Feykir


Feykir - 16.08.2007, Blaðsíða 9

Feykir - 16.08.2007, Blaðsíða 9
30/2007 Feykir 9 (RABB-A-BABB } Nafn: Kári Kárason. Árgangur: 1967. Fjölskylduhagir: Giftur4 barna faðir. Starf / nám: Stöðvarstjóri íslandspósts á Blönduósi. Bifreið: Pajero. Hestöfl: Jesus..næsta spurning. Hvað er í deiglunni: Setja upp eldhúsinnréttingu. Hvernig hefurðu það? Bara geggjað. Hvernig nemandi varstu? Þögull, sat aftast. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Bauð fjölskyldunni á “funny people” kvikmynd, geggjað grín. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Skipstjóri á flutningaskipi. Hvað hræðistu mest? Kóngulær og kakkalakka. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? The Wall - Pink Floyd . Hvaða lag ertu líklegastur til að syngja í Kareókí? Fer eftir áfengisstigi, get útilokað Alone með Heart. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Leikjum með Arsenal. Besta bíómyndin? The Wall og eða Platoon. Bruce Willis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow? Bruce/ Angelina J. Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann? Nammi & snakk. Hvað er í morgunmatinn? Kaffi. Uppáhalds málsháttur? Skítur skeður. Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Wile E. Cayote. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? A la tekið til í ísskáp Pizza. Hver er uppáhalds bókin þín? Gauragangur vs Skræpótti fuglinn, get ekki gert upp á milli þeirra. Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... ...ífrönsku Alpana. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Óskipulag. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óskipulag. Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Arsenal því Kenny Sansom lék með þeim. Hvaða íþróttamanni / dómara hefurðu mestar mætur á? Bjarni Felix.. dýrka það þegar hann lýsir leikjum. Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? Hvorugt. Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þínu mati? Foreldrar mínir...ekki biðja mig um að gera upp á milli þeirra. Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Síma, sjónvarp og húsbónda- stól. Hvað er best í heimi? Sigurvíma. Kári Kára Egill Bjarnason á vaktinni. Eldri borgarar starfa á Minjasafhinu á Saudárkróki „Þetta er besta fólkið, það þarf ekki annað en að spyrja og þau vita allt” Ekki nóg með það að gestir Minjasafnsins á Sauðárkróki fái tækifæri til að fræðast um sögu Skagafjarðar og menningu fyrri tíma, heldur er sagan sögð af fólki sem þekkir vel til af eigin reynslu og upplifði jafnvel margt af því sem sagt er frá í safninu. Egill Bjarnason, Hulda Sigurbjörnsdóttir, Solveig Arnórsdóttir og Kristín Helgadóttir eru öll í félagi eldri borgara í Skagafirði. Það voru þau fjögur sem buðu sig frarn þegar Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri Byggðasafnsins, fór á fund þeirra og athugaði hvort áhugi væri meðal eldri borgara að starfa við gæslu og leiðsögn á minjasafninu. „Það er dýrmætt fyrir gesti að koma á safnið og hitta þar fólk sem getur sagt frá af eigin reynslu og þekkir vel til sögu Skagafjarðar, þau þekkja jafnvel til þeirra manna sem áttu verkstæðin sem við erurn nreð til sýnis”, segir Sigríður Sigurðardóttir, en hún er hæstánægð með þessa nýju starfskrafta og hrósar þeirn fýrir góða vinnu, „Þetta er besta fólkið, það þarf ekki annað en að sp)Tja og þau vita allt”. Öll tóku þau til starfa í júní, nema Solveig sem byrjaði nú í júlí. Þau vinna í 2-5 tíma í senn og dunda sér við handavinnu sína eða skriftir á meðan lítið er að gera. Þegar blaðamann Feykis bar að garði, var það Egill Bjarnason sem stóð vaktina. Hann var hinn hressasti og var ekki lengi að lauma nokkrunt fræðslubæklingum safiisins til blaðamanns. Að hans sögn er þetta finasta starf, en það felst í því að taka á móti gestum að veita þeim upplýsingar um safirið. Eftir heimsókn til Egils í Minjasafnið er ekki nokkur efi blaðamanns um það að þessir einstaklingar séu fullkomnir í þetta starf, enda eru þau full af fróðleik sem erfitt væri fýrir yngri kynslóðir að koma frá sér á sama hátt. Þú hefur alltaf góða ástæðu til að heimsækja Norðurland vestra! DÖFINNI 15. ágúst : Sauðárkrókur - Kaffi-Króks mótaröðin golfi. 18. ágúst : Skagafjörður 18. ágúst : Sauðárkrókur - Hlíðarkaupsmótið. Opið mót, Golfklúbbur Sauðárkróks, 17. -19. ágúst : Sauðárkrókur -SveitaSæla 2007 Landbúnaðarsýning í Reiðhöllinni 18. -19. ágúst : Sauðárkrókur - Norðurlandsleikar æskunnar, stórmót fyrir 18 ára og yngri. 19. ágúst : Hólar -Tónleikar kl. 14:00, Guðný Einarsdóttir leikurá orgel, Hólar. 19. ágúst : Sauðárkrókur - Knattspyrna mfl. kv. -1. deild, Tindastóll • Leiknir F. kl. 14:00, 22. ágúst : Sauðárkrókur Kaffi-Króks mótaröðin í golfi, Sauðárkrókur. 22. ágúst : Hólar Tónleikar kl. 14:00 Háskólakórinn Wiffenpoofs frá Yale í USA

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.