Feykir - 20.09.2007, Side 2
2 Feyklr 35/2007
Fornverkaskólinn
Mikill áhugi
I síðustu viku lauk torfhleðslunámskeiði Fornverkaskólans
en námskeiðið sóttu að þessu sinni átta nemendur.
Námskeiðið stóð í rúma
viku og innan þess tíma eða
dagana 8. - 9. september var
einnig haldið trégrindarnám-
skeið á vegum skólans. Var það
námskeið einnig vel sótt en þar
voru 7 nemendur. Kennarar
voru Helgi Sigurðsson torf- og
grjóthleðslumeistari og Bragi
Skúlason trésmíðameistari.
Bæði námskeiðin fóru fram á
Tyrfingsstöðumþarsem Bryndís
Zoéga skráði og myndaði allt
sem fram fór, en byggðasafnið
heldur utan urn heimilda-
skráningu á námskeiðunum
Bíó á nýjan leik
Textavélin komin
Biounnendur a Norðurlandi vestra geta nú tekið gleði sína
á ný því þessa dagana er verið að leggja lokahönd á nýtt
Dolby digitalkerfi í Bifröst, bíóhúsi Sauðkrækinga.
Lengi hefur verið beðið eftir
svokallaðri textavél en um
langt skeið hefur ekki verið
hægt að sýna textaðar myndir
í bíóinu.
Að sögn Sigurbjörns
Björnssonar, bíóstjóra, verður
tækið komið í lag í lok
vikunnar og sé þá ekkert til
fyrirstöðu að fara að sýna bíó.
Sigurbjörn segir að margar
skemmtilegar myndir bíði nú
sýningar og lofar góðunr
kvikmyndavetri í Bifröst.
Blönduóskirkja
Nytt orgel a leiðinni
Þann 12. september sl. samdi sóknarnefnd Blönduóskirkju
um kaup á pípuorgeli smíðuðu af Björgvini Tómassyni
orgelsmið. Kaupverðið er 29.133.000 kr. sem greiðist á
smíðatíma orgelsins sem er um tvö ár.
Orgelið er 20 radda með
tveimur hljómborðum og
pedal. I>að verður smíðað úr eik
og með samsvarandi lit og áferð
og bekkir og altari kirkjunnar.
Kaupþing á Blönduósi hefur
nú þegar veitt söfnuðinum
framlag upp á 3 milljónir króna
en í orgelsjóð var þegar komin
sama upphæð. Þá er gert ráð
fyrir að sala á núverandi orgeli
skili sömu upphæð. Þá hafa
kvenfélagskonur í Vöku safnað
1.5 milljónum króna. Nýlega
barst söfhuninni síðan peninga-
gjöf í minningu hjónanna
Gríms Gíslasonar og Sesselju
Svavarsdóttur ffá börnum
þeirra Sigrúnu, Katrínu og Gísla
að upphæð kr. 500.000,- ásanrt
kr. 1.000.000,- frá fýrirtækjum
Gísla og Höllu. Þá hafa fleiri
aðilar ljáð máls á því að leggja
söfnuninni lið.
Allir sem vilja leggja
málefninu lið geta snúið sér til
sóknarprests, sóknarnefndar,
eða til Kaupþings á Blönduósi.
