Feykir - 25.10.2007, Blaðsíða 10
lO Feykir 40/2007
10. bekkur Árskóla_
Dönsuðu stans-
laust í 26 tíma
Glaðlegur hópur 10. bekkinga ásamt Loga danskennara að maraþoni loknu.
Árlegt dansmaraþon 10.
bekkjar Árskóla á
Sauðárkróki fór fram
dagana 11. -12. október
sl.
Gerðu krakkarnir sér lítið fyrir
og dönsuðu í 26 klukkustundir
auk þess að halda inatarveislu í
samráði við foreldra sína.
Feykir kíkti við nokkuð oft
þennan sólahring og tók
myndir af krökkunum,
dansandi, sofandi og síðast en
ekki síst sigri hrósandi og
fagnandi að maraþoni loknu.
Þeim til aðstoðar var Logi
danskennari sem flaug
sérstaklega norður til þess að
taka þátt í þessu með
krökkunum.
Gjaldkeri óskast til starfa í
útibú Kaupþings á Sauðárkróki
Kaupþing leitar að öflugum einstaklingi í starf gjaldkera. Við viljum fá til liðs við okkur fólk sem
getur unnið sjálfstætt og hefur metnað til að ná árangri.
Við bjóðum:
• Krefjandi og skemmtileg verkefni í hópi kraftmikils
samstarfsfólks
• Gott starfsumhverfi þar sem framtak einstaklingsins
fær að njóta sín
Starfslýsing:
• Gjaldkerastörf og almenn bankastörf
• Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini
Hæfni og menntun:
• Mikil þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar
• Reynsla af bankastörfum er kostur
• Reynsla af afgreiðslu- eða þjónustustörfum er mikilvæg
• Stúdentspróf eða góð reynsla er skilyrði
Vinnutími er frá kl. 9.00 - 17.00.
Nánari upplýsingar veitir Jóel Kristjánsson útibússtjóri í síma 455 5300,
netfang joel.kristjansson@kaupthing.com.
Umsækjendur sæki um á heimasíðu bankans www.kaupthing.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2007.
KAUPÞING