Feykir - 16.08.2007, Blaðsíða 11
30/2007 Feykir 11
Ivar og Elísa í vinnunni.
Vinna saman í sumar
ívar og Elísa eru
ánægo í vinnunni
Þau ívar Gylfason og Elísa Ósk Línadóttir hafa vakið nokkra
athygli hjá vistfólki Dvalarheimilisins á Sauðárkróki, en það
er ekki oft sem svona ungt kærustupar vinnur saman á stað
sem þessum. Krakkarnir, sem eru 18 og 19 ára gamlir, eru
búnir aó vera lengi saman, en þau vinna saman á Dvalar-
heimilinu í sumar og eru ábúendur þar einkar ánægðir með
þjónustu þeirra og dugnað. Blaðamaður leitaði turtildúfurnar
uppi og fékk að forvitnast örlítið um hvernig það sé fyrir
svona ungt par að vinna á sama stað.
Hvað eru þið búin að vera
lengi saman?
Við eruin búin að vera saman
í svona um það bil tvö og hálft
ár.
Hvaðan komið þið?
Elísa er frá Þingeyri og Ivar frá
Skagaströnd, en nú búum við
sarnan í Háuhlíðinni.
Hvernig kynntust þið?
Jii, það er nú ffekar flókið...
kynntumst í gegnum
sameiginlegan vin okkar. Sem
er frá Skagaströnd, afi hans og
annna eiga heima á Þingeyri.
Vorum bara góðir vinir til að
byrja með og svo þróaðist það
bara í samband.
Hvað kom til að þið fóruð
að vinna á Dvalarheimilinu
saman?
Við vorunt búin að skoða ýmsa
atvinnu og Elísa var búin að
sækja um í Landsbankanunr.
ívar var búin að vera svona
að pæla í þessu og ákvað að
sækja um á Dvalarheimilinu.
Svo fékk Elísa ekki vinnuna í
Landsbankanum og Ivari datt
þá í hug að hún rnundi sækja
um á Dvalarheimilinu líka. Við
vorum svo heppin að fá bæði
vinnu þar.
Hvernig líkar ykkur að vinna
þarna?
Það er frábært að vinna þarna
og þetta er mjög skemmtilegur
vinnustaður, yndislegt fólk bæði
starfsfólkið og vistmennirnir.
Við bara mælum eindregið
nteð því að allir prófi að vinna
þarna eitt sumar. Þetta er rnjög
þroskandi og við eruin búin að
læra mikið af þessu.
Er ekkert skrítið að vinna
saman? Jafnvel erfitt?
Við vinnum frekar lítið saman
og það kemur oft fjnir að við
erurn í nokkra daga á sitthvorri
vaktinni, þ.e.a.s. annað okkar á
morgunvakt og hitt á kvöldvakt.
Þá sjáumst við voða lítið yfir
daginn. Við sjáumst þá bara fyrir
8 á morgnana, aðeins klukkan 4
á vaktaskiptunum og svo ekki
fyrr en eftir miðnætti á kvöldin.
En það er ekkert erfitt við fáum
sömu fríhelgar og svoleiðis.
Hafið þið eitthvað tekið
eft ir aukinni athygli á
vinnustaðnum því þið eruð
par?
Já aðeins, en það er bara gaman
afþví. Það er alltafverið að spyrja
okkur hvort \'ið séum búin að
trúlofa okkur og hvenær við
ætlum að eignast börn og gifta
okkur o.s.fh'.
Er þetta eitthvað sem þið
stefnið að í framtíðinni
(þ.e.a.s. aðhlynningarstörf)?
Nei, við stefnum í allt aðrar áttir,
en þetta breytir samt áhuganum
á svona starfi helling hjá okkur
á jákvæðan hátt og við væruin
alveg til í að vinna áfratn við
eitthvað svona.
Hvað er framundan hjá
ykkur?
Skólinn. Við erum að fara í
smá frí úr vinnunni í nokkra
daga áður en skólinn byrjar.
Svo ætlum við að byrja í
skólanum í rólegheitunum og
vera svo að vinna aðra hvora
helgi og einhverja daga í viku
með skólanum. Erurn ekki
alveg tilbúin að hætta í þessari
frábæru vinnu strax.
ÚR ELDHÚSI LESENDA)
Uppskriftir frá Helgu og Daníel
Gulur og
gómsæiur
af Vatnsnesinu
Hjónin Daníel Karlsson og Helga Hreiðarsdóttir á
Hvammstanga, hafa nýverið eignast bát og fara
gjarnan út til veiða með Vatnsnesinu á lygnum
kvöldum, þeim til ómældrar ánægju. Sá guli
smakkast að sögn vel og er eldaður á ýmsa vegu,
allt eftir því hvernig kokkurinn er upplagður og hvað
finnst í ísskápnum. Þau hjónin skora á Kristínu
Eggertsdóttur og Geir Karlsson að koma með næstu
uppskriftir.
Forréttur
Tómatsúpa með eða
án sjávarfangs
1 - 2 hvítlauksrif
1-2 laukar
2 msk. smjör
Hvítvín eftir smekk
2 dósir hakkaðir tómatar
Rauður pipar
Fiskikraftur
Dill
Salt ogpipar
3 dl. rjómi
Sjávarfang eftir smekk
Látið lauk, hvítlauk,
fiskikraft og krydd krauma í
smjörinu í ca. 10 mín. Bætið
við tómötum og hvítvíni og
látið krauma. Að lokum
er bætt við rjóma, dilli og
sjávarfangi eftir smekk.
Aðalréttur
Húnvetnskur
þorskur í ofni
Ferskur þorskur úr
firðinum
Salt og pipar
1 dós rjómaostur ( gjarnan
hvítlauks- eða pipar-)
1 dós sýrður rjómi
1 eða 2 smátt saxaðir laukar
Dijon sinnep
2Egg
Þorskurinn er skorinn
í bita og settur í eldfast
fat. Kryddaður með salti
og pipar. Osturinn, sýrði
rjóminn, laukurinn,
sinnepið og eggin hrærð
saman og hellt yfir fiskinn.
Bakað í 20 - 30 mín.
Stökkir baconbitar og
púrrulaukssneiðar sett ofan
á síðustu mínúturnar.
Borið fram með nýjum
kartöflum úr garðinum og
fersku grænmeti.
Eftirréttur
Kladdkaka
með berjum
100 g. smjör
1 Vx dl. hveiti
4 msk. kakó
1 Vi tsk. vanillusykur
2egg
3 dl. sykur
Bræðið smjörið, blandið
sykrinum sarnan við
og því næst öllu hinu
hráefninu. Bakið í eldföstu
móti við 175 °C í 15 mín
( bökunartíminn fer eftir
hversu klístraða þú vilt hafa
kökuna, mörgum finnst
hún best senr blautust).
Þekið kökuna með berjum
eða ávöxtum og berið fram
volga með vanilluís eða
rjóma.