Feykir


Feykir - 08.11.2007, Blaðsíða 1

Feykir - 08.11.2007, Blaðsíða 1
<StíZ£2z#ZZZa(^Z^^Z2aiZ^iB7,/5sffiDZí^'5zzz}^/»2z^'^(íS^zzzizzE0 Guóný Helga Björnsdóttir, bóndi og varaþing- maóur á Bessastöðum í Hrútafirói, situr nú á Alþingi í fjarveru Einars Kristins Guófinns- sonar. Guóný Helga er fædd og uppalin á Bessastöðum og er þar bóndi ásamt Jóhanni Birgi Magnússyni, eiginmanni stnum. Þau hjón halda úti heimasíóu en þar má fræóast um allt sem viðkemur búskap þeirra og eitthvað um þau sjálf. Ritstjóri skrifaðist á vió Guðnýju og forvitnaðist örlítió um persónuna, bóndann og þingmanninn Guónýju Helgu. „Ég hafði mig eitthvað í frammi í pontu um mikilvægi sameiningar o.þ.h. Svo varð sameiningin að veruleika og farið var að undirbúa kosningar í sameinuðu sveitarfélagi að ýmsir fóru að reyna að fá mig til að taka þátt í þeim." Sjá viðtal á bls. 6-7 BioPol ehf. á Skagaströnd semur við Skota Varnargirðingar í Húnaþingi vestra Fimm ára sam- starfssamningur Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing milli Islendinga og Skota um menntun, vísindi og rannsóknir í sjávarlíftækni. Að samningnum standa sjávarlíftæknifyrirtækið BioPol ehf. á Skagaströnd, Háskólinn á Akureyri og The Scottish Association for Marine Science. Samkvæmt yfirlýsingunni er meðal annars ætlunin að stunda sameiginlegar rannsóknir, skiptast á starfsfólki, rannsókn- argögnum og öðrum upplýsingum. Síðast en ekki síst munu námsmenn eiga þess kost að stunda nám og rannsóknir hjá báðum fyrirtækjum. BioPol ehf. hóf starfsemi í september á þessu ári og er markmiðið að stunda rannsóknir á lífríki sjávar, m.a. í Húnaflóa, rannsóknir í líftækni, nýsköpun og markaðssetningu á líftækniafurðum úr sjávarlífverum og fræðslu á háskólastigi í tengslum við þessar rannsóknir. Viljayfirlýsingin var undirrituð í höfuðstöðvum SAMS í Oban í Skotlandi. Viðstaddir voru fulltrúar beggja fyrir- tækja, Einar Kr. Guðfinnsson, sjávar- útvegsráðherra, Alp Mehmet breski sendi- herrann á Islandi og Þorsteinn Gunnarsson háskólarektor. Gildistími samningsins er fimm ár og er ætlunin að endurskoða hann og framlengja verði góður árangur af samstarfinu. Viðhald óviðunandi Á fundi Landbúnaðarnefndar Húnaþings vestra í síðustu viku kom fram að óviðundandi fjöldi línubrjóta hafi komið fram í tjár- réttum þetta haustið. I ályktun fundarins kemur ffam að Landbúnaðarráð telur viðhald á varnargirðingum vera óviðundandi og að þeim sökurn hafi a.m.k. 100 fjár komið fram í réttum á svæðinu sem farið hafi milli varnarhólfa. Sé þá ótalið það fé sem farið hafi frá Húnaþingi vestra yfir í önnur varnarhólf. Skorar nefndin á Landbúnað- arstofnun að sjá til þess að viðhald á þessum girðingum verði aukið og því betur sinnt. Þess ber að geta að flestu því fé sem fer á milli hólfa er lógað og fær bóndinn þá engar bætur umfram innleggið. Lögreglan á Sauðárkróki Kostnaðarmeta á tillögur Á síðasta fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar Skagafjarðar mætti Björn Mikaelsson yfirlögregluþjónn, til viðræðna við nefndina um umferðamenningu við Árskóla. Gerði Björn á fundinum grein fýrir þeim athugunum sem lögregl- an hefur gert nú á síðustu vikum á umferð við Árskóla við Freyjugötu. Samþykkti ráðið að kostnaðar- meta tillögur yfirlögregluþjóns og kynna þær síðan hagsmunaaðilum. Corsair Voyager USB minnislyklar Verófró kr. 1.990 (lQb) —ICTenflit! ehj>l— TÖLVUDEILD TENGILS Borgarflöt27 Sauðórkróki ( 455 7900 VIÐ B0NUM 0G RÆSTUM! Daglegar ræstingar og reglubundið viðhald á bóni í fyrirtækjum og stofnunum SSnðSewfW (°X<BíE5£S$?<ÉÍj& Hringdu núna eða sendu tölvupóst Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is Bílaviðgerðir hjólbarðaviðgerðir réttingar jrtív? ogsprautun

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.