Feykir - 25.10.2007, Blaðsíða 2
2 Feykir 40/2007
Félag ferðaþjónustunnar í Skagafírði
Útigangsfé að nást til byggða
Vömþróun í skag-
firskri ferðaþjónustu
Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði mun í vetur standa fyrir
vöruþróunarverkefni fyrir ferðaþjónustuaðila í héraðinu.
Voru þar kynnt 5 helstu
verkefnin sem deildin fer fyrir.
Markmiðið er að setja saman
fjölbreyttar vörur, vinna
markaðsáætlanir og kynning-
arefni til þess að hafa í
höndunum og selja á ferða-
sýningum innan landssem utan
á næsta ári.
Verkefninu verður hleypt af
stokkunum helgina 3. og 4.
nóvember n.k. með vinnulotu á
Löngumýri. Þá mun Sævar
Kristinsson rekstrarráðgjafi frá
Netspori vinna markvissa
hugmyndavinnu með þátt-
takendum og koma vinnuferl-
inu af stað.
Félagið hvetur alla sem koma
að ferðaþjónustu í Skagafirði að
taka þátt í spennandi verkefni.
Nánari upplýsingar gefur
Svanhildur á Hótel Varmahlíð í
síma 4538170 svanhild@
hotelvarmahlid.is
Er eitthvað að frétta?
Leiðari
Ertu búinn að spyrja guð?
-Mamma ég bara finn ekki heimanámið mitt, sagði
miðsonurinn miður sín í vikunni. Sá yngsti sat við
eldhúsborðið og var að lesa heima. Leit hann upp á bróðir
sinn og spurði; -Ertu búinn að spyrja guð? Það hjálpar.
Síðan leitsá stutti aftur niður á bókina sína og hélt áfram
að stauta. La la, ló ló, ró ró, ás ás heyrðist tautað. Minnug
þess að hafa séð þann stutta biðja bænirnar sínar áður
en hann gekk yfir götu fór ég að ræða þetta aðeins við
hann. -Talarþú stundum við guð?, spurði ég. -Thjá,
oft og mikið, var svarið. -Og hjálparþað?, spurði ég á
móti. -Já,það hjálpar mér mjög mikið. Ég veitekki um
ykkur en það Irjálpar mér, svaraði hann ákveðinn og
hélt áfram að stauta. Forvitni mín var vakin og ég hélt
áfram. -Og hvemig talarþú við hann?, spurði ég og var
orðin áhugasöm. Sá stutti leit upp út bókinni, spennti
greipar og horfði upp í loft. -Kæri guð, viltu hjálpa mér
með heimanámið, bara svona sagði hann og hélt áfram
orðinn hálfhissa á þessum spurningum móður sinnar. Leit
síðan upp aftur og sagði; -Þú ættir bara að prófa að tala
við hann sjálf. Þá var kallað innan úr stofu. -Mamma ég
fann heimanámið, það var bara hérallan tímann, kallaði
miðsonurinn. Hissa horfði ég á þann yngri og sat eftir með
spurninguna um hvar ég hefðifarið út afsporinu og gleymt
guði.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 898 2597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Bladstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
Úlafur Sigmarsson og
Páll Dagbjansson.
Ritstjóri &
abyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is,
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Simi 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Enn heimtist af fjalli
Kristófer Ólafsson einn smalanna á Nesdalnum með hrútinn væna sem náðist í túrnum.
Undanfarið hefur megmð af þvi utgangsfe sem vitað var
um í austanverðum Skagafirði verið að nást til byggða,
enda hefðbundnar göngur víðast afstaðnar.
Um síðustu mánaðamót
náðust fjórar veturgamlar
kindur í Unadal. Þrjár voru frá
Vogum og ein frá Sandfelli.
Auk þess er vitað um fimmtu
kindina.veturgamlan hrút frá
Sandfelli einhversstaðar á
þessum slóðum. Birgir í
Vogum sem tók þátt í að ná
þessum kindum sagði að þær
hefðu alls ekki verið eins villtar
og búast hefði mátt við og vel
hefðigengiðaðnáþeim. Vitað
var um að nokkrar kindur
gengu úti í Unadalnum í vetur
því þegar verið var að huga að
tófu þar í vor varð þeirra vart.
Síðastliðinn laugardag fór
Kjördæmisþing framsóknarmanna
Krefjast aðgerða
Góð mæting var á þingið
sem krafðist þess að
mótvægisaðgerðir
ríkisstjórnarinnar vegna
niðurskurðar á
aflaheimildum verði gerðar
að sértækum aðgerðum
fyrir þau svæði og
byggðarlög sem verst
verða úti vegna
skerðingarinnar.