Leiðari
Teskeiðfrá ríkinu
Ekki þykir mér hún stór sneiðin sem ríkisstjóiriin réttir
okkur íbúum á Norðurlandi vestra afmótvægisköku þeirri
sem hin annars ágæta stjórn hefur bakað. 1,8% afkökunni
kom í okkar hlutog þykir ekki mikið. Hún amma mín
myndi segja að þetta dygði ekki upp í nös á ketti. Sjálfvelti
ég þvífyrir mér hvort sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi
vestra OLLUséu svo uppteknir afeigin hrepparíg og
innansveitarpólitík að þeir hljóti ekki náðfyiir augum
stjórnvalda því eins og ég hefáður sagt; sameinaðir
stöndum vér, sundraðir föllum vér. Er ekki tímabært að
samstilla strengi okkar íbúa á Norðurlandi vestra og
krefjastþeirrar sneiðar afkökunni sem sannarlega ætti að
vera okkar? Vestfirðingar stóðu saman og þeirra sneið er
væn, sæt og góð. Við getum vel unaðþeim þess en eigum
við ekki líka skilið aðfá væna, sæta og góða sneiðfrá
ríkisheimilinu? Maður spyr sig.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 898 2597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Feykir
Úlgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt I Sauöárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Bladstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
Óiafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Askriftarverð:
275 krónurhvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Húnaþing vestra
Skúli í stjórn
Byggðarráð Húnaþings vestra samþykkti á síðasta fundi
sínum að tilnefna Skúla Þórðarson sveitarstjóra, í stjórn
félags sem hefur það hlutverk að markaðssetja húseignir
Laugarbakkaskóla.
Auk Skúla eiga sæti í
nefhdinnifúlltrúarffáSparisjóði
Húnaþings og Stranda og Saga
Capital fjárfestingabanka.
Á sama fundi voru lögð ffam
gögn frá Hestamannafélaginu
Þyt um byggingu reiðhallar á
Hvammstanga.Varsveitarstjóra
falið að greiða félaginu fyrsta
hluta fjárffamlagsins sem getið
er um í samkomulaginu kr.
4.000.000.
Aftur til fortíðar
Vegfarendur hafa tekið eftir þvi að mikið stendur til við elsta
hús Sauðárkróks sem stendur við Lindargötu. Þessa dagana
er unnið að því að endurbyggja húsið í upprunalegri mynd.
Það eru þeir Hólmsteinn
Snædal og Vésteinn Finnsson
sem vinna að endurbótunum
og njóta þeir liðsinnis
eigandans, Lúðvíks
Friðbergssonar. Ætlunin er á
næstu fjórum vikurn að klæða
húsið eins og það var gert í
upphafi. V erður það klætt með
svokallaðri listasúð sem eru 8
tommu breið borð og eru
strikaðir listar settir ytir
samskeytin. Ekki verður skipt
urn þak að svo stöddu.
Blönduós
Bæjartorg
er nafnið
Húnahornið segir frá
því að bæjarstjórn
Blönduósbæjar hafi á
síðasta fundi sínum
ákveðið nafn á torgið við
félagsheimilið og
Samkaup.
21 tillaga að naffii barst
eftir að efnt hafði verið til
hugmyndasamkeppni og
fánnst bæjarstjórn það ffemur
dræm þátttaka. Voru þessar
tillögur frá 33 aðilum.
Bæjarstjórn samþvkkti
samhljóða að torgið skuli
heita Bæjartorg.
Húnaþing vestra
Faraá
fund
Alþingis
Á síðasta fundi
Byggðarráðs Húnaþings
vestra var farið yfir ýmis
mál og áherslur sem
ræða á við fulltrúa
fjárlaganefndar Alþingis.
Fulltrúar byggðarráðs eiga
fund með fjárlaganefnd þann
28. september næst komandi
og á þeim fundi er ætlunin að
ræða málefni Húnaþings
vestra svo sem atvinnumál,
samgöngumál, fjarskiptamál,
menntamál og fjármál
sveitarfélaga.
Teikningar af
sundlaug kynntar
Komin
á teikni-
borðið
Á heimasíðu
Blönduósbæjar má nú
finna kynningarefni
vegna byggingar nýrrar
sundlaugar.
Teikningarnar eru
teiknaðar af Stoð ehf.
verkffæðistofu. Tillögurnar
hafa verið kynntar í
bæjarstjórn en afgreiðslu á
þeim var vísað til síðari
umræðu. Segja má að nú sé
draumur Blönduósbúa og
betri sundlaug komin skrefi
nær enda má nú nreð sanni
nota frasann að sundlaugin sé
komin á teikniborðið.