Feykir - 16.08.2007, Qupperneq 2
2 Feykir 30/2007
Hætta sokum ofanflóða konnuð a Kroknum
Unnið að hættumati
Á fundi Byggöarráðs Skagaflaröar sl. þriðjudag var lögö fram til
kynningar bréf frá Veðurstofu
ofanflóða í þéttbýli á íslandi.
í greinargerðinni kemur
m.a. fram að hluti byggðar á
Sauðárkróki þarfnist frekari
skoðunar. Því rnælir Veður-
stofan með því að unnið verði
formlegt hættumat íyrir
Sauðárkrók. Vinna við slíkt
hættumat er að fullu greidd af
ofanflóðasjóði.
-Svæðið sem um ræðir er
byggðin undir Nöfunum en
íslands varðandi hættu vegna
það er nauðsynlegt að það
komi fram að það er ekki verið
að tala unt neina hættu heldur
er einungis mælt með því að
matið fari fram, segir Gunnar
Bragi Sveinsson formaður
Byggðarráðs en byggðarráð
samþykkti að fela skipulags- og
byggingarnefnd að láta gera
matið.
Leiðari
Sameinaðir stöndum vér
Sundraðirfóllum vér. Eða varþað ekki eitthvað á
þessa leið?Alla vega datt mérþetta orðatiltæki í hug
þar sem ég sat á aðalfundi stofixfjáreigenda Sparisjóðs
Skagafiarðar sl. mánudag. Fundurinn sem stóð í tæpar
fimm klukkustundir gekk út á þrætur og ásakanir manna
sem þó virtustfljótt á litið stefna að sama markmiði.
Það erstyrkja starfsemi sparisjóðsins og koma honum i
reksti'arhæft horf. Ég verð að viðurkenna að ég skemmti
mér konunglega á fundinum og hafði ekki lítið gaman að
því aðJylgjast með mismunandi málstöðum. Þvíþeir voru
jú næstum því eins misjafnir og fundarmenn voru margir.
Það er alltofmikil einfóldum íþessu máli að tala um tvær
fylkingar og hjá sumum var um tilfinningamál að ræða.
Sumir gátu ekki hugsað sér að sameinast Siglfirðingum,
aðrir vildu ekki sjá aðild Kaupfélagsins og enn aðrir vildu
gæta þess að sjóðurinn yrði áfram í eigu Jjöldans og að i
þessu fyrirtæki yrði enginn inn öðrum stærri, eða ríkari.
Það var bara eittsem allir voru sammála um. í óbreyttu
ástandi getur sjóðurinn ekki starfað og í raun blæðir
honum hægt en örugglega út innan frá. Það er, innan
félags deilur hafa valdið því að ekki hefur verið hægt að
taka afskárið og plástra sárin. Niðurstaðafundarins
hefur verið kærð og í staðþess að komast að samkomulagi
um leiðir til bjargar mun sjóðurinn enn um sinn vera gísl
á átakasvæði eigenda sinna. Mikið vona ég að gíslinn lifi
það af og Sparisjóður Skagajjarðar dafni og blómstri á
nýjan leik. Um aðferðafræðina er mér nokk sama enda hef
ég ekki þekkinguna sem þarftil þess að reka sparisjóð. Það
eina sem ég veit að á við í tilfelli sparisjóðsins er hið gamla
orðatiltæki; sameinaðir stöndum vér, sundraðirfóllum vér
greinilega enn ífullu gildi. Annað orðatiltæki sem á vel við
íþessu tilfelli er margur verður afaurum api. Skyldu menn
deila svona hatramt efekki væru peningar í spilinu?
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 8982597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Utgelandi:
Nýprent eht
Borgarfiöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Sím i 455 7176
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson,
Ragnhildur Fríðriksdóttir.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Menningarfulltrúi Norðurlands vestra
Ingibergur ráðinn
Á fundi Menningarráðs Norðurlands vestra þann 1. ágúst
síðastliðinn var Ingibergur Guðmundsson ráðinn í starf
Menningarfulltrúa Norðurlands vestra. Alls sóttu 11 manns
um stöðuna.
Ingibergur lauk BA-prófi í
íslensku og sagnffæði frá Háskóla
íslands árið 1979 og B.ed prófi
ffá sarna skóla árið 1983. Þá
stundaði hann framhaldsnám í
stjómun við DPU í
Kaupmannahöfn árið 2003.