Þá töldu þinggestir ófært að
litið væri á umbætur í
samgöngumálum sem mót-
vægisaðgerðir en ekki eðlilega
þróun. Þá væri mikilvægt að
ríkisvaldið komi sérstaklega að
atvinnuuppbyggingu á þeim
svæðum sem illa urðu úti
sökum skerðingar á afla-
heimildum.
Þá hafi mörg sveitarfélög og
samtök sveitarfélaga kontið
fram nteð tillögur að aðgerðum
og óskað eftir samstarfi við
ríkisvaldið. Skoraði þingið á
ríkisstjórnina að nýta sér
þekkingu sveitarfélaganna á
þörfinni heimafýrir, m.a. með
sérstökum fjárveitingum til
þeirra.
Þá kom fram að Eftirlits-
stofnun EFTA hefur gefið út
svokallað byggðakort þar sem
fram kemur að íslenskum
stjórnvöldum er heimilt að
veita sérstaka byggðastyrki sem
geta numið 15 - 35% af
fjárfestingakostnaði, eftir stærð
fyrirtækja, á tilteknum svæð-
um á íslandi. Norðunæstur-
kjördæmi allt fellur undir
skilgreiningu ESA. Tækifæri
ríkisstjórnarinnar til að beita
sértækum aðgerðum eru því
greið og aðeins spurning um
vilja.
Þingið skorar því á
ríkisstjórnina að beita áður-
greindri heimild og styrkja
þannig uppbyggingu fyrir-
tækja í kjördæminu og þar
með byggð.
Nafnið datt út
Við uppsetningu Feykis í
síðustu viku datt úr nafn
greinarhöfúndar á síðu 9 þar
sem finna mátti grein um
Skagfirsku matarkistuna.
Var það Laufey Haralds-
dóttir fýrir hönd ferða-
máladeildarinnar á Hólum
sem ritaði greinina.
hópur manna í samalmennsku
út á Siglunes og Nesdal sem er
uppaf nesinu. Þarna var vitað
að sjö kindur gengu úti í
fyrravetur. Þessar kindur
náðust allar utan ein sem hafði
farið afvelta í sumar. Með
kindunum voru fjögur lömb
ffá í vor. Raunar höfðu þrjár
kindur bæst í þennan hóp í
sumar. Utigangsféð sent ekki
hafði átt lömb var rígvænt t.d.
vó veturgamall hrútur úr
hópnum 110 kíló og lömbin
voru á bilinu 50-62 kíló. Það
virðist því ekki hafa væst um
þessar skepnur síðasta vetur.
Þettafé varallt frá Brúnastöðum
í Fljótum utan tvennt
veturgamalt frá Stóra-Holti.
Kindurnar voru fluttar á bát
frá Siglunesi inn til Siglufjarðar
og þar sem engin hafnaraðstaða
er við Siglunes þurfti að selflytja
féð á gúmmíbát úr fjörunni út
í fiskibát talsverðan spotta. Að
sögn leiðangursmanna stóð
tæpt að þeir gætu selflutt féð
vegna veðurs sem fór ört
versnandi eftir því sem leið á
daginn.
Mynd og texti: ÖÞ:
Skattstjóri NV
Hanna
ráðin
Gengið hefur verið frá
ráðningu Hönnu Björns-
dóttur til að gegna
embætti skattstjóra á
skattstofu Norðurlands-
umdæmis vestra frá 1.
des. 2007 til fimm ára.
Hanna lauk B.Sc. í
viðskiptafræði ffá Háskól-
anurn á Akureyri árið 2006.
Hún hefúr startáð á skattstofu
Nv, með hléum, ffá 1992. Frá
2005 hefur Hanna sinnt starfi
deildarstjóra og staðgengils
skattstjóra.
Löngumýri
Trúboðí
Eþíópíu
Föstudagskvöldið 26.
október verður Helgi Hró-
bjartsson kristniboði með
myndasýningu frá áratuga
starfi sínu í Afríku.
Fáir íslendingar þekkja betur
aðstæður í þessari fjarlægu
álfu enda hefur hjálparstarf
Helga skipað honum lands-
kunnan virðingarsess meðal
innfæddra í Eþíópíu.
Sýningin hefst kl: 20:30 og
eru allir velkomnir.