Feykir - 25.10.2007, Blaðsíða 5
40/2007 Feyklr 5
íþróttafréttir
lceland Express-deildin: ÍR- Tindastóll 93-74
ÍR hafði betur
Tindastoll lek við IR i Seljaskola i siðustu viku i 2. umferð
lceland Express-deildarinnar. Stólarnir voru sterkari
aðilinn framan af og voru yfir í hálfleik, 34-36. ÍR-ingar
mættu hins vegar ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og
unnu á endanum öruggan sigur á þunnskipuðu liði
Tindastóls, 93-74.
Fram kernur í samtali við
Kristinn Friðriksson þjálfara
Tindastóls í Morgunblaðinu að
hann var ánægður með leik
Stólanna í fjTri hálfleik, liðið
hafi hins vegar leikið slaka vörn
í síðari hálfleik á meðan að IR-
ingar haíi verið vel stemmdir.
ÍR-ingar náðu undirtökun-
urn í þriðja leikhluta en eftir
hann var staðan 64-54. Mun-
urinn jókst í upphafi fjórða
leikhluta í 77-61 en þá kont
góður kafli hjá Stólununr og
þeir minnkuðu muninn í 80-71.
Þá láðist dómurum að mati
Kristins þjálfara að dæma skref
á I'R í hraðaupphlaupi og eftir
það hlupu ÍR-ingar á lagið og
gerðu 13 stig á meðan Stólarnir
gerðu 3.
Hjá Stólunum áttu Samir
Shaptahovic, Donald Brown og
ísak Einarsson góða spretti.
Stig Tindastóls: Samir 17,
Donald 16, Marcin 13, ísak 10,
Svavar 9 og Serge 9.
Knattspyrnudeild Hvatar
Lokahóf um helgina
Lokahóf meistaraflokks Hvatar verður haldi í Félags-
heimilinu á Blönduósi 27. október næst komandi og
hefst kl. 20:00. Tindastóls, 93-74.
Leit er nú hafin að nýjum
þjálfara og hann mætti þess
vegna vera spilandi þjálfari
samkvæmt auglýsingunni sem
birtist á knattspyrnusíðunni
www.fotbolti.net.
-Við vonum bara að ráðning
nýs þjálfara gangi hratt íyrir
sig því æfingar gætu farið að
hefjast fljótlega, ef það dregst
að finna þjálfara getur það haft
áhrif á liðið því einnig mun
nýr þjálfari finna leikmenn
og það verður erfiðara eftir
því sem líður á nýtt ár, segir á
heimasíðu Hvatar.
Ljúffengur kvöldverður
verður matreiddur af snill-
ingunum á Pottinum og
pönnunni og eftir skemmtanir
kvöldsins og verðlaunaaf-
hendingu verður haldið á
Styrktarsjóðsballið þar sem
Skagfirski sveiflukóngurinn
leikur fýrir dansi fram eftir
nóttu.
Dragoslav hættur
Ljóst er að Dragoslav Stojanovic,
þjálfarinn sem kom Hvöt upp
úr 3.deildinni í surnar mun ekki
þjálfa liðið næsta sumar.
Yngri flokkar Tindastóls í körfuboltanum
Skin og skúrir
Tveir yngri flokkar hjá körfuknattleiksdeild Tindastóls
kepptu um helgina. Það voru minnibolti 10 ára stráka sem
keppti í C-riðli á Selfossi og
í A-riðli á Sauðárkróki.
Minniboltaguttarnir gerðu
sér lítið fjTÍr og unnu alla sína
andstæðinga með miklum mun
og sigruðu riðilinn sinn með
miklum }'firburðum á meðan
strákarnir í 9. flokki töpuðu
öllum sínum leikjum og féllu
niður í B-riðil.
Um næstu helgi heldur
íslandsmótið áfram, en þá leggja
minniboltastúlkur 10 ára land
undir fót og keppa í B-riðli í
Hafnarfirði og minnibolta-
L flokkur drengja sem keppti
drengir 11 ára keppa í D-riðli á
Flúðum.
Á morgun keppa meistara-
flokkarnir báðir sína fyrstu
heimaleiki gegn Skallagrími og
er frítt á báða leikina í boði
Steinullar og Sparisjóðs Skaga-
fjarðar.
Karlaleikurinn hefst kl. 19:15
og kvennaleikurinn strax á eftir
eða kl. 21:15.
Fólk er hvatt til að fjölmenna
og styðja Tindastól til sigurs!
Kynning á meistaraflokki karla í körfuknattleik
Tindastóll
Donald
Brown
Hreinn
Birgisson
Samir
Shaptahovic
Þorvaldur
Ólafsson
Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli spilar
í vetur í efstu deild í körfuboltanum líkt og
síðasta vetur.
Fjórir erlendir leikmenn spila með liðinu í vetur.
Donald Brown senr kemur frá Bandaríkjunum, Marcin
Konarzewski er pólskur Kanadamaður sem leikur stöðu
framherja, Samir Shaptahovic er serbneskur bakvörður
og Serge Poppe er belgískur framherji.
Það er Kristinn Geir Friðriksson senr þjálfar lið
Tindastóls.
Einar Bjarni
Einarsson
Halldór
Halldórsson
Helgi Rafn
Viggósson
Isak
Einarsson
Kristinn G.
Friðriksson
Marcin
Konareewski
Serge
Poppe
Sigurður
Gunnarsson
Svavar Atli
Birgisson
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKIAUGLÝSIR
Sérfræðikomur
Vika 45 Haraldur Hauksson, almennur skurðlæknir og æðaskurðlæknir
vika46 Edward Kiernan, kvensjúkdómalæknir
vika47 Sigurður M. Albertsson, almennur skurðlæknir
Vika 48 Valur Þór Marteinsson, þvagfæraskurðlæknir
vika49 Haraldur HaukSSOn,almennurskurðlæknirogæðaskurölæknir
vika50 Edward Kiernan, kvensjúkdómalæknir
Tímapantanir í síma 455 4022.
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki