Feykir - 20.09.2007, Blaðsíða 4
4 Feyklr 35/2007
Hvammstangi
Góð aðsókn að Sela-
setrinu í sumar
Þærstóðu vaktina í Selasetrinu í sumar.Frá vinstri MargrétSól Thorlacius.Hrafhildur Ýr
og Margrét Helga Aðalsteinsdóttir. mynd ÖÞ:
Um 4.200 manns komu í
Selasetur íslands á
Hvammstanga í sumar.
Að sögn Hrafnhildar Ýrar
Vígl u ndsdóttu r er þetta liðlega
60% aukning frá sumrinu á
undan, en þá hóf Selasetrið
starfsemi sína í lok júní.
Selasetrinu var lokað þann
15. þessa mánaðar en það
verður þó opnað ef fólk hringir
á undansér. Hrafnhildursagði
að aðsókn hefði verið að
jafnaði 40-50 nranns á dag á
tímabilinu frá miðjum júní
fram í miðjan ágúst.
í sumar var uppi í
Selasetrinu sýning sem
áhugahópur sem kallar sig
Selínur stóð fyrir og vakti hún
verðskuldaða athygli.
ÖÞ:
Er eitthvað að frétta?
Feykir Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Guðmundur Haukur Sigurðsson skrifar
Stórfurðulegar
Feykisfréttir af
heilbrigðismálum
Af forsíðufrétt í
síðasta tölublaði
Feykis má helst ráða
að íbúar Húnaþings
vestra séu alfarið án
heilbrigðisþjónustu í
heimabyggð því fyrirsögnin
er. “Sækja læknisþjónustu
á Vesturland” “Frá
Blönduósi á Akranesi”.
Til upplýsingar fyrir
lesendur og misáreiðanlega
heimildarmenn blaðsins
beggja vegna Þverárfjalls vil
ég koma eftirfarandi stað-
reyndunr á framfæri.
Á Hvammstanga hafa
verið búsettir læknar á aðra
öld eða frá árinu 1905. Á
Hvammstanga er nú rekin
heilbrigðisstofnun nreð vel
búinni heilsugæslustöð og
sjúkrahúsi með 27 rúmum og
eru 3 þeirra rými sem ætluð
eru þeim sem dvelja í skemmri
tíma til lækninga. Starfssvæði
stofnunarinnar er Húnaþing
vestra og Bæjarhreppur í
Strandasýslu.
Stofnunin hefur á að
skipa hæfu og vel mennt-
uðu starfsfólki m.a. tveimur
menntuðum heimilislækn-
um. Þeir sem sækja sér-
fræðiþjónustu utan heima-
byggðar leita hennar aðallega
á Akranesi, í Reykjavík eða á
Akureyri.
Frá Hvammstanga.
Þá er ég komin að því
sem var víst rót fréttarinnar í
síðasta Feyki. Heilbrigðis- og
tr)'gginganrálaráðherra gaf
þann 30. ágúst s.l. út reglugerð
um skiptingu landsins
í 7 heilbrigðisumdæmi.
Þar er Húnaþing vestra
ásarnt Bæjarhreppi látið
fylgja Heilbrigðisumdæmi
Vesturlands, en Austur-
Húnavatnssýsla og Skaga-
fjörður Heilbrigðisumdæmi
Norðurlands.
Að mínu viti er þessi skipt-
ing í samræmi við þær hefðir
sem skapast hafa um sókn
eftir þeirri þjónustu sem ekki
er unnt að veita í heimabyggð.
Vestur-Húnvetningar leita
til Akraness, en þeir sem búa
austan við okkur leita mest
til Akureyrar. Ég tel að íbúar
hvers heilbrigðisumdæmis
eigi að eiga aðgang að
deildaskiptu sjúkrahúsi á sínu
svæði en því er ekki til að
dreifa á Norðurlandi vestra.
íbúar Húnaþings vestra hafa
ekki sótt heilbrigðisþjónustu
senr neinu nemur á Blönduós,
enda ekki boðið upp á frekari
þjónustu þar heldur en á
Hvammstanga og svipaða
sögu rná reyndar einnig segja
um Sauðárkrók.
Mér finnast undarlegar
skoðanir ýmissa sveitarstjórn-
armanna í A-Hún og Skaga-
firði, en þeir virðast telja
að Vestur-Húnvetningar
séu að segja sig úr lögum
við þá með því að sækja
heilbrigðisþjónustu þangað
sem hana er að fá og þangað
sem hún hefur verið sótt
um áraraðir. Ég hefði skilið
upphlaupið ef við hefðum
.sagt okkur frá þátttöku
í Fjölbrautaskólanum á
Sauðárkróki eða afneitað
Blönduóslöggunni.
Ég tek hatt minn ofan
fýrir heilbrigðisráðherra
sem þorir að taka hagsmuni
þeirra sem njóta eiga heil-
brigðisþjónustunnar fram
yfir skoðanir þröngsýnna
hreppapólitíkusa.
