Feykir


Feykir - 20.12.2006, Blaðsíða 8

Feykir - 20.12.2006, Blaðsíða 8
8 Feykir 47/2006 Árni Gunnarsson frá Reykjum spjallar við Snæju á Bakaríinu „Fannst miklu auðveld ara að stjórna öðrum" Söngstjóri Skagfirsku söngsveitarinnar á kórferöalagi i Stuttgart. Myndir úr einkasafni. Heima á Krók er hún ennþá oftast kölluð Snæja á Bakaríinu þó áratugir séu síðan hún fluttist til Reykjavíkur. Snæbjörg Snæbjarnardóttir ólst upp á Króknum í stórum systkinahópi á heimili þar sem félagsmál, listir og menning svifu um í ilmi af nýbökuðu brauði nætur jafnt sem daga. Þaðan voru fluttar krásir í öll helstu veisluföng bæjarbúa og þaðan var helst að vænta efnis í helstu pólitísk stórtíðindi sveitar- og héraðsmála fyrir kosningar. Systkinin á Bakaríinu tóku fullan þátt í öllu þessu starfi allt frá fyrstu sporum og báru flest merki þessa merkilega fjöl- sk)'ldusamfélags í fasi sínu hvert sem leiðir lágu. Til dæmis þekki ég engan Islending sem búið hefur svo afskekkt að hann léti það hvarfla að sér að spyrja eitthvert systkinanna hvað hann/hún hygðist kjósa í næstu kosningum. Ekki einu sinni í gríni. Sjálfstæðisflokk- urinn er eins fastur í tilveru systkinanna eins og Nafirnar eru óaðskiljanlegt tákn Sauðár- króks. Snæja fluttist ung að heiman og helgaði sig söngtónlistar- námi um nokkurra ára skeið, fyrst í Reykjavík og síðan erlendis áður en hún settist til fúlls að í höfuðstaðnum. Hún söng við óperur erlendis sem og hér heima auk þess sem hún hefur haldið rnarga einsöngs- konserta og sungið einsöng með þekktustu kórum okkar. Jafnframt höfum við heyrt rödd hennar hljóma í útvarpi af hljómplötum og upptökum þar sem hún ýmist hefur sungið ein eða með öðrum, m.a. Gígju systur sinni og Friðbirni G. Jónssyni. Líklega á hátindi söngferilsins sneri hún sér svo alfarið að söngkennslu og söngstjórn og dugnaðurinn er ótrúlegur. Tengslin við heimahagana hafa þó ævinlega verið stór hluti af tilveru hennar og lýsir það sér kannski best í því að hún var vörslumaður skagfirskrar tón- og söngmenningar í Reykjavík um áratuga skeið. Hún stofnaði Skagfirsku söngsveitina og stjórnaði henni nokkuð á annan áratug. Síðan átti hún þátt í að stofna kór eldri söngtélaga, Söngsveitina Drangey og stjórnaði þeirn kór hátt í tvo áratugi eða þangað til starf- seminni var hætt þegar Félagsheimilið Drangey var selt. „Ég er alltaf til í allt enda er alltaf verið að plata mig” svaraði hún hlægjandi þegar ég fór þess á leit að eiga við hana spjall á heimili þeirra hjóna að Fellsmúla 13 í Reykjavík. I dag býr hún þarna ein, því börnin þrjú eru flogin úr hreiðrinu fyrir nokkru og eiginmaðurinn Kaj Jörgensen hefur um skeið verið haldinn erfiðum sjúkdómi og er nú vistaður á sjúkrastofnun. Við setjumst inn í rúmgóða stofuna þar sem stór flygill stendur í horni og á veggjum málverk eftir skagfirska lista- menn og ýrnsa fleiri þjóðþekkta. M)Tidefiiið er kunnuglegt. Meira að segja Hafiifirðingur- inn Pétur Friðrik hefiir drepið niður fæti á ferðalagi og fangað skagfirska sumarfegurð; þó væn! „Ég er fædd á Króknum og yngst fimm alsystkina. Pabba sá ég aldrei því hann dó 27 dögum áður en ég fæddist. Ég man hvað mér fannst það sárt að mega ekki kalla Guðjón pabba eins og yngri systkinin því ég var svo nærri þeint í aldri. En ég held að það hafi verið til að særa ekki Ólöfu “pabba- mömmu”, en það var föður- amma mín sem var á lífi og bjó hjá okkur. Við eldri systkinin kölluðum hana aldrei ömmu svo skrýtið sem það nú var; alltaf pabbamömmu. En