Feykir


Feykir - 08.11.2007, Blaðsíða 2

Feykir - 08.11.2007, Blaðsíða 2
2 Feykir 42/2007 Húnaþing vestra 40 milljónir til hitaveituframkvæmda syðri og nyrðri Hvammsár verði deiliskipulagt. Ný svæði skipulögð A fundi Skipulags- og umhverfisráðs Húnaþings vestra í síðustu viku var lagt fram erindi frá sveitarstjóra þar sem óskað var eftir skoðun skipulagsverkefnum. Lagði ráðið á fundi sínum áherslu á að hafist verði handa við að deiliskipuleggja svæðið sunnan Veigastígar og vestan Þjóðvegar 72 (Hvammstanga- vegar) að mörkum aðal- skipulags Hvammstanga. Einnig er lagt til að svæðið austan Norðurbrautar milli ráðsins á fyrirsjáanlegum Frá Hvammstanga. Leiðari Gengur bloggið að sagnfræðinni dauðri? Ég er ein afþeim íslendingum sem síðustu ár heftekið upp svokallað bloggsamband við gamla vini og kunningja. Fólk sem ég hqfðifyrir löngu týnt dúkkar allt í einu upp á tölvuskjánum þarsem það bloggar, skrifar, um allt milli himins ogjarðar. Sumir blogga bara um eitthvað sem ekki skipir neinu máli á meðan aðrir blogga um sín leyndustu mál. Blaðamaðurinn í mér hefur oft tekið kipp á þesswn ferðalögum mínum um veraldarvefinn og ofterég komin inn á síður hjá fólki sem ég veit engin deili á og komi ég ítrekað inn á þessar síður veit ég oft orðið meira um hagi þessarafólks en systra minna, þær blogga jú ekki. Sjálf held ég úti bloggsíðu kannski bara meira tilþess að vera eins og hinir og stundum tilþess að tjá mig um mál sem ég ekki fæ útrás fyrir hér. Ekkert ofpersónulegtþó.Ætli ég sé ekki ofspéhrædd tilþess að gera það. Að mestu leiti finnst mérþessiþróun vera að liinu góða. Hún hefur opnað augu okkarfyrir mörgu og kennt okkur listina að deila tilfinningum okkar. Hins vegar hefég veltþví'fyrir mér hvað verði um þessi blogg þegar tölvan hrynur? Týnast þau og gleymast að eilífu. Ástarbréfnútímansfara á milli á tölvupósti eða sem sms skeyti. Hver verður arfleifð okkar? Hverjar verða heimildirnar um lífokkar og tilfinningar? Verður sagnfræðiframtíðarinnar byggð á blöðum og tímaritum í stað dagbóka og sendibréfa hér áður? Kemur bloggið tíl með að ganga að sagnfræðinni dauðri? Þegar stórt er spurt verður ekkert um svör. Ps. Fyrir ykkur lesendur mína afeldri kynslóðinni sem ég met mikils. Blogg er einhvers konar dagbókarform sem haldið erútiá veraldarvefnum og því sýnilegt öllum. Guðný Jóhannesdóttir feykir@nyprent.is sími 898 2597 Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum Utgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt I Sauðérkrúki Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðárkrókur Blaðstjórn: Árni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Herdis Sæmundardóttir, Ólafur Sigmarsson og Páll Dagbjartsson. BitstjoriS ábyrgðarmaður: Guðný Jóhannesdóttir feykir@nyprent.is Simi 455 7176 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson oli@nyprent.is, Örn Þórarinsson. Prófarkalestur: Karl Jónsson Askriftarverð: 275 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasötuverð: 325 krónurmeð vsk. Áskrift og dreifing Nýprent ehf. Simi 455 7171 Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Skagafjörður slær lán Hitaveituframkvæmdir i Hrolleifsdal. Símon Skarphéðinsson verktaki glaðbeittur. Mynd: skv.is Á fundi Byggðarráðs Skagafjarðar í síðustu viku var lagt fram lánstilboð frá Lánasjóði sveitarfélaga vegna hitaveituframkvæmda á Hofsósi. Samþykkti Byggðarráð að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 40.000.000 kr. til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem lágu fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3.mgr.73.gr.sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til hitaveituframkvæmda, sbr. 3. gr. laga unt stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. SAH afurðir ehf. Nýttmet Á heimasíðu SAH afurða ehf kemur fram að nýtt met hafi verið slegið í sauðfjárslátrun á Blönduósi þetta haustið. Búið er að slátra 92.177 Qár sem er þó nokkur aukning frá fyrra ári. Sláturdagar voru einunt færri en í fyrra en nýting hvers dags betri. Meðalvigt dilka 15,26 kg, sent er um 0,3 kg. léttara en árið 2006. Nú er folaldaslátrun komin á fullan skrið og eru bændur hvattir til að hafa samband við slátur- hússtjóra til að panta slátrun fyrir folöld. Bókin um Vatnsenda Rósu Komin í dreifingu Siðastliðinn laugardag kom í dreifingu bókin um Vatnsenda Rósu sem greint var frá í blaðinu fyrir skömmu. Við það tækifæri afhenti séra Gísli H. Kolbeins höf- undur bókarinnar Kvenna- bandinu í Vestur Húnavatns- sýslu nokkur eintök afbókinni, en kvennabandið lagði frarn peningaupphæð til útgáfu bókarinnnar. Á myndinni er stjórn Kvennabandsins kontin með bókina í hendur; frá vinstri Jónína Jóhannesdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir og Gerður Ólafsdóttir. Mynd ÖÞ. Blönduós Lagaá græn svæði Á fundi Æskulýðs- og tómstundanefndar Blönduósbæjar á dögunum var lagt til að gerðar verði úrbætur á leiksvæðum í bænum. Lagði nefndin sérstaklega áherslu á svæðið við skólann og eins að sett verði upp leiktæki við Skúlabraut. Þá leggur nefndin til að endur- bætur á grænum svæðum í bænum verði settar í fjár- hagsáætlun. Frá Háskóla SÞ tilHóla___________ Hólaútrásin heldur áfram Næsta einn og hálfan mánuð munu sex nemendur frá Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna dvelja á Hólum við nám í fiskeldi. Nemendurnir koma ffá Kenya, Tansaníu, Malasíu og Úganda. Þau starfá flest við ráðgjöf og stjórnsýslu tengdu fiskeldi og fiskveiðum í sínum heimalöndum. Fiskeldisnámið á Hólunt er hluti af sex mánaða dvöl á íslandi. Sumir þessara nerna ntunu verða á Hólum þangað til í febrúar og vinna loka- verkefni undir leiðsögn sér- fræðinga Hólaskóla. Húnaþing vestra Bókasafnið sprungið Á fundi Menningar- og tómstundaráðs Húnaþings vestra í síðustu viku kom fram að finna þyrfti úrlausnir á geymslu fyrir bóka- og skjalasafn sveitarfélagsins en núverandi húsnæði er sprungið á plássi. Á fúndinum kom upp sú hugmynd að Óríon m}aidi fl\tja í félagsheimilið og að félagsmiðstöðin gantla myndi verða bóka- og skjalasafn. Ekki var komist að endanlegri niðurstöðu á fúndinum.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.