Með von unr vandaðri
fréttaflutning og miklar fram-
farir á Norðurlandi vestra.
Guðmundur Haukur
Sigurðsson
fratnkvcemdastjóri
Heilbrigðisstofnunar
Hvammstanga
Frá ritstjóra Feykis
Vegna fréttar í
síðustu viku
Ritstjóra Feykis þykir
það leiðinlegt ef að með
einhverju móti hafi mátt
lesa það út úr forsíðufrétt
blaðsins fyrir viku
síðan að ekki væri um
læknisþjónustu að ræða á
Hvammstanga
Hafi fréttin verið villandi
leiðréttist það hér með.
Hins vegar stendur ritstjóri
við þann hluta fréttarinnar
sem snýr að miklum titringi
innan SSNV sökum málsins.
f sumar var unnið að því að
stofna sér heilhrigðisumdæmi
Norðurlands vestra og stóð
þá til að efla sjúkrahúsin á
Blönduósi annars vegar og á
Sauðárkróki hins vegar. Hefðu
þá íbúar Húnaþings vestra
í einhverjum tilfellum sótt
læknisþjónustu sína þangað í
stað þess að fara á Akranes líkt
og þeir gera héðan í frá. Á fundi
SSNV á dögunum, sem ritstjóri
Feykis sat, tókust þau Gunnar
Bragi Sveinsson og Elín Líndal
á um rnálið og vildi Gunnar
Bragi meina að með þessari
aðgerð, það er að óska eftir því
með óyggjandi hætti að tilheyra
Vesturlandsumdæmi, hefði
Húnaþing vestra stigið fýrsta
skrefið út úr samstarfi sínu
innan SSNV. Þessu mótmælti
Elín harðlega og sagði að hér
væri aðeins um það að ræða að
íbúar í Húnaþingi vestra vildi
sækja þjónustu á sjúkrahús
sem hefði upp á sólarhrings
skurðlæknaþjónustu að bjóða.
Sagði hún að Húnaþing vestra
inyndi hér eftir sem hingað til
starfa heilshugar innan SSNV.
Að öðru leiti stendur
ritstjóri við frétt sína.
(ÁSKORENDAPENNINN )
Ólafur Atli Sindrason
Barómetió
Til að byrja þessi skrif
mín á einhverju langar
mig til að árétta það
að ég bý á Grófargili,
en ekki Skörðugili.
Ég virði þó vinkonu
minni, henni írisi,
það til vorkunnar
að Skörðugilsnafnið
bera mun fleiri hús,
sex og hálft, meðan
Grófargilsnafnið
bera aðeins tvö hús.
Skörðugilsnafnið er
þvítamara tungu og
mistökin auðfyrirgefin.
Ég er barómetsmaður.
Þó mér hafi enn
ekki áskotnast slíkt
höfuðþing, er barómet
- hinum megin - þ.e.
í húsi tengdaforeldra
minna. Þangaðfer
ég iðulega til að finna
barómetið og berjum við
tengdapabbi það upp
og niður, allt eftir því
hvað til stendur þann
daginn. Það dugar þó
ekki alltaf til. Það er,
sannastsagna, alveg
bráðnauðsynlegtað
hafa svona gersemi
til að segja fyrir
verkum dagsins. Falli
barómetið, þýðir lítið
að ætla sérað mála
fjósþakið. Stígi það hins
vegar, má með trúarlegri
staðfestu slá 8he tún, án
þess að hugsa sig um.
Upp á síðkastið hefur
það alltaf fallið, helv...
barómetið, sama hvernig
slegið er í það. Það
boðar þrennt; sem
ég raunar vissi um.
Haustlægðir, skóla og
réttir; allt eins öruggt
og kvefpest á leikskóla.
Haustlægðirnar þarf
ekki að fjölyrða um,
en skólann og réttimar
mætti e.t.v. staldra
ofurlítið við. Þetta eru
ekki ósvipaðar stofnanir,
skólinn og réttirnar.
Hvort tveggja safn
af lífverum þar sem
misvitrir forystusauðir,
-ær, sjaldnast hrútar
- leiða hópinn. Lömbin
dregin í dilka, börnunum
vísað í stofur. Fram
eftirvetri jórtrarsvo hvor
hópur fyrir sig á því sem
fyrir þá er lagt hverju
sinni. Ég hugsa oft um
þetta þegar ég rangla
um réttirnar og gríp í eitt
og eitt horn til að sýnast.
Sleppi því svo gjarnan
hinum megin í réttinni,
þegarenginn sértil.
Það fellur helv....
barómetið. Best að drífa
upp gulræturnar og
breiða yfir gasgrillið.
£g ætla að skora á
Magnús Óskarsson
ÍSölvanesi.