Guðjón átti okkur auðvitað öll enda var hann einstakur maður, bæði góður maður og stór- brotin persóna." -En var ekki Bakaríið stundum eins og hálfgildis félagsmiðstöð þarna á Króknum? „Jú og ég man að þegar Kaj minn kom fyrst með mér norður þá spurði hann mig að því hvort þetta heimili væri opið í báða enda? Nei, sagði ég. Það er Framsóknarflokkurinn. En Bakaríið er alltaf “opið”. Og hann skildi hvað ég meinti. En auðvitað voru gestir alla daga og misjafnlega margir og þetta var óskaplega gaman því við börnin fengunt alltaf að vera með, vorum aldrei höfð til hliðar. -Og svo var nú einhver þátttaka í félagsmálum! -Nú hlær Snæbjörg. „Ég held að öll fyölskyldan hafi verið meira og minna á kafi í störfum hjá öllum þeim félögum sem voru starfandi á þessum tíma. Það var Ungmennafélagið, Leikfélagið, Kirkjukórinn og nefndu það bara." -Og svo reksturinn á Bakaríinu! „Já, það var rnikið að gera, margir í vinnu og unnið á vöktum; þetta óx svo mikið eftir að við fluttum suðureftir í nýja Bakaríið." -Svo var pólitíkin! „Já hún var náttúrlega yndis- leg." -Og þá hefur nú verið gestkvæmt á heimilinu. „Já og sérstaklega fyrir kosn- ingar. Þetta voru skemmtilegir gestir og ekki bara sjálf- stæðismenn eins og ýmsir hafa haldið. Þetta voru menn úr öllum flokkum þ\'í Guðjón var náttúrlega allt í öllu hjá flokknum og allir þurftu að ræða við hann hin ýrnsu mál. Sko!, maður lifði bara í þessu; þetta var ólýsanlegt og oft hef ég hugsað til þess hvað maður var gæfusamur að fá að alast upp á svona skemmtilegu heimili." - Og hvernig var svo samfélagið á Króknum að öðru leyti? „Nú það var yndislegt. Þarna var að vísu dálítið glögg stéttaskipting en þó í góðum skilningi. Þeir embættismenn sem ég man effir voru einhvern veginn þannig persónur að það báru allir virðingu fyrir þeim, enda miklu virðulegri en embættismenn okkar eru í dag. Og sama má segja um kaup- mennina og aðra þá sem höfðu einhver umsvif. Hugsaðu þér að hann Jón Björnsson skólastjóri, Jón kennari eins og við köll- uðum hann; þegar við börnin mættum honum á götu þá tók hann ofan og heilsaði okkur. Þarna var bara einhvern veginn svo rnikið “aristokrat”." - Hvenær byrjar þú svo að taka þátt í félagsstörfum? „Nú, strax og ég man eftir mér. Það voru allir á heimilinu á kafi í söng og leiklist. Ég held að ég hafi verið 13 ára þegar ég byrjaði í kirkjukórnum hjá Eyþóri en allar eldri systur mínar voru þá komnar í kórinn eða höfðu verið í honum og svo auðvitað bæði mamma og Guðjón. Og svo lét Eyþór mig syngja ein- söng með kórnum og það voru lögin Ailsherjar drottinn og Ave María eftir Schubert. Ég var auðvitað að deyja úr feimni en þetta gekk allt saman því þarna voru allir svo góðir." - Þú hefur kynnst Eyþóri vel. „ Já Eyþór var alveg stórkostleg- ur listamaður, allt í senn leikari, leikstjóri, upplesari og svo músíkant. Gerði þetta allt af snilld. Ég man eftir því að hann stjórnaði karlakórnum og stundum var æft heima hjá okkur niðri. Þá fengum við krakkarnir ekki að fara niður á meðan, en við lögðum auðvitað \áð hlustir uppi á efri hæðinni." -Þú fékkst snemma áhuga á músíkinni? „Það kom af sjálfu sér það var svo mikill söngur heima. Ég held að ég hafi ekld verið nema sjö ára þegar ég fór að læra að spila. En það gekk á ýmsu og ég gleyrni ekki einu at\áki. Þor- valdur Guðmundsson stjórnaði barnakórnum og þetta voru krakkar í síðasta bekk barna- skólans. Rétt fyrir konsert verður hann veikur og biður

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.