Ingibergur hefur starfað við
Höfðaskóla á Skagaströnd ffá
1983, fyrst sem kennari og
aðstoðarskólastjóri, og sem
skólastjóri á árunurn 1991 til
2005. Nú síðast starfaði hann
sem ffamkvæmdastjóri fisk-
ntarkaðarins Örva á Skaga-
strönd.
Ingibergur er kvæntur,
tveggja bama faðir og er búsettur
á Skagaströnd. Hann mun hefja
störf á næstu vikum og verður
starfsaðstaða hans á Skaga-
strönd.
Það er eitthvað við vélar sem breytir fullorðnum karlmönnum í litla stráka.
Landbúnaðarsýningin er um helgina
SveitaSæla 2007
Landbúnaðarsýning & Bændahátíð verður haldin á
Sauðárkróki þriðja árið í röð um helgina. Hún fer fram í
reiðhöllinni Svaðastöðum líkt og undanfarin ár, en sýningin
er skemmtilegur vettvangur bænda, afurðafyrirtækja og
þjónustuaðila við landbúnaðinn.
Á landbúnaðarsýningunni kynnast fjölbreytni íslensks
fá allir tækifæri til þess að landbúnaðar. Þar verður m.a.
risa vélasýning, húsdýra-
garður, sýning á landnám-
shænum, kálfum og hrútum,
smalahundasýning, og svona
mætti lengi halda áfram.
Matarkynningar verða
áberandi, svo hægt verður að
sntakka á afurðum frá
Matarkistunni Skagafirði og
Beint frá býli. Dansleikir verða
alla helgina á skemmtistöðum
á Sauðárkróki, auk þess sent
fjöldi annarra viðburða verða
í boði í nágrenni sýningar-
hallarinnar, svo ekki fer á milli
mála að Sauðárkrókur verður
fullur af fjöri um helgina.
Það er um að gera að koma
við í reiðhöllinni og skoða sig
urn á frábærri sýningu sem er
stútfull af nánast öllu sem
viðkemur landbúnaði.
Menntun
Skólinn að byrja
Nú fér að styttast í að
grunnskólar og
framhaldsskólar verði settir
að nýju og böm og unglingar
sökkvi sér ofan í bækumar.
Flestir skólar hefia kennslu í
fjórðu viku ágústmánaðar, en
sumir þó aöeins seinna.
Það verður Árskóli sem hefur
skólastarfið fyrstur grunnskóla
í Skagafirði, en hann verður
settur miðvikudaginn 22.
ágúst. Það verða um það bil
637 nemendur sem koma til
með að stunda grunnskólanám
1 fimm skólum í Skagafirði í
vetur, og þar af eru um 60
nemendur sent hefja nám í 1.
bekk. I Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra verða
nemendur í kring urn 420
talsins og þar af eru nýnemar
unt 100, en skólasetning FNV
fer fram sunnudaginn 26. ágúst
kl. 17.
Grunnskólinn á Blönduósi
og Höfðaskóli á Skagaströnd
verða heldur fyrr á ferðinni en
aðrir skólar, en samtals 234
krakkar rnunu mæta á
skólasetningu í þessum skólum
þann 20. ágúst. Að lokum er
það Grunnskóli Húnaþings
vestra, en þar á bæ verður
skólasetningin þann 24. ágúst
og munu 162 börn stunda þar
nám í vetur.
Landbúnaðar__________
Hey-og
komupp-
skera undir
meðallagi
Bændur hafa liöið fyrir
þurrkinn í sumar og er nú útlit
fyrir að heyforði verði í minna
lagi í vetur. Einnig hefur
rigningarskorturinn haft áhrif
á komrækt, en hún hefur
einnig veriö af skornum
skammti.
„Það er víða minni uppskera
utarlega, eins og á ströndinni og
úti á skaga”, segir Anna Margrét
Jónsdóttir, héraðsráðunautur
hjá Búnaðarsantbandi Austur-
Húnvatnssýslu. Frant til dala er
ástandið þokkalegt, en þó hvergi
eins gott og í fýrra. Bændur eru
víðast hvar að taka seinni
sláttinn urn þessar rnundir, en
það verður að teljast í seinna
lagi.
Er eitthvað að frétta?
Hafðu samband - Siminn er 455 7176