Feykir


Feykir - 08.11.2007, Blaðsíða 9

Feykir - 08.11.2007, Blaðsíða 9
42/2007 Feykir 9 Norðlenskir bloggarar Rannveig Lena Gísladóttir, bókari, Blönduósi Feykir heimsækir bloggheima Er bloggiö hið nýja dagbókarform okkar íslendinga? Hverjum hefði grunað að ótrúlegasta fólk ætti eftir að opna svokallaðar bloggsíður og fara að tjá sig um menn, málefni og jafnvel sig sjálf. Feykir hafði samband við fjóra norðlenska bloggara og spurði þá út í tilurð bloggsíðna þeirra. Byrjaði að blogga nafnlaust Hver er slóðin inn á bloggið þitt? www.lena75.blog.is Hvað hefnr þú bloggað lengi og af hverju byrjaðirþú að blogga? -Síðan 2005. Byrjaði að blogga nafiilaust og þá var það til að tjá mig um vandamál sem að hrjáði mig mikið á þeim tíma, offituvandamálið. Þá var hópur á netinu sem að bloggaði og sótti stuðning í gegnum það. Það varð til nokkurs konar “lítið samfélag” svona fólks á netinu. Um hvað bloggarþú ? -Daglegt líf, skólann minn,börnin,bóndann... hitt og þetta bara. Inn á bloggið fer þó ekkert sem að er of persónulegt. Ertu virkurþátttakandi í bloggheimum, það er skoðar þú aðrar síður og skilur eftir þig athugasemdir? -Ég skoða mis mikið af annarra manna bloggum, mest hjá “fjölskyldu og vina” bloggurum. Misdugleg við að “kommenta” líka. Utn hvað bloggaðir þú síðast? -Ferð mína á ráðstefnu Félags bókhaldsstofa um sl. helgi. Hefur þú eignast vini í gegnum bloggið? -Já, ég eignaðist ágætis kunningja í gegnum fyrsta bloggið mitt. Fólk sem ég veit að fylgist með mér ennþá í dag hvernig mér gengur. Séra Sigríður Gunnarsdóttir Sauðárkróki Bloggar mest fyrir sjálfa sig Jón Sigurðsson, tryggingaumboðsmaður og fréttaritari Morgunbiaðsins á Blönduósi Bloggar um allt milli himins og jarðar Hver er slóðin inn á bloggið þitt? -Ég held til á Mogga- blogginu, slóðin er sigrg. blog.is Hvað hefur þú bloggað lengi og afhverju byrjaðir þú að blogga? -Ég byrjaði að blogga ef að ég man rétt 2004. Auðvitað er kjánalegt að segjast blogga fyrir sjálfa sig, ekkert er einka sem fer á veraldarvefinn en ég hef alltaf haff gaman af þ\i skrifa og fást við texta svo ég tók blogginu fagnandi. Um hvað bloggarþú? -I upphafi vega ætlaði ég eingöngu að skrifa beinskeytta og meitlaða pistla sem fjölluðu um þjóðfélagsmál, trúmál eða það sem er efst á baugi hverju sinni. Þau fögru fyrirheit fóru fljótt út um þúfúr og ég blogga mest um sjálfa mig og fjölskylduna. Ertu virkurþátttakandi í bloggheimum, það er skoðar þúaðrar síður og skilur eftir þig athugasemdir? -Ég gef mér ekki tíma til að fylgjast með umræðunni bloggheimum. Renniyfir síðurvinaminnareglulega og sömuleiðis nokkurra guðfræðinga sem hafa eitt og annað fram að færa. Og geri athugasemdir þar sem við á. Um hvað bloggaðirþú síðast? -Ég bloggaði síðast um sálma og söngvakvöld í kirkjunni, þar sungu tvær ffábærar söngkonur sálma og trúarsöng\'a úr ýmsum áttum. Hefurþú eignast vini í gegnum bloggið? -Nei, en ég hef verið blessuð með mörgum vinkonum og vinum, sum þeirra hef ég samskipti við í gegnum bloggsíður. Hver er slóðin inn á bloggið þitt? -Slóðin sem ég skil eftir mig í bloggheimum er 123.is/jonsig Hvað hefurþú bloggað letigi og afhverju byrjaðirþú að blogga? -Mig rninnir að ég hafi bloggið um það bil í svona eitt og hálft ár. Hugsanlega getur það verið eitthvað meira en það er ekki aðalatriði. Hvers vegna ég byrjaði að blogga er ekki svo auðvelt að útskýra. Til dæmis var skorað á mig en þetta svar er svona eins og hjá frambjóðenda þannig að líta ber á það í því ljósi. En til að gera langa sögu stutta þá hef ég skrifað fréttir úr A- Hún í Morgunblaðið frá því í febrúar árið 1985 og til þess að gera nýlega og með þægilegu aðgengi að heimasíðugerð hef ég uppgötvað þá yndislegu möguleika internetsins til að koma á framfæri á ffjálslegan hátt því sem við erum að gera, eða ekki gera sem ekki kemst fyrir á síðum dagblaða. Utn hvað bloggarþú? -Ég blogga um allt milli himins og jarðar, allt frá 10 litlum negrastrákum að bilanagreini hjá Vél- smiðju Alla. Persóna mín er fyrirferðamikil í blogginu því hver er sjálfúm sér næstur. Ertu