Feykir


Feykir - 16.08.2007, Blaðsíða 4

Feykir - 16.08.2007, Blaðsíða 4
4 Feykir 30/2007 Þórarínn Eymundsson er tvöfaldur heimsmeistari í hestaíþróttum Undraparið Þórarinn og Kraftur Undanfarin tvö sumur hefur Gangnamannafélag Austurdals staðið fyrir gönguferðum niður Austurdal. Um er að ræða þriggja daga ferðir þar sem fyrsta daginn er ekið upp í Grána með viðkomu í Laugafelli, annan daginn er gengið niður dalinn að Hildarseli og hinn þriðja að Skatastöðum, en þar er farið á kláfi yfir Jökulsá eystri. í lok ferðar er slakað á í heitu pottunum á Bakkaflöt. Það hefur mikið verið rætt um undrahestinn Kraft að undanförnu en blaðamanni Feykis finnst stundum hafa gleymst að koma inn á þátt Þórarins í þessari umræðu. Þáttur knapans er nefnilega síst minni en hestsins. Góður liestur blómstrar ekki án góðs knapa og góður knapi gæti allt eins verið fótgangandi sé hann illa ríðandi. Ég spyr Þórarinn hver sé galdurinn á bak við árangur þeirra félaga. -Listin, eða íþróttin því þetta er sambland af hvoru tveggja, liggur í því að þú þarft að þróa upp skilning milli manns og hests. Það er nrikið nákvæmnisverk á sarna tíma og það er líka mikil þolinmæðisvinna. Það þarf að byggja upp þennan skilning og bíða síðan eftir því að hesturinn búi yfir nægjanlega miklum andlegum og líkamlegum styrk til þess að geta framkvæmt það sem hann er beðinn um. Á sama tíma þarf knapinn að vera góður í því að stjórna hreyfingum sínum og hafa nrikla stjórn yfir sjálfúm sér almennt. Tilfinningin og sálfræðin á bak við það að skilja skepnuna spila þarna stórt hlutverk. Knapinn þarf að vera nærnur og finna það sem er að gerast í hestinum og bregðast við út frá því og þá skipta sekúndubrotin öllu máli í viðbragðsflýtinum. Reiðlistin snýst um tilfinningu, tímasetningu og síðast en ekki síst jafnvægi knapans. Leiðir Krafts og Þórarins lágu saman vorið 2003 en hestinn fann Þórarinn norður í Eyjafirði en hann var í eigu hjónanna á Bringu. Þá var Kraftur átta vetra og þá þegar fýrstu verðlauna kynbótahestur og þótti mikið efiii. -Við vorurn að leita að hæfileikaríkum hesti til þess að vinna með. Það er ekki nóg að knapi kunni til verka hafi hann ekki rétta efniviðinn til þess að vinna úr. Það má líka þessu við fiðluleik sértu með skrapatóls fiðlu nærði aldrei þessum fallega hljórni alveg sama hvað þú æfir þig mikið og hafir allt til brunns að bera, segir Þórarinn. Hvað var það við Kraft sem þú féllst fýrir? -Það var þessi kraftur sem ég sá í honum og útgeislun. Ég sá strax að hann hafði sérstakiega fallegt hreyfiupplag og ég fann líka að ef hann myndi nota þá rétt væri hægt að ná svo miklu meira út úr honunr en þegar hafði verið gert, svarar Þórarinn að bragði. Ári síðar eða árið 2004 fóru þeir félagar á Landsmót þar sem Kraftur var hæst dæmdi stóðhesturinn á Landsmóti það árið. -Það var auðvitað mikill sigur en það form er líka mun auðveldara en það sem við höfum síðan verið í. Þá fer keppnin fram á beinni braut og allt er miklu frjálslegra og auðveldara þó svo að auðvitað sé verið að meta hestinn og að sé honum illa riðið þá sést heldur enginn gæðingur á vellinum. Ári síðar eða árið 2005 fór ég síðan að máta hann í keppnir og það var ekki fýrr en árið 2006 að við sláum í gegn, ef svo rná að orði komast, nreð því að vinna Islandsmeistaratitil bæði í tölti og fimmgangi sem er nrjög óalgeng blanda og hafði ekki verið gert áður. I íþróttakeppni eins og keppt er í á íslands- og heimsmeistaramótum er krafa um mikla nákvæmni, réttar stillingar og góða reiðmennsku. Knapinn fær líka bara eitt tækifæri. Tilfinningaþrunginn dagur Hestur sem fer erlendis á heimsmeistaramót