss-
lendingum og Japönum sem
vilja og þora að styrkja sinn
landbúnað. Bændur hafa
hagrætt og þróað sinn
atvinnuveg og það er alls ekki
sanngjarnt að halda uppi
árásum á þá.
Beinir styrkir til land-
búnaðar í þ\í fjárlagafrumvarpi
sem við vorum að sfyTkja núna
eru 8.500 milljónir króna og
það er ekki mikið. Hlutfall
innlendra matvæla í
neysluvísitölunni er 5,7%.
Þessi tala er merkileg og menn
eiga að leggja hana á ntinnið
vegna þess að áætluð
kaupmáttaraukning almenn-
ings á Islandi á þessu ári sem er
að líða er nákvæmlega sú sama.
Nákvæntlega fimm komma sjö
prósent."
-Hvemig eru jól heima á
Sólbakka?
„Við fjölskyldan og fjölskylda
systur minnar, börn okkar og
barnabörn höldum jól á
Sólbakka. Aðalatriðið er að
jólin í ár verði nákvæmlega eins
og jólin voru í fýrra og í fýrra
var það aðalatriði að jólin þá
væru nákvæmlega eins og jólin
þar á undan. Þannig er þetta ár
eftir ár. Jólin skulu alltaf vera
nákvæmlega neins. Það má
ekki breyta neinu í jólahaldinu
hjá okkur á Sólbakka. Það er
alveg bannað."
ÁG
1 poki trönuber (350 g)
2 bollar púðursykur
2 bollar Grand Mariner
Allt sett í mixara og maukað
vel saman. Látið standa í ísskáp
í að minnsta kost tvo sólar-
hringa.
Þessi sulta er tilvalin með ljósu
kjöti eins og kalkún eða
kjúkling og er einnig góð með
villibráð t.d. paté.
Jólakveðja,
Jón Daníel
EFeykir hefur fengið
Jón Danícl á Kaffi
Krók til að sjá um
matarhorn í Feyki
og er upplagt að
áskrifcndur setji
upp kokkhúfuna og
re>Tii sig við uppskriftir Jóns. Hrá-
efnið sem Jón Dan notar er hægt að
nálgast í Skagfirðingabúð.