Feykir


Feykir - 20.12.2006, Blaðsíða 3

Feykir - 20.12.2006, Blaðsíða 3
47/2006 Feykir 3 Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur bændur á Hofi á Höfðaströnd heimsótt á jólaföstunni „Hjartað verður alltaf hér á Hofi" „Balti vildi vera á Suðurlandi en ég hummaði það fram afmér og hafði mitt í gegn á endanum sem betur fer." Myndir: ÁG Hjónin Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur keyptu fyrir nokkrum árum jörðina Hof á Höfðaströnd. Lilja á þar rætur en föðurforeldrar hennar Jón Jónsson og Sigurlína Björnsdóttir bjuggu á Hofi og faðir hennar Pálmi Jónsson er þar fæddur og uppalinn. Feykir heimsótti Lilju og Baltasar á jólaföstunni. Fjölsk\'ldan samanstendur af þeim hjónum, finnn börnum þeirra, hundi og ketti. Elsta barnið er á átjánda ári og það yngsta fjögurra ára. Þrjú þeirra búa með Baltasar og Lilju í nýju og giæsilegu íbúðarhúsi á Hofi en tvö ganga í skóla í Reykjavik. Hrossin eru um 30 talsins en í ræktun þeirra eru fimm hryssur sem hlotið hafa fyrstu verðlaun í kynbótadómi. Þeirra þekktust er hryssan Sefja ffá Úlfljótsvatni sem var efst í flokki 4 vetra hryssna á Landsmótinu á Hellu 2004 og næstefst í flokki 6 vetra hryssna á Landsmóti 2006. Eftir að við vorurn sest niður í borðstofúnni á Hofi lá beinast við að spyrja Lilju um tengsl hennar við þennan stað. „Við eigurn t\'ö heimili”, segir hún. „Annað í Reykjavík og hitt hér. Mér finnst fjarlægðin kostur. Maður hvílist betur hér heldur en ef við hefðum kev'pt jörð í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík og sífellt verið að skreppa í bæinn. Ég var hér í sveit hjá ömmu nokkrar vikur á hverju sumri. Afa kynntist ég ekki. Hann dó áður en ég fæddist. Hér naut ég þess að leika mér frjáls úti náttúrunni. Dvölin hjá ömmu hafði djúp áhrif á mig. Eftir að við Baltasar byrjuðum sarnan var ég alltaf að þræla honum hingað norður með mér. Þessi staður togaði bara svo fast í mig.” „Þetta er ekki alveg nákvæmt hjá þér” segir Baltasar. „Þú þrælaðir mér hingað að Hofi. Það þurfti ekki að hvetja ntig ntikið til þess að fara í Skaga- fjörðinn enda var ég vanur að korna hingað í kringum hesta- mennskuna. Var til að mynda reglulegur gestur á hesta- marmamótum á Vindheima- melum í ntörg ár. En hingað þurftum við alltaf að fara og til að byrja með sá ég ekki alveg tilganginn með því að ónáða ábúendur hér á Hofi. Þegar við kynntumst bjó ég á Skeggjastöðum í Mosfellsdal og var með hross þar. Það hefur alltaf verið mjög ríkt í mér að búa utan Reykjavíkur.” „Það er skrítin tilviljun að pabbi átti Skeggjastaði þegar ég var yngri”, segir Lilja. “Við vorum með hestana okkar þar. Svo löngu síðar eignaðist Baltasar jörðina. Eftir að við byrjuðum sarnan fórum \ið að leyta okkur að jörð. Balti vildi vera á Suðurlandi en ég hummaði það frarn af mér og hafði mitt í gegn á endanum sem betur fer. Baltasar: „Það tekur dálítinn tíma að átta sig á mismuninum á að vera hér og að vera í nálægð við bæinn. Hér festir maður dýpri rætur. Ég er að átta mig betur og betur á því hvað ég þarf í raun lítið að vera í Reykjavík jafitvel þó að ég vinni þesssa vinnu sem ég vinn. Ég skrifaði til að mynda handritið að Mýrinni að stórum hluta hér og sama má segja um vinnuna við klippinguna. Hér hef ég gott næði til að vinna.” „Hér er góður vinnufriður og mikil víðátta