Feykir - 02.08.2007, Page 3
29/2007 Feykir 3
Snorri meö barnabarn sitt fyrir utan lllugastaði. Framundan er enn eina ferðina að týna
upp gler og laga skemmdir.
Illugastaðir á Þverárfjalli
Ófögur sjón
Eigendum lllugastaða við
Þverárfjallsveg hefur mætt
ófögur sjón með
reglubundnum hætti síðustu
þrjú sumur. Að sögn Snorra
Björns Sigurðssonar, eins
eigenda, er engu líkara en
að innan dyra hafi menn
hreinlega gengið
berserksgang.
Húsið sem er frá árunum á
milli 1920 - 30 er, þrátt íyrir að
líta ekki vel út að utan, í mjög
góðu ásigkomulagi. Hafa
eigendur ítrekað sett nýtt gler í
húsið og hafðist handa við að
koma sér þar upp athvarfi en
þeim draumum er rústað
jafnóðum.
-Við höfðum verið að taka
þetta í gegn svona í róleg-
heitunum en í hitti
tyrra var komið hér
inn og öll gler í glugg-
um hússins mölvuð.
Við héldum að þarna
væri um tilfallandi
atburð að ræða og
glerjuðum að nýjum
leik. hað gler fékk að
vera í friði í tvær vikur
og þá settum við hlera
fyTÍr hluta glugganna. I fyrra
var líka farið hér inn og núna í
sumar er engu líkara en einhver
hafi tiyllst hér innan dyra.
Handriði og annað lauslegt var
notað til þess að brjóta gler en
áður höfðu þeir notað borð og
stóla sem við áttum hér inni.
Þetta er ömurleg aðkoma og
lögreglan virðist ekkert geta
gert í málinu. Fari þessu ekki
að linna sjáum við okkur ekki
annað fært en að jafna húsið
við jörðu, segir Snorri.
Stundum hafa tæki til
fíkniefnaneyslu verið skilin
eftir á staðnum og ljóst að
einliverjir hafa gert sér húsið
að griðastað í óþökk eiganda
og húsaleiguna greiða hús-
brjótarnir með eyðileggingu.
Eins og sjá má hefur öllu verið rústað og þarna hafði
handriði verið notað til þess að brjóta rúðuna.
Sveitasæla 2007
Góðaðsókn
meðal sýnenda
Það stefnir í að landbúnaðarsýningin Sveitasæla 2007
sem haldin veróur í Reiðhöllinni á Svaðastöðum 17. -19.
agust verði su stærsta hi
Einar Kristinn Guðfinns-
son landbúnaðarráðherra
mun setja sýninguna með
ávarpi í setningarathöfn kl.
18:00 föstudaginn 17. ágúst.
Opnun-artímar hafa verið
ákveðnir 16-19 á föstudegi,
10-19 á laugardegi og 11-17 á
sunnudegi. Aðsókn fyrirtækja
til.
er góð og verða þau íleiri en í
fyrra. Fyrir utan þétta dagskrá
inni í höll verður ýmislegt að
gerast annarsstaðar, t.d. verður
opið hús í hátæknifjósinu í
Birkihlíð, hjá þeim Þresti og
Ragnheiði Láru, og Mjólkur-
samlag KS verður með
kynningu á laugardeginum.
Gott sumar á Hveravöllum__________
Útivistarperla á
hálendinu
Sigurður Skagfjörö, landvörður á Hveravöllum, segir að það
sem af er sumri hafi straumur feröamanna um svæðió verið
jafn og þéttur. Um 90% þeirra ferðamanna sem sækja
Hveravelli heim eru útlendingar.
Þegar blaðamann Feykis bar Sigurðar dvelja feðgarnir Ólafur
að garði höfðu þegarkomið 10 og Jón Arnar Ólafsson á
rútur þann daginn og var Hveravöllum en þeir feðgar sjá
jafnvel von á fleirum. Auk um að reka burt fé og hefur Jón
Arnar, sem er fimm ára, það
hlutverk að týna rusl á
svæðinu. -Það er eins og
fólk hugsi bara allt í einu
með sér að það nenni ekki
lengur að halda á því sem
það er með í höndunum og
hendir því þá bara frá sér. Þá
kem ég strax og safna því
saman og hendi því í ruslið,
segir Jón Arnar og lýsir
háttarlagi ferðamannanna
með tilþrifum og
fyrirlitningu.
Jón Arnar Ólafsson er upprennandi landvörður en hann fer
um svæðið og týnir rusl afmiklum móð.
Sigurður Skagfjörð, landvörður á Hveravöllum.
Landslagsráðgjöf á Noröurlandi
Við bjóðum þér ókeypis ráðgjöf landslagsarkitekts,
sem útfærir hugmyndir þínar.
PantaSu tíma í síma 585 5000
GÆÐAKERFI
www.bmvalla.is
V/Súluveg 600 Akureyri Sími: 585 5000 www.bmvalla.is
.. —
.«.. wm«*
\ I ■l \ r jj
HCITV t-T- . i , 1”' V , ||*. . , [ %, -ý
r i
1 1 ' ' 1 v v - vju, *" - S u