má ekki snúa aftur til síns heinta og því getur það verið erfið ákvörðun fýrir eigendur og knapa hestsins að stíga það skref. Það er því ekki hægt annað en spyrja Þórarinn hvort þetta hafi alltaf verið stefiian. -Ég held að maður hafi alltafverið að hugsa um þetta og haft þetta á bak við eyrað þannig að kannski má segja að ég hafi fýrir löngu byrjað að stefna að þessu án þess að vita það sjálfúr. Ég vissi líka sem var að það þarf margt að gerast áður en maður fer alla leið með hestinn og það þýðir ekkert að ætla sér að byrja með hest vikum eða mánuðum fyrir mót. Heldur þarf maður að undirbúa hestinn og þjálfa og sjá síðan hvað gerist. Kraftur er 12 vetra og á Þórarinn meðal annars einn þriggja vetra fola undan honum sem lofar góðu og er hreyfingafallegur. -Það verður spennandi að byrja á honum. Sjálfúir á ég ekki nógu nrikið undan honum en ætli hafi ekki kornið allt í allt milli 30 og 50 afkvæmi á ári síðustu árin og af þeim eigum við of fá. Hann hefur verið í keppnunr langt ffam á sumur og því hefúr ekki gefist mikill tími til þess að halda undir hann hryssum. En það fæðast nokkur í minni eigu undan honum næsta vor og það verður gaman að sjá þá efniviði framtíðarinnar. Kraftur var síðan seldur fyTrihluta sunrars til fjölskyldu sem býr í námunda við Gautaborg. Segist Þórarinn hafa spurst nrikið fyrir um fjölskylduna og komist að þeirri niðurstöðu að þarna væri á ferðinni gæða fólk. Enda hefði Kraftur ekki verið seldur hverjum sém er og ekkert endilega hæstbjóðenda. Söluverðið fæst ekki uppgefið. Hvernig var að kveðja Kraft? -Það var mjög erfið lífsreynsla og með því erfiðara sem ég hef gert. Þettavartilfinningaþrungin dagur, mikil gleði að ná þessum titlum en á móti blandast eftirsjá og ákveðin sorg yfir að sjá á baki hestinum. Þessi dagurvar algjör tilfinningarússíbani. Þarf að passa sig að brenna ekki út Þórarinn mun halda áfram að kenna á Hólum í vetur en hefur nrinkað við sig sökum anna auk þesssemeiginkonahansSigríður Gunnarsdóttir, er nýskipaður sóknarprestur á Sauðárkróki. En skyldi vera hægt að lifa góðu lífi á hestamennskunni? -Já það er hægt og er það mikið til að koma núna hin síðari ár. Atvinnugreinin er frjáls og opin þannig að markaðslögmálin ráða ríkjum, þeir hæfustu lifa af. Góð hross kosta frá nokkrum miljónum upp í íbúðarverð þannig að eigendur eru tilbúnir að leggja í mikinn kostnað í tamningu til að skapa þessi verðmæti. Jafnframt er reiðmennska gríðarlega flókin þannig að ekki nóg að vera bara duglegur að æfa það þarf að æfa rétt og þess vegna er mikil eftirspurn eftir góðum reiðkennurum. Ef maður getur boðið upp á úrvals þjónustu bæði hvað varðar tamningu og reiðkennslu þá getur nraður að verðlagt sig hátt. Reiðkennsla er mjög sérhæfð þjónusta sem er hægt að fá góðan pening fyrir. Ég gæti hæglega verið að kenna allar helgar og unr allan heim ef ég vildi en ég geri ekki mikið af því og þarf að passa mig á því að kunna að segja nei því annars brennir maður sig alveg út. Ertu komin með arftaka Krafts í sigti? -Nei, ekki enn sem komið er. Ég verð nú samt með góðan hest í vetur, Tind frá Varmalæk þannig að ég verð alls ekki fótgangandi enda er það ómögulegt. Það tekur mörg ár að þróa góðan efnivið þannig að hann eigi möguleika á því að verða bestur í heimi. Við Kraftur höfum verið að 2 tíma á dag fimrn daga vikunnar og rétt fýrir keppnir höfum við verið lengur að. Nú hef ég fengið nýjan dansfélaga og við þurfúm að finna taktinn áður en við getum náð árangri, svarar Þórarinn brosandi að lokum. Þórarinn og Kraftur á sigurstundu. Mynd: Fjölnir Þorgeirsson.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.