Feykir - 06.09.2007, Side 2
2 Feyklr 33/2007
Þingeyrahátið 2007
Tónverk verður frumflutt
Boöió verður til mikillar hátíöar á Þingeyrum í Austur-
Húnavatnssýslu sunnudaginn 9. september nk. og hefst
hátíðin kl. 14.00
Þá verða 130 ár liðin frá
vígslu Þingeyrakirkju, einnar
elstu og merkustu steinkirkju
landsins. Þingeyraklaustur var
áður ein merkasta trúar- og
menningarmiðstöð landsins,
þar sem m.a. Arngrímur
Brandsson ábóti á 14. öld ritaði
sögu Guðmundar biskups góða
Arasonar. Arngrímur Brands-
son er jafnframt íyrsti nafn-
greindi Islendingurinn, sem
smíðaði organum og flutti með
sér frá Niðarósi.
Jón Hlöðver Áskelsson,
tónskáld, átti hugmyndina að
þessari hátíð og hefur með hjálp
og stuðningi margra góðra
manna undirbúið hana.
Dagskráin hefst með hátíð-
arguðsþjónustu kl. 14:00, þar
sem vígslubiskupinn á Hólurn,
herra Jón Aðalsteinn Baldvins-
son prédikar, og mun hann
ásamt Sr. Sveinbirni R. Einars-
syni, sóknarpresti, þjóna fyrir
altari. Orgelleik við guðsþjón-
ustuna annast Hörður Áskels-
son, söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar og Hymnodia,
kammerkór Akureyrarkirkju,
syngur undirstjórn Eyþórs Inga
Jónssonar. Boðið verður upp á
fínt kirkjukaffi í Klausturstofu,
hinu nýja safnaðarheimili Þing-
eyrakirkju.
Klukkan 16 hefjast svo tón-
leikar í kirkjunni nreð fyrr-
greindu flytjendum, þar sem
frumflutt verða tvö tónverk eftir
Jón Hlöðver Áskelsson, senr
samin hafa verið af þessu tilefni.
Flytjendur á tónleikum verða:
Hymnodia, Kantmerkór Akur-
eyrarkirkju, undir stjórn Eyþórs
Inga Jónssonar, Hrafnkell Orri
Egilsson á selló og Hörður
Áskelsson á orgel.
Leiðari
Fáum skattinn heim í hérað
Ég sá í Mogganum um helgina aðfjármálaráðuneytið er
að auglýsa stöðu skattstjóra á Norðurlandi vestra. Mér
hefurþótt skrítið að þurfa að sækja þjónustu skattstofii
yfir í annað kjördæmi og velti því hér með upp hvort
nú sé ekki lag á því aðflytja skrifstofu Skattstjóra í
sitt heimakjördæmi. Að sjálfsögðu þarfþá að bæta
Siglfirðingum það upp en ég er nokkuð viss um að
skrifstofan þargæti áfram nýstsem úrvinnslustofafyrir
blessaðan skattinn. Þarna held ég að sé komið verðugt
verkefnifyrir sveitastjórnarmenn og skora ég hér
með á þá að taka upp símtólið og hringja íÁrna Matt
og félaga ífjármálaráðuneytinu. Annars engu líkara
en að Siglufjörður sé hálftýndur í henni veröldþessa
dagana. Hann tilheyrir Norðurlandi eystra í kjördæmi,
tilheyrir SSNV í sveitastjórnarmálum og þar situr
Skattstjórinn fyrir Norðurland vestra en býr engu að
síður íNorðurlandskjördæmi eystra. Ég held að þarna sé
komið verkefni fyrir ráðuneytiskallana aðfinna út úrþvi
í eittskiptifyrir öll hvaða landshluta Siglfirðingar eiga að
tilheyra. En þetta er nú bara mín skoðun.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 8982597
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Oagbjartsson.
Bitstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Sími 455 7176
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson,
Ragnhildur Friðriksdóttir.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluvcrð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Simi 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Blönduósbær
Sumarfríi Barnabæjar
breytt
Á fundi fræöslunefndar Blönduósbæjar á dögunum lagöi
Jóhanna G. Jónasdóttir, leikskólastjóri Barnabæjar, fram
tillögu aó fyrirkomulagi opnunartíma sumarió 2008.
Hingað til hefúr leikskólinn tillaga þess efnis að gerð verði
lokað í einn mánuð á hverju könnun á meðal foreldra hvenær
sumri en nú er komin fram flestir verða í fríi og miðist
lokunin við það tímabil.
