Feykir - 02.08.2007, Blaðsíða 2
2 Feykir 29/2007
Vill útiloka setu forseta bæjarstjórna
Íbúahátíð í Húnavatnshreppi
Svínavatnsleið
Útilokar Valgarð
Á fundi bæjarráðs
Blönduóssbæjar þann 25.
júlí sl. lagði fulltrúi Á-lista
fram bókun þar sem hann
taldi útilokað að forseti
bæjarstjórnar
Blönduóssbæjar, Valgarður
Hilmarsson, geti gengt starf
framkvæmdastjóra
Héraðsnefndar A-Hún.
Sagði fulltrúinn í bókun
sinni að ef mark nrætti taka á
málflutningi þeim sem verið
hefði að undanförnu hjá
þeim sem mynda meirihluta
bæjarstjórnar Blönduóss
varðandi framtíðar
fyrirkomulag samstarfs
sveitarfélaga í Austur-
Húnavatnssýslu, gæti þetta
ekki gengið upp. Undir
bókunina skrifaði Valdimar
Guðmannsson. Eftir umræður
um stöðu og framtíð
Héraðsnefndar A-Hún er
ákveðið að fresta afgreiðslu til
næsta fundar bæjarstjórnar.
Leiðari
Geymum ekki hrósið oflengi
ÉÞað er stundum eins og við íslendingar séum feimin við
að sh-ifa eða tala vel umfólk nema aðþví gengnu. Þar á
hugtakið enginn veit hvað átt hefurfyrr en misst hefur vel
við. Þessa vikuna kveður Sauðárkróksbúa séra Guðbjörg
Jóhannesdóttir sem þjónað hefur við söfimðinn í níu ár.
Sjálfkynntist ég Guðbjörgu sumarið 2005 er hún gaf
okkur hjónin saman. Daginn fyrir athöfn hittumst við í
stofu tengdaforeldra minna og hún átti við okkur gott
samtal um ástina, lífið og tilveruna. Þar sem við búum í
saman hristrifjölskyldu ræddum viðþau mál og aldrei
þessu vant mættum viðfullkomnum skilningi og innsýn
í okkar aðstæður. Orð hennar til okkar daginn ejtir hittu
í mark og sitja eftir í minningunni. Aftur átti ég við hana
samskiptí í vetur þegar ættmóðir okkar hér á Krók kvaddi
þennan heim. Guðbjörg tókþeirri ákvörðun okkar um að
hafa börnin með íferlinu mjög vel og fræddiþau um lífið
og dauðann á þann hátt aðþau munu aldrei gleyma. Milli
hennarog þeirra varþetta alltsvo einfalt.
Guðbjörg er móðir, kona, skvísa, prestur og einstakur
persónuleiki og allt blandastþetta svofullkomlega
í einni og sömu manneskjunni. Mig langar að óska
henni velfarnaðar á nýjum vettvangi. Eins er gaman
að nýr sóknarprestur Sauðárkróksbúa ergæddur
sömu eiginleikum. Það kemurþví maður í manns stað
en Guðbjargar eigum við eftir að sakna engu að síður.
Boðskapur vikunnar er einfaldur. Geymum ekki til
morguns að látafólkið í okkar nánasta umhverfi vita hvers
virðiþað er okkur. Segjum það í dag á meðan allir eru hér
tíl þess að meðtaka.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 8982597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Utgelandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Bladstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson,
Ragnhildur Friðriksdóttir.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Askriftan/erð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Simi 455 7171
Umbrot og prcotun:
Nýprent ehf.
Ábæjarmessa á
sunnudaginn kemur
Hin árlega messa í
Ábæjarkirkju í Austurdal
verður n.k. sunnudag 5.
ágúst og hefst kl. 14:30.
Sóknarpresturinn sr. Ólafur
Þ. Hallgrímsson á Mælifelli,
þjónar fyrir altari og
prédikar.
Jón St. Gíslason og Kristín
Halla Bergsdóttir spila saman á
harmonikku og fiðlu, og
organisti verður Anna K.
Jónsdóttir. Tæknimaður verður
Hróbjartur Jónasson. Þau Jón
og Kristín spila einnig fyrir
almennum söng í kirkjukaífmu
heima á Merkigili, sem verður í
boði systkina Helga heitins
Jónssonar, síðasta ábúandans í
dalnum, eins og verið hefur s.l.
tíu ár.
Fjölmenni hefúr jafhan verið
við Ábæjarmessu síðasti árin og
kemur fólk víða að af landinu,
en sú siðvenja hefur viðhaldist
að messa þar einu sinni á
sumrin í meira en sextíu ár, nú
tvo síðustu áratugi alltaf um
verslunarmannahelgi.
Rétt er að benda fólld á að
ætla sér nægan tíma, því vegur
er seinfarinn í dalnum. Þeir sem
vilja, geta farið yfir á ldáfhum
við Skatastaði og gengið fram
að kirkju, en kláfurinn var
endurbættur í sumar.