og náttúrufeg- urð sem hefur góð áhrif á fólk sem vinnur að skapandi verk- efnum, lífið er einfaldara og fjölskyldan hefúr meiri tíma saman”, skýtur Lilja inní. Baltasar heldur áfram. „Ég klippti Mýrina hér og vil meina að það næði sem ég fékk til þess sé ein skýringin á velgengni hennar. Hér var ég í nálægð við fjölskylduna en samt ekkert utanaðkomandi að trufla mig nerna fótboltaæfingarnar með Neista á Hofsósi. Ég náði að einbeita mér fullkomlega að þessu eina verkefni.” -Þegar þið frumsýnduð Mýrina í Sauðárkróksbíói báðuð þið Skagfirðinga um að hjálpa ykkur við að leggja reiðvegi um héraðið. Þið látið til ykkar taka. „Já er það ekki bara eins og maður er”, segir Baltasar og Lilja bætir við að líklega sé hann afskiptasamur að eðlisfari. „Ég er vanur að segja hvað mér finnst”, segir Baltasar. „Svo verða menn bara að taka því eða ekki. Mér finnst með ólíkindum að í Skagafirði, ntekka hesta- mennskunnar, skuli ekki vera hægt að ríða út á almennilegum reiðvegum eftir miðju héraðinu. Ég var einmitt á fúndi með framsóknarfélaginu hérna um daginn og ræddi þetta og fleira við þá. Skagafjörður er mekka hestamennskunar í hugunt fólks. Uppbyggingin á Hólunt er ntjög jákvæð fyrir hérðaðið. Hér á íslensk hestamenning djúpar rætur. Þess vegna er þetta bagalegt með reiðvegina. Menn eiga að geta komið með hestana sína hingað og riðið út. Hér eru fornar reiðleiðir sem þarf að opna. Sveitarfélagið á að semja við landeigendur unt þetta. Svo er það líka að þar sem menn eru að gera reiðvegi á annað borð á að gera þá almennilega.” -Lilja stundar nú nám í hestafræðum við Háskólann að Hólum í Hjaltadal. En hvernig stóð á því að hún dreif sig í nám? „Ég var í hestunum með pabba þegar ég var yngri”, segir Lilja. „Eftir stúdentspróf fór ég erlendis í nám og fór stopult á bak. Þegar við Baltasar kynnt- umst tók ég upp þráðinn en hann var líka í hestamennsk- unni. Áhuginn óx ntikið og ntig langaði til þess að ná virkilega góðum tökum á hestamennsk- unni. Mig langaði að ná lengra en að vera bara þokkalegur reiðmaður.” „Þetta er ástríða”, segir Balt- asar. „Eins og hver önnur ást. Maður æltar sér kannski ekki að verða ástfanginn en getur svo ekki stjórnað því. Hver hefði til dæmis séð það fyrir fyrir tíu árurn að við Lilja ættum eftir að flytja í Skagafjörðinn og stunda hrossarækt. Mér finnst frábært hjá henni að gera þetta. En það var átak að flytja hingað. Ég var alls ekki á móti því en það fylgir því rnikil vinna og ég varð að geta látið allt ganga upp varðandi mín störf. Ég þarf að þvælast dálítið mikið á milli og það kemur bara í ljós hvernig þetta gengur á næstu árunt. En ntér finnst þetta frábært hjá Lilju að skella sér í Hóla. Það eina sem mér líst ekki á er að hún er að verða svo mikill besservisser þegar hún er korninn á hestbak. Það er aga- legt að vera búinn að vera í hestum í 30-40 ár og þurfa svo að læra allt upp á nýtt. En grínlaust finnst mér forréttindi að fá að fylgjast með hennar námi og læra nýja hluti sjálfur. Maður staðnar með tímanum í hestamennskunni eins og öðru ef maður bætir ekki við sig þekkingu.” -Baltasar hefur Ieikið í kvik- myndum, og á sviði, starfað sem leikstjóri í leikhúsi, leikstýrt myndumog framleitt þær. En er hann búinn að marka sér svið hvað

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.