virkurþátttakandi í bloggheimum, það er skoðar þúaðrar síður og skilur eftir þig athugasetndir? -Ég er ekki virkur í umræðum í bloggheim- um en ég fylgist út undan mér hvað sumir eru að skrifa en geri afar sjaldan athugasemdir einfaldlega vegna þess að enginn tekur mark á mínum “réttu” skoðunum. Utn hvað bloggaðirþú síðast? -Síðast bloggaði ég um 10 litla negra- stráka, hjónaband samkynhneigðra og biblíuþýðingu. Reyndar legg ég oftast út frá efni auglýsingablaðsins Gluggans en þar má finna sýslusálina í sinni fegurstu mynd. Og smáauglýsingar á Húnahorninu heilla mikið og hann Rúnar í Samkaupum leggur mér oft lið. Hefurþú eignast vini í gegnutn bloggið? -Ég held að það hafi ekki fækkað í vinahópnum eftir að ég tók upp á þessu. Grun hef ég um að fólk láti sér í léttu rúmi liggja um hvað ég skrifa ef ég skila bara inn myndum af lífinu hér í A-Húnavatnssýslu. Axel Kárason, búfræðinemi Hvanneyri Bloggar um lítilfjörlega og tilgangslausa hluti Hver er slóðin inn á bloggið þitt? anastadir.blogspot.com Hvað hefur þú bloggað letigi og afhverju byrjaðir þú að blogga? -Frá haustinu 2005, þegar ég settist á skólabekk á HvanneyTÍ. Ég sá að vinur minn var farinn að blogga og ákvað að prófa hvort þetta væri eitthvað sem ég hefði gaman af. Um hvað bloggarþú? -Að mestu leyti reyni ég að blogga um lítilfjörlega og tilgangslausa hluti. Mér leiðist að blogga um hluti eins og t.d. REI-málið því fféttaumfjöllun og spjall \ið fólk á förnum vegi uppfyllir minn dægurmálakvóta. Það eru þá helst málefni tengd íslenskum landbúnaði sem rata inn á mína síðu. Ertu virkur þátttakandi í bloggheimum, það er skoðar þú aðrar síður og skilur eftir þig athugasemdir? -Ég flokkast nú örugglega ekki undir mjög virkan þátttakenda, hef t.d. ekki neinn bloggrúnt á morgnanna. En það eru auðvitað ákveðnar síður sem eru skoðaðar reglulega, en ég er nú ekki mikið að skilja eftir mig athugasemdir. Utn hvað bloggaðir þú síðast? -Stuttar hugleiðingar um hitt og þetta, og svo fór ég af stað með spumingaleik sem tengist sögu Sambandsins og Kaupfélaganna. Hefur þú eignast vini í gegnutti bloggið? -Nei ég held að það hafi nú bara aldrei komið fyrir að manneskja sent ég þekkti ekki hafi skilið eftir athugasemd (þá tel ég ekki með þar sem leyninafn hefúr verið notað) þannig að ég virka greinilega ekki mjög aðlandi í gegnum síðuna mína. bloggbrot Brot úr öðrum norðlenskum bloggum Jón Þór Bjarnason http://drhook.blog.is /blog/drhook/ í rigningu og hálfrökkri gekk ég út Fossvoginn áleiðis í Nauthólsvík. Á leiðinni er Svartiskógur, sem er hluti af Skógræktinni. Með mér í ferð var tíkin Týra og við löbbuðum inní rjóöurvin í skóginum. Þegar við komum aftur upp á göngustíg var hún komin með tóma plastflösku í kjaftinn, eins og svo oft áður I gönguferðum. Tíkin japlaði á flöskunni næsta hálftímann, en reyndi endrum og eins að leggja hana frá sér á stíginn og fá mig til að sparka í hana. Ég vildi síður rjúfa göngutempóiö og var tregur til leiks. Á bakaleið úr Nauthólsvík tók ég betureftirflöskunni, sem var með sérstökum stút, álpappír og brún að innan. Nú erum við komin heim og Týra liggur hér í móki. Úr sljóum augunum má lesa: Vaaaáá mar, heavy! Pálína Ósk Hraundal http://palinaosk.blog. is /blog/palinaosk/ Það hefur bara verið crazzyyy að gera í skólanum undanfarna daga. Við lukum heilum áfanga nánast á einni viku, þannig við erum búin að vera hér og þar og út um allt undanfarna daga. í dag var ég í Kolkuós, ég er alveg heilluð af þessum stað. í gær vorum við á Sigló og Hofsós. Daginn þar áður fórum við Skagafjaröarrúnt, skoðuðum slóðir Sturlungasögu. Mjög skemmtilegt allt saman. Þuríður Kristjana Þorbergsdóttir http://prestsfruin. bloggar.is/ Frumburðurinn er 25 ára í dag. Ég get varla trúað því að það sé oröiö þetta langt síðan hann Gunnar fæddist. Við hringdum í hann áðan og þá var hann að fara á Krókinn að grilla hrút, vona að hrúturinn bragðist vel og Gunnar eigi gott kvöld. Á svona dögum langar mann heim að faðma og knúsa börnin sín ogjafnvel baka eina köku. J

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.