Leikskólabygging á Blönduósi
Tæpar 5 milljónir
I aukaverk
Á fundi bæjarráðs Blönduóss
þann 25. júlí sl. var lagt fram
minnisblað frá bæjarstjóra
ásamt fylgigögnum vegna
fyrirsjáanlegra aukaverka við
viðbyggingu leikskólans
Barnabæjar.
Heildarupphæð vegna auka-
verka, ófyrirséðra framkvæmda
og verka sem ekld var gert ráð
fyrir í verksamningi er kr.
4.807.832,-. Eftir nriklar
umræður samþykkir bæjarráð
samhljóða fjárveitingu til
umræddra verkefira.
Sauðá, afurðahæsta fjárbú landsins
Gjöfult fjárbú
Búið á Sauðá á Vatnsnesi er
afurðahæsta fjárbú landsins
árið 2006 samkvæmt yfirliti
bændasamtaka íslands um
þau bú sem hafa 100 ær eða
fleiri á fóðrum.
Á Sauðá voru 356 ær sem
skiluð 38.2 kílóum af kjöti liver.
Lömb til nytja voru 195 eftir
lrverjar 100 ær. Þetta er að
sjálfsögðu frábær árangur lrjá
bændunum á Sauðá Aðalheiði
Jónsdóttur og Ellert
Gunnlaugssyni. Þess má geta að
veturgömlu ærnar skiluðu einnig
mjög góðum afurðum eða 25. 6
kílóum hver. Næsta bú hvað
afúrðir snertir var búið við
hliðina, Sauðadalsá, þar skiluðu
389 ær að jafiiaði 38 kílóum af
kjöti. Þar búa Heimir Ágústsson
og Þóra Þormóðsdóttir.
Þegar Ellert var spurður um
þessar góðu afúrðir sagði hann
að þar spiluðu nokkur atriði
saman. I fyrsta lagi hefði verið
mildl frjósemi, vanhöld á
lömbum hefðu verið tiltölulega
lítil og svo hefði vænleiki dilka
verið með liesta móti. Þar kæmi
til að mikill snjór var í fjöllum
vorið 2006 og því var að gróa í
fjallinu fram undir haust þannig
að fé hafði nýgræðing nánast allt
sumarið. Svo var haustið mjög
gott þannig að öll þessi atriði
hefðu komið saman og fært
þeim mestu afúrðir af búinu til
þessa. Það skal þó tekið ffarn að
Sauðárbúið hefúr um árabil
staðið mjög ffamarlega hvað
afúrðir fjárins varðar og var í
sjötta sæti árið áður með 35.5
kíló eftir hverja á. Ellert sagði að
þau hjón væru ekki ein með
búskapinn því börnin þeirra þrjú
væru öll mjög duglega að hjálpa
til t.d. um sauðburðinn og einnig
aðstoðaði bróðir Ellerts þau á
mestu álagstímunum. Þess má
að lokum geta að Bjarni Jónsson
á Hóli í Sæmundarhlíð var sjötti
í röðinni yfir afúrðahæstu búin
2006 með 35.2 Jdló eftir ána.
ÖÞ:
Óskynsam-
legtað
halda áfram
Skipulagsstofnun hefur
sent Náttúrustofu
Vestflarða bréf þar sem
ræddar eru tillögur aó
matsáætlun fyrir veg við
Svínavatni í
Húnavatnshreppi og
Blönduóssbæ.
Bréf þetta var lagt fram til
kynningar á fundi bæjarráðs
Blönduóssbæjar en þar
kemur fram að
Skipulagsstotnun dregur í
efa að skynsamlegt sé að
halda áfram undirbúningi
framkvæmdarinnar í ljósi
afstöðu sveitarfélaganna á
svæðinu.
Ingibjörg Sólrún ræðu-
maður Hólahátíðar
Glæsileg
Hólahátíð
framundan
Hólahátíð verður haldin
10. -12. ágúst
næstkomandi. Hátíðin
hefst á föstudagskvöldinu
meö málstofu um prentun
sem haldin verður í
Auðunarstofu.
Yfir helgina rekur síðan
hver atburðurinn annan og
er dagskráin öll hin
glæsilegasta. Herra Ólafur
Skúlason mun predika í
Hátíðarmessu á sunnudeg-
inum og að loknu liátíðar-
kaffi verður hátíðarsamkoma
í Hóladómkirkju þar sem
ræðunraður verður Ingibjörg
Sólrún Gísladóttur, utan-
ríkisráðherra
Íbúahátíð í
Húnavatnshreppi
íbúafjör
íbúar í Húnavatnshreppi
ætla að slá til íbúahátíðar í
Dalsmynni þann 11.
ágúst.
Hátíðin mun hefjast kl.
19.00 um kvöldið og mun
Húnavatnshreppur efna til
borðhalds um hálf níu um
lcvöldið og verður maturinn í
boði sveitafélagsins.