Feykir


Feykir - 20.12.2006, Blaðsíða 7

Feykir - 20.12.2006, Blaðsíða 7
47/2006 Feykir 7 Kona tekur við ritstjórn Feykis í fyrsta sinn „Er óttaleg sveita stelpa í mer" Euöný Jóhannesdóttir er sveitastelpa frá Öngulsstöðum i Eyjafjarðarsveit. Mynd: ÁE Um áramótin verða ekki einungis þau tímamót að nýr ritstóri tekur við blaðinu heldur ritistýrir nú kona í fyrsta skipti í 26 ára sögu Feykis. Gamli ritstjórinn settist niður með þeim nýja og forvitnaðist um hana sjálfa og það sem framundan er. Hún heitirGuðný Jóhann- esdóttir, 32 ára gift Karli Jónssyni (Karlssonar á Sauð- árkróki), og saman halda þau heimili með þremur börnum, kettinum Gretti og nokkrum fiskunt. Guðnýá fósturdóttur í SU'kkishólmi. Hún er frá Öngulsstöðum í Hyjatirði og segist vera óttaleg sveitastelpa í sér. „Við komum hingað í skjóli myrkurs þann 29 . nóvember sl. og þar sem við völdum garðinn á Hólavegi 31 til þess að ganga í hjónaband verð ég að segja að við eigum hingað sterkar taugar”, segir nýr ritstjóri Feykis. “Mér lýst bara ljómandi vel á ntig hér og tel að hér verði gott að búa til frambúðar.” -Hver er þinn bakgrunnur í blaðamennsku? „Ég starfaði hjá Fróða um fjögurra ára skeið á skrifaði þá í öll tímarit útgáfunnar. Fyrst í tvö ár í Reykjavík þá fastráðin hjá Séð og Heyrt og síðar í tvö ár á Akurevri þar sem ég skrifaði í öll tímaritin. Ég starfaði eitt sumará Degi sáluga vann hjá Ak tímariti auk þess að stofna og ritstýra tímaritinu Við.” -Hvernig lýst þér á Feyki gamla? „Mér líst bara vel á Feyki. Blaðið á sér rnikla sögu og traustan lesendahóp sent gaman verður að kynnast og læra á. Blaðið hefur sérstöðu líkt og önnur héraðsfréttablöð og hana mun ég virða.” -Nú á að stækka blaðið og endurhanna segðu okkur aðeins nánar frá þvi? „Já, gert er ráð fyrir því að blaðið verði 12 síður í stað 8 áður. Mig langar að setja rneira af fréttum af fólki inn í blaðið auk þess að vera nteð eina fréttaskýringu í hverju blaði. Þá langar mig að hanna blaðið í samvinnu við lesendur og vil því hvetja alla til þess að hafa samband á netfangið feykir@nyprent.is eða í síma 8982597 og konta með sínar hugmyndir. Ég hef hug á því að hafa samband við grunnskóla á svæði 1-eykis og fá 10. bekki skólanna til þess að vinna efni í blaðið. Eins langar mig að fá krakka í Fjölbrautaskólanum til þess að skrifa í blaðið, íþrótta- félögin og svona gæti ég talið áfram. IJá hvet ég alla til þess að senda inn efni eða greinar því Feykir á að lialda áfram að vera í því hlutverki að vera blað fólksins.” -Hvenær kemur jólaskapið hjá þér? „Já það er þetta með jólaskap- ið. Ég hef alltaf verið mikið jólabarn og jólaskapið byrjar að láta á sér kræla síðsumars þegar ég fer að ka upa jólagjafir. Síðan smá versnar þetta og nær síðan hámarki á að- ventunni. Jólaundirbúning- urinn hefúr reyndar verið skrítinn þetta árið sökum búferlaflutninga fjölskyld- unnar en þetta er allt að koma.” ÁG byggingar, hvorki á sviði iðnaðar, né á þekkingarsviðinu, ef Hólaskóli er undanskilinn. Það er hverjum manni ljóst að það mun eldd verða neinn verulegur vöxtur í frumatvinnu- greinunum sjávarútvegi og landbúnaði og því er mildlvægt að byggja upp aðrar atvinnu- greinar samliliða þeim sem lyrir eru á þessum svæðum." -Hvar er frumvarpið um Nýsköpunarmiðstöð statt? Er stefht að því að það verði að lögum fyrir vorið og hvað með staðsetningu höfuðstöðva hennar? „Það er búið að leggja fruntvarpið frarn og ntæla fýrir því. Þegar þing fór í jólaleyfi var iðnaðarnefnd Alþingis með rnálið til umfjöllunar. Ég geri eldd ráð fyrir öðru en að það verði samþykkt fyrir þinglok í vor, en veit að ýmsar og mikilvægar athugasemdir hafa kontið fram í meðförum þess sem mögulegt er að hafi áhrif á afgreiðslu þess. Ef það verður að lögunt er ljóst að starf að byggðamálum á vegunt hins opinbera mun taka töluverðum breytingum og rneiri áhersla verður lögð á nýsköpun og uppbyggingu þekkingarsetra unt land allt. Hvað varðar höfuðstöðvar væntanlegrar stofnunar, þá liggur fyrir yfir- lýsing fyrrverandi og núverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra að þær verði staðsettar hér á Sauðárkróki og ég á ekki von á öðru en að starfsemin hér eflist ffekar en hitt. Hvað