Feykir


Feykir - 13.03.2008, Side 2

Feykir - 13.03.2008, Side 2
2 Feykir 10/2008 Sparisjóður Skagaijarðar Samruni samþykktur Fjármálaeftirlitiö hefiir samþykkt athugasemdalaust samruna Sparísjóös Skagaflarðar við Sparí-sjóð Siglufjarðar. Samruni sparisjóðanna var áður samþykktur af minnihluta fundarmanna sem þó báru með sér meirihluta atkvæða á fundi stofnfjáreigenda í ágúst sl. Niður-staða fundarins var í framhaldinu kærð til fjármálaeftirlitsins og hefur Sparisjóðurinn lítið getað aðhafst síðustu mánuði enda sameiningin fryst á meðan Fjármálaeftirlitið kannaði málið. -Sparisjóðurinn hér mun heita áffam Sparisjóður Skagaíjarðar með sama bankanúmer og sömu reikningsnúmer. Eins liggur fyrir að það á að styrkja sparisjóðinn hér verulega og eitt af því er að huga að nýju húsnæði sem fyrst. Eins tryggir þessi sameining ffamtíð sparisjóðsins í héraðinu og á bara eftir að styrkja hann, segir Kristján Snorrason sparisjóðsstjóri. Þeir stofnfjáreigendur sem kærðu hafa enn ekki ákveðið hvort þeir uni niðurstöðunni sem þeir gagnrýna harðlega í yfirlýsingu ffá sér sem birt er í heild sinni á síðu 4. Þeir vildu að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Leiðari -Er ekki Ijótt að Ijúga um Jesús? -Mamma hanrt vinur minn hefur séð kistuna hans Jesú, tilkynnti yngri sonur minn mérþar sem við sátum og borðuðum hádegismatinn. -Nú erþað, svaraði ég ífyrstu annars hugar en sá svo að þarna væri líklega efni í góða sögu. -Já, hann var meðpabba sínum í ísrael og þeir fóru upp ífjall þar sem þeirfiindu hellinn þar sem Jesú var grafinn. Og veistu hvað svo, sagði sonur minn og augun urðu alveg hringlaga. Nei, hvað, svaraði ég og var farin að brosa. Syni mínum var nú orðið mjög niðriJyrir enda trúaður mjög barnið. -Pabbi hans sparkaði í stein og þá opnaðistpínu gat inn í hellinn og þeirgátu kíkt inn, og veistu hvað þeir sáu, nú var minn maður alveg kominn á innsogið. Sjálfbarðist ég við að vera alvarleg og var komin á sama innsog; -hvað sáu þeir? spurði ég. -Þeir sáu í hornið á kistunni hans Jesú og hún var Iwít, var svarið og barnið himinlifandi. Þvílík lífsreynsla sem vinurinn hafði lent í. Það sem það vill til að faðir drengsins er einn elstí vinur eiginmanns míns vissi ég nú fyrir víst að tíl ísrael hefðu þeirfeðgar aldrei komið en frásagnagáfu föðurins hafði barnið klárlega erft. Þó þekki ég pabbann aðeins að því að segja sannar sögur. Það varþví ekki laust við að ég skelltí uppúr. Augu sonarins stækkuðu og uggandi um hag vinarins spurði hann -Mamma er ekki sérstaklega Ijótt að Ijúga um Jesús? Hugsið ykkur ef við gætum aftur orðið 6 ára og helstu áhyggjuefni væru hvernigfærirfyrir vininum sem laug um Jesús. Guðný Jóhannesdóttír feykir@nyprent.is sími 898 2597 Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðárkrókur Biaðstjórn: Árni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Herdis Sæmundardóttir, Ólafur Sigmarsson og Páll Dagbjartsson. Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Guðný Jóhannesdóttir feykir@nyprent.is Simi 455 7176 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson oli@nyprent.is, Örn Þórarinsson. Prólarkalestur: KarlJónsson Askriftarverð: 275 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 325 krónur með vsk. Áskrift og dreifing Nýprent ehf. Simi 455 7171 Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Samstaða ogAldan samþykkja kjarasamninga Mikill meirihluti sagðijá Mikill meirihluti félagsmanna í Stéttarfélögunum Samstöðu og Öldunni hefur samþykkt nýgerða kjarasamninga milli Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnuiffsins sem undirritaðir voru 17. febrúar s.l. HJá Samstöðu voru á einnig félagsmenn í versl- kjörskrá 245 manns og þar af