Könnunin verði gerð fyrir f.
tébrúar 2008.
Leikskólabörnum verður skylt
að taka minnst 4 vikur í ffí en
leikskólinn verður einungis
lokaður í tvær og verða börnin
þá að taka frí fyrir eða effir þá
lokun. Þetta fyrirkomulag á að
reyna til reynslu í eitt ár en síðan
verður það endurskoðað og
framhaldið ákveðið.
Sláturhús KS
Sláturhúsréttin gjörbreytt
eftir endurnýjun
Eymundur Jóhannsson réttarstjóri og Pétur Friðjónsson markaðsstjóri landbúnaðars-
viðs KS sýndu Ijósmyndara endurbæturnar á réttinni. Mynd ÖÞ:
Lokiö er miklum breytingum á fjárréttinni í sláturhúsi KS
á Sauóárkróki. Endurbæturnar byrjuðu í raun á síðasta
ári þegar vesturhlutinn var tekinn í gegn. Á þessu ári
hefur svo verió unniö við austari hlutann og má í raun
segja aó hann hafi verið endurbyggöur.
Réttin varstálgrindabygging blásnir en að öðru leiti látnir
og voru stálbogarnir sand- halda sér. Hinsvegar voru öll
langbönd í þaki og veggjum
sett ný sent og járnklæðning á
veggjum og þaki. Verktaki við
þennan verkþátt var Friðrik
Jónsson ehf. Þá var gólfið
hækkað upp um þrjá metra og
er það nú nánast í sömu hæð
og vestari hlutinn. Sett var ný
innrétting úr galvaníseruðu
járni í réttina en gólfrimlar eru
úr plasti. Innréttingin var key'pt
frá Bretlandi og komu menn
þaðan og settu hana upp.
Við þetta stækkar réttin
nokkuð og mun nú rúma um
3.500 fjár. Má segja að þarna sé
um hreina byltingu á húsinu að
ræða og öll aðstaða gjörbreytt
frá því sem áður var. Samfelld
sauðfjárslátrun í húsinu hófst
mánudaginn 3. september.
frístundastarfbarna sinna.
Réttardagar í Húnavatnssýslunum báðum
Réttafjör framundan
Á Húnahorninu kemur fram aó nú styttist í réttir og aó
almenningur sé farinn aó svipast um eftir fréttum af
réttum. Samkvæmt upplýsingum af vef Bændasamtaka
íslands www.bondi.is þá veróur réttaö í 11 fjárréttum og
4 stóóréttum í Húnavatnssýslunum báóum.
Undirfellsrétt í Vatnsdal
ríður á vaðið þann 7.
september og síðan er réttað
daginn eftir í Auðkúlurétt við
Svínavatn, Hrútatungurétt í
Hrútafirði, Miðfjarðarrétt í
Miðfirði, Stafnsrétt í Svartár-
dal, Valdarásrétt í Víðidal og
Víðidalstungurétt í Víðidal.
Þann 9. september verður
síðan réttað í Skrapatungurétt
í Vindhælishreppi og Hlíðar-
rétt í Bólstaðarhlíðarhreppi.
Þá taka menn sér viku frí
en þann 15. september rétta
menníHamarsréttáVatnsnesi
og Þverárrétt í Vesturhópi.
Stóðréttir verða þann 16.
september í Skrapatungurétt í
Vindhælishreppi og í Hlíðar-
rétt í Bólstaðarhlíðarhreppi,
Þverárrétt í Vesturhópi réttar
29. september og Víðidals-
tungurétt í Víðidal réttar 6.
október.
Heimild Húni.is
Húnaþing vestra
Starfs-
hópur
skipaður
Á fundi sveitarstjórnar
Húnaþings vestra þann
29. ágúst sl. var
samþykkt að skipa í
starfshóp sem fara á yfir
tillögur aó hönnun
vióbyggingar vió
húsnæði Grunnskóla
Húnaþings vestra á
Hvammstanga.
Skólastjóri Grunnskóla
Húnaþings vestra mun verða
formaður starfshópsins og er
honum falið að kalla
starfshópinn saman.
Starfshópurinn skal gera
tillögu til sveitarstjórnar um
nánari útfærslu hönnunar
viðbyggingarinnar og skal
skila fyrstu tillögu sinni til
sveitarstjórnar fyTÍr 1.
desember nk.“