Feykir - 13.12.2006, Síða 6
6 Feykir 46/2006
SKAG
FIRSKAR
ÆVT
Verð kr. 6000.-
Til sölu hjá Sögufélagi Skagfirðinga
í Safnahúsinu Sauðárkróki
Sími 453 6640 :: Netfang: saga@skagafjordur.is
Unglingará Norðurlandi vestra_
Drekka mest en
reykja minnst
Háskólinn á Akureyri
í samvinnu við Lýð-
heilsustöð hefur kannað
vímuefnaneyslu meðal
nemenda í 6., 8. og 10. bekk
á landinu.
Könnunin var lögð fyrir
nemendur í vor og hafa
niðurstöður nú verið birtar
en þar kemur m.a. fram
að áfengisneysla er mest á
Norðurlandi vestra en minnst
á Norðurlandi eystra.
28 af hundraði nemenda í
10. bekk á Norðurlandi eystra
sögðust hafa neytt áfengis á
liðnum 12 mánuðum en urn
helmingur nemendanna á
Norðurlandi vestra. Hlutfallið
á landinu öllu var 40%.
Lægst er hlutfall þeirra
unglinga sem reykja daglega
í 10. bekk á Norðurlandi
vestra eða innan við þrír af
hundraði. Mest er hlutfallið í
Reykjavík og á Suðurnesjum,
á milli 15 og 16 prósent.
Þá er neysla á hassi og
maríjúana minnst meðal
tíundubekkinga á Norður-
landi vestra miðað við landið
og næst minnst á Norðurlandi
eystra. 5,5% nemenda á
Norðurlandi vestra hafa
neytt þessara efna en 5,9% á
norðurlandi eystra. Hlutfallið
er hæst í Reykjavík eða tæp
13%.
Svarhlutfall í könnuninni
var 86%.
Byggðasaga Skagafjarðar
er gefin út af Sögufélagi Skagfirðinga
Skaaaf,„„
Þú getur pantað
Byggðasögu Skagafjarðar
með þvi að hringja
i sima 453 6640
eða á netfangi Sögufélagsins
og Héraðsskjalasafns
Skagfirðinga.
Netfangið er:
saga@skagafjordur.is
Skipta má greiðslum með greiðslusamningi við útgáfuna.
• Fyrsta bindi um Skefilsstaðahrepp og Skarðshrepp kostar kr. 8.900
• Annað bindi um Staðarhrepp og Seyluhrepp kostar kr. 11.900
• Þriðja bindi um Lýtingsstaðahrepp kostar kr. 12.900.
tilboð
Allar bækurnar þrjár fást í
tilboðspakka á kr. 25.000
Efkeypt er nýja bókin og önnur hvor hinna eldri
fást þær á kr. 20.000
Ofangreint verð er félagsmannaverð Sögufélags Skagfirðinga og býðst einnig
þeim sem panta beint frá útgáfunni.
Þeir sem greiða fyrirfram fá bækurnar sendar burðargjaldsfrítt.
Annars leggst við burðargjald.
Sögufélag
Skagílrðinga
Safnahúsinu
550 Sauöárkróki
sími 453 6640
netfang: saga@skagafjordur.is
Fréttatilkynning___________
Rafsjá tekur við
umboði Vodafone
Raftækjaverslunin Rafsjá
á Sauðárkróki er nýr
umboðsaðili fyrir Vodafone.
Rafsjá býður sömu þjónustu
og vöruúrval og er að finna
í verslunum Vodafone, svo
sem úrval GSM símtækja,
ADSL endabúnað og ýmiss
konar aukahluti.
Þá veita starfsmenn Rafsjá
viðskiptavinum góð ráð
varðandi þann búnað og tæki
sem eru í sölu hjá Vodafone.
Vodafone hefur jafnffamt
lagt mikla áherslu á að efla
dreifikerfi sitt og þjónustu
f Skagafirði og nágrenni.
Fyrirtækið hefur meðal annars
komið upp öflugu ADSL kerfi
á Sauðárkróki og býður nú
ADSL plús og ADSL extra,
sem felur í sér allt að því 14
Mb/s hraða fyrir netnotendur.
Um er að ræða sama hraða
og verð og er almennt í boði
á þjónustusvæði Vodafone.
Ekkert fjarskiptafyrirtæki getur
boðið sama hraða og Vodafone
býður í ADSL þjónustu á
Sauðárkróki.
Þá hefur Vodafone einnig
eflt GSM kerfi sitt bæði á
Sauðárkróki og annars staðar í
Skagafirði.
Sauðárkrókskirkja
Árlegt aðventu-
kvöld vel sótt
Það var sannarlega
margt um manninn - eða
vel á þriðja hundraðið
- á árlegu aðventukvöldi
í Sauðárkrókskirkju
síðastliðinn sunnudag
enda fastur liður í
jólaundirbúningi margra að
sækja kirkju á aðventunni.
Ræðumaður kvöldins
var Ólafur Atli Sindrason
kennari viðÁrskóla. Barnakór
kirkjunnar flutti helgileik
en Iris Baldvinsdóttir og
Rögnvaldur Valbergsson æfa
barnakórinn. Stubbarnir, 10-
12 ára krakkar í kirkjustarfinu,
sungu nokkur sígild jólalög
með leikrænu ívafi.
Síðast en ekki síst flutti
kirkjukórinn aðventu- og
jólasöngva undir stjórn
Rögnvaldar organista.
Að dagskránni tæmdri
þáðu kirkjugestir pipar-
kökur og súkkulað' í safnað-
arheimlinu.
Fullt tungl
Tiðindamaður Feykis var á ferð yfir Holtavðrðuheiðiþegar hann hann stöðvaði
til að ná þessari fallegu mynd affullu tungli yfir Hrútafirði. MyndtÁG