unarmannadeild Samstöðu greiddu 108 atkvæði um samninginn. Hjá Öldunni var samninginn eða 44%. Já sögðu samningurinn samþykktur 95 eða um 88%, nei sögðu 12 með ríflega 84% atkvæða en eða um 11% og auður seðill þar greiddu rúmlega 30% var 1 eða 1%. Þá samþykktu félagsmanna atkvæði. Skírdagstónleikar á Skagaströnd Ellen og Eyþór í kirkjunni Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson syngja og leika í Hólaneskirkju á Skagaströnd kl. 20.30 á skírdagskvöld. -Þetta verður án efa mjög skemmtilegt enda mikið hæfileikafólk á ferðinni og hljómburðurinn í kirkjunni er einstaklega góður, segir Fjölnir Ásbjörnsson, sóknarprestur á Skagaströnd. Við héldum tónleika í fýrra með Eyjólfi Kristjánssyni og þá komu 110 manns og við fáum vonandi ennþá fleiri núna. Það er ókeypis á tónleikana og allir velkomnir, þegar svona kanónur eru á ferðinni vill maður helst fylla húsið. Svo verður hægt að nálgast tónlist þeirra á sanngjörnu verði, spjalla við listamennina og fá áritanir. Ég hef sjálfur safitað plötum og diskurn árituðum af íslenskum listamönnum í nokkur ár og vænst þykir mér um hljómplötu sem Bergþóra Árnadóttir heitin áritaði, það verður garnan að bæta í safnið nýja disknum hennar Ellenar. Ég held að það sé tilvalið fyrir fólk að bregða sér í bíltúr á Skagaströnd á skírdagskvöld og notfæra sér þetta einstaka tækifæri. Uppbygging og framtíð Hólaskóla Vinstri grænir skora á stjómvöld Aðalfundur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Skagafirði sem haldinn var í Héðinsminni 10. mars 2008, hefur sent frá sér áskorun til stjórnvalda þar sem skorað er á þau að standa vörð um Hólaskóla, Háskólann á Hólum, sem sjálfstætt menntasetur í þjóðareigu eins og hann hefur verið um aldir. Segir í ályktuninni að skólinn hafi lengi gengt þýðingarmiklu hlutverki og að þar hafi verið stöðugur uppgangur í hartnær þrjá áratugi. Sá uppgangur komi til með að halda áfram fái skólinn þann stuðning sem honurn ber. Þá mótmælir fundurinn harðlega hug- myndum um einkavæðingu skólans og að hann verði látinn í hendur einstakra fyrirtækja eins og stjórnendur fyrirtækjasamsteypu Kaup- félags Skagfirðinga sækja á um. Með slíku væri vegið að framtíð Hólaskóla og Hólastaðar. Mikilvægt er að óvissu um rekstur skólans verði eytt hið fyrsta og stjórnvöld einhendi sér í að standa með myndarlegum hætti að áframhaldandi uppbyggingu Hólaskóla, Háskólans á Hólurn. Skagaströnd Listasýning í Lands- bankanum í útibúi Landsbankans á Skagaströnd stendur nú yfir listsýning barna á leikskóla staðarins um Spákonufell, Þórdísi spákonu og allt lífríki fjallsins í máli og myndum. Sýningin þykir skemmtilega uppsett og einlæg að hætti höfúnda verkanna. Sýningin er opin á opnunartíma útibúsins og lýkur í næstu \iku. Húnaþing vestra Endurskoða á starfs- mannastefnu Byggðaráð Húnaþings vestra hefur falið sveitarstjóra að leggja drög að starfsmannastefnu fyrir sveitarfélagið þar sem meðal annars verði ákvæði um endur- og símenntun starfsmanna. Kemur þessi ákvörðun ráðsins í kjölfar bréfs frá Helenu Halldórsdóttur þar sem hún hvetur sveitarstjóm til þess að endurskoða þá ákvörðun að veita henni ekki stuðning í háskólanámi sínu. Þá hvetur Helena sveitarstjórnina jafii- framt til þess að veita starfs- mönnum sveitarfélagsins sem stunda háskólanám stuðning sambærilegan þeim sem veittur hefur verið í grunnskóla og leikskóla. Akureyrarsjónvarp í útrás Sjónvarp Norðurlands N4 Sjónvarp Norðurlands fer á landsvísu 12. mars og verður útsendingum stöðvarinnar sjónvarpað á rás 15 á dreifikerfi Digital ísland. Með þessu verður N4 verður fyrsta sjónvarpsstöðin á landsbyggðinni til að helja útsendingar á landsvísu.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.