Feykir


Feykir - 16.08.2007, Blaðsíða 5

Feykir - 16.08.2007, Blaðsíða 5
30/2007 Feyklr 5 íþróttafréttír Golf Hvöt sigraði Tindastól Tindastóll2-5 Völsungur GSS með lið í svettakeppn- umGSI Golfklúbbur Sauðárkróks sendi bæði karla- og kvennasveit til keppni í sveitakeppnum GSÍ sem haldnar voru 10.-12. ágúst síðastliðinn. Karlasveitin keppti í 2. deild, en konurnar í 1. deild. Karlasveitin keppti á Hellu og höfnuðu þeir félagar í 5. sæti og halda því sæti sínu í annarri deildinni. Sveitin var skipuð þeirn Arnari Magnúsi Róbertssyni, Brynjari Erni Guðmundssyni, Guðjóni Gunnarssyni, Gunnlaugi Hafsteini Elsusyni, Halldóri Heiðari Halldórssyni, Jóhanni Erni Bjarkasyni og Sveini Gunnari Björnssyni. Konurnar kepptu hinsvegar á Akure>TÍ og enduðu í 7. sæti sent þýðir að þær munu leika í 2: deild að ári. 1 þeirri sveit voru þær Árný Lilja Árnadóttir, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Mar- grét Stefánsdóttir, Málífíður Haraldsdóttir, Sigríður Elín Þórðardóttir og Sólborg Hermundsdóttir. Frjálsar íþróttir_______ Norðuriands- leikar um helgina Frjálsíþróttaráð UMSS og frjálsíþróttadeild Tindastóls setja í sameiningu á laggirnar nýtt mót - Norðurlandsleika 2007 - á Sauðárkróki 18.- 19. ágúst. Mótið er íýrir alla aldurshópa. Keppt er í aldursflokkunum 8 ára og yngri, 9-10 ára, 11-12 ára, 13-14 ára og 15 ára og eldri. I elsta flokknum er keppt með “réttum” kastáhöldum eftir aldursflokkum. Aldursflokk- arnir 12 ára og yngri keppa á laugardegi, en 13 ára og eldri einnig á sunnudegi. I yngstu aldursflokkunum verður leikgleðin í fyrirrúmi. Allir þátttakendur 10 ára og yngri fá verðlaunapening, en í keppni 11 ára og eldri fá þrír fýrstu í hverri grein, verðlaunapening. Leika á toppnum Tap hjá stúlkunum Meistaraflokkar Tindastóls og Hvatar mættust í granna- slag á Blönduósi í fyrrakvöld. Lauk viðureign liðanna með sigri heimamanna 2-0. - Bæði liðin eru kornin í úrslitakeppnina en keppnin stendur uin hvort liðið nær efsta sætinu. Tindastóll er aðeins tveimur stigum á undan Hvöt þegar aðeins ein urnferð er eífir, Hvöt sækir Hvíta Riddarann heim, en Tindastóll fer í Borgarnes á laugardaginn. Tindastóll og Völsungur frá Húsavík áttust við á Sauðárkróksvelli 2. ágúst. Ekki fór betur en svo að heimastúlkur töpuðu leiknum með tveim mörkum gegn fimm, en staðan var þó jöfn 2-2 í fýrri hluta seinni hálfleiks. Þrátt fýrir erfiða stöðu, hættu Tindastólsstúlkur aldrei að berjast og var Vanda þjálfari ánægð með baráttuna í liðinu. Lokatölur: 2-5, Völsungi í vil. Húnaþing eystra Hafíssetur í Hillebrandtshúsi á Blönduósi Opið daglega frá kl. 11-17. Sími: 452 4848 - www.blonduos.is/halis Þingeyrakirkja - Klausturstofa Einstök steinkirkja og sögufrægir gripir. Opið daglega, 1. júni til 31. ágúst, frákl. 10-17. Leiðsögn gestum að kostnaðarlausu, kaffi til sölu í Klausturstofu. Húnaþing vestra - selir og saga Velkomin í heimsókn í sumar. Þjónusta og afþreying í vinalpnii nmhvfirfi Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar. Með krafta í kögglum! - sýning á myndum Halldórs Péturs- sonar listmálara við Grettissögu og Ár og kýr! - fjórir mánuðir af 365 kúamyndum Jóns Eiríkssonar bónda og listamans á Búrfelli verða í Blöndustöð í sumar. Heimíllsiðnaöarsafnlð — Textile Museum, Blönduósi Listrænn útsaumur, úrval íslenskra þjóðbúninga, ullarsýning, Halldórustofa, einkasýning Hildar Bjarnadóttur handhafa Sjónlistarverðlaunanna 2006. Opið daglega, 1. júní til 31. ágúst, frá kl. 10-17. Heimsækið Landsvirkjun í sumar. ^ Nánari upplýsingar á www.landsvirlgun.is og í síma 515 9000 C Landsvirkjun

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.