fjár- málahliðina varðar, þá er afar mikilvægt að halda því til haga að þótt svo að víða hafi orðið breytingar á fjármálaumhverfi fyrirtækja í kjölfar aukins aðgangs að lánsfé, þá er ennþá mikil þörf fyrir stofnun eins og Byggðastofnun, því við sjáum vel að bankarnir eru ekki tilbúnir til að lána hvar sem er á landinu. Það er einnig mildlvægt að ítreka hlutverk stofnunarinnar í ýmsum verkefnum tengdum byggðarannsóknum og þróun. Þótt þessi hluti starfseminnar sé ekki ýkja sýnilegur þá er hann engu að síður afar mikilvægur fyrir fyrirtæki og einstaka landshluta. Það er því alveg ljóst að áfram verður mikil þörf fyrir stofnun sem sinnir þeint verkefnum sem Byggðastofnun er að fást við og mildlvægt að standa vörð unt starfsemi hennar." -Nú verður þú í baráttusæti hjá Framsókn í NV kjördæmi. Áttu von á hörðum slag og hvernig metur þú stöðu þíns flokks almennt? Já, ég á von á því að baráttan hér verði hörð. Vegna fólksfækk- unar flyst einn þingmaður úr þessu kjördæmi í Suðvestur kjördæmið, þar sem fólki hefúr fjölgað rnjög. Það verður því hart barist um þessi 9 þingsæti sem eftir verða hér. Ég met hins vegar stöðuna svo í þessu kjördæmi að Framsóknar- flokkurinn eigi alla möguleika á að ná tveimur þingmönnum og ég mun leggja mig alla ffam um að svo verði. Ég hef fundið fyrir mikJum stuðningi og tel að sóknarfærin séu fyrir hendi. Hvað varðar flokkinn á landsvísu, þá er öllurn ljóst að hann hefúr átt við talsverða erfiðleika að etja. Flokkurinn hefur verið í forystu fyrir mörg erfið mál í ríkisstjórnar- samstarfinu og virðist síður njóta þeirra framfara sem orðið hafa í samfélaginu en sam- starfsflokkurinn. Því er heldur ekki að le)na að við höfum átt við nokkurn innanbúðarvanda að etja. En flokkurinn stendur á gömlum merg og á ennþá brýnt erindi við þjóðina þótt hann sé orðinn 90 ára gamall. Ég hef því trú á því að flokkurinn muni koma sterkur út úr þeirri kosninga- baráttu og kosningum sem framundan eru. Það er athyglisvert að þótt svo flokk- urinn mælist með lágt fylgi í skoðanakönnunum, þá eru það mun fleiri, eða hátt í 40% þjóðarinnar, sent telur mikil- vægt að Framsóknarflokkurinn sé við stjórnvölinn. Andstæð- ingar flokksins eru duglegir að setja á hann ýmsa merkimiða og gefa honum ntiður góðar einkunnir. En hvað svo sem andstæðingar okkar segja, þá er Framsóknarflokkurinn fjTst og ffemst flokkur santvinnu, sátta og umbóta sem starfar á miðju hins pólitíska litrófs og hann hefúr átt ríkan þátt í sam- félagslegum ffamförum liðinna áratuga. Það er og verður þörf fyrir slíkan flokk í íslenskum stjórnmálum. -Hvernig eru jólin hjá ykkur fjölskyldunni? Hvað hafið þið á borðum og hvernig komið þið ykkur í réttu jólastemninguna? „F)TÍr utan þá helgi sent jólin tákna eru þau fyrir mér tími samvista við stórfjölskylduna og tækitæri til slökunar og af- þreyingar af ýmsu tagi. Það er yfirleitt hægur stígandi í jólastemningunni sem byrjar nteð aðventukaffi hjá mömmu. Svo eru ýmsar hefðir sem eru ómissandi, eins og laufa- brauðsgerðin hjá Margréti, skatan hjá mömmu á Þor- láksmessu og rauðkálið ffá Elínu - allt þetta og fleira til konta mannskapnum í réttu jólastemninguna sem nær hámarki þegar klukkan slær sex á aðfangadag. Jólamaturinn á mínum bæ er afar hefðbundinn, ham- borgarhryggur með öllu til- heyrandi og heimagerður ís í eftirrétt. Með þessu er að sjálfsögðu drukkið malt og appelsín í ómældu magni! Ég hef nokkrum sinnum reynt að brydda upp á nýjungum, eins og t.d. að bjóða upp á girni- legan forrétt, en er samstundis púuð niður með allar breyting- ar. Þegar búið er að ganga frá eftir matinn er það svo gott kaffi og heimagert nammi um leið og jólapakkarnir eru opnaðir. Áramótin eru líka skemmti- legur tími með fullt af hefðum. Þá korna systkini mín sem búa annars staðar á landinu gjarnan með sínar fjölskyldur. Ása María dóttir okkar Guðmundar á afmæli 1. janúar og við höldum upp á það með ntatarveislu fyrir alla fjöl- skylduna á gantlárskvöld. Jólin og áramótin eru ntér sem sagt atar ánægjulegur og urn leið friðsæll tími og ég vona að hann sé það einnig öllum lesendum Feykis. Með ósk um gleðileg jól og gæfúríkt komandi ár."

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.