Feykir


Feykir - 13.03.2008, Blaðsíða 3

Feykir - 13.03.2008, Blaðsíða 3
10/2008 Feykir 3 Framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Norðurlands vestra Starfslýsing: (megindráttum felur starf framkvæmdastjórans í sér umsjón og samræmingu yfir starfi tveggja klasa þ.e. menntunar og rannsóknar, menningar og ferðaþjónustu. Framkvæmdastjóri vinnur náið með stjórn samningsins og fer eftir stefnu og áherslum sem settar eru af stjórn. Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn og starfar á skrifstofu Vaxtarsamningsins á Sauðárkróki. Nánari lýsing verkefna: • Yfirumsjón með starfsemi Vaxtarsamnings og klasauppbyggingu ■ Skýrslugerð og upplýsingagjöf tii stjórnar ■ Kynning á starfi, markmiðum og verkefnum Vaxtarsamnings ■ Önnur verkefni sem stjórn Vaxtarsamningsins felur starfsmanni s.s. ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga og verkefnastjórn Kröfur um menntun og reynslu: • Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist (starfi ■ Góð íslensku- og enskukunnátta • Góð tölvukunnátta • Hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og metnaður (starfi Skriflegar umsóknir, sem tilgreina m.a. menntun og fyrri störf, skulu sendar á skrifstofu Blönduóssbaejar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi, og merktar framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Norðurlands vestra. Umsóknir skulu jafnframt sendar rafrænt á arnar@blonduos.is Umsóknarfrestur er til 19. mars n.k. Nánari upptýsingar um starfið veitirArnar Þór Sævarsson, formaður stjórnar Vaxtarsamnings Norðurlands vestra. Netfang: arnar@blonduos.is Hinjalt Fljóllegt Þœgilegt Skagfirskir verktakar Ný verkstæðisbygging KS á Sauðárkróki Unnið af krafti í haust hófust á Sauðár- króki byggingaframkv- æmdir við verkstæðishús Kaupfélags Skagfirðinga. Húsið er 3300 fermetrar að grunnfleti og efri hæð verður tæpir 860 m2. I'etta nýja hús rís rétt sunnan við Vélaverkstæði KS og verður tengibygging á milli húsanna. Stærsti hluti hússins er ætlaður undir bílaverkstæði en í því verður einnig rafinagnsverkstæði. Verktaki við bygginguna er Friðrik Jónsson ehf. á Sauðárkróki. Ólafúr Friðriksson verkstjóri sagði að framkvæmdir við bygginguna hefðu gengið vel til þessa þrátt fyrir að tíðarfar síðustu vikur hefði verið rysjótt. ÖÞ: Fara aftur í Hrútafjörðinn eftir páskana Gríptu með þér pakka næst þegar þú ferð í búð! Eins og kunnugt er hafa Skagfirskir verktakar unnið vestur í Hrútafirði undanfarið en þeir fengu þar stórt verk seint á sfðasta ári. Verkið felst f breytingum á Þjóðvegi 1 sem nú á að fara nokkra kílómetra út HrútaQörðinn að vestanverðu og kemur svo inná þjóðveginn að austanverðu nokkuð norðan við núverandi Staðarskála. Feykir hafði samband við Jón Árnason bifreiðarstjóra á Sauðárkróki og spurði hvernig verkið gengi. - Við byrjuðum þarna eítir áramótin og það hafa verið 12-15 manns þarna við vinnu þar til í lok febrúar. Þetta hefur gengið ágætlega. Við erum þarna með um 10 kílómetra langan veg og það má segja að undirbyggingu hans er nánast lokið. Við skiljum eftir part í kringum brúnna en þar er búið að steypa sökkla fyrir hana. Hrútafjarðaráin var flutt ( MYND VIKUNNAR ) Þeir félagar Ómar Bragi Stefánsson, fyrrum vert á Kaffi Krók og Jón Dan, núverandi vert, geröu sér lítið fyrir einn daginn og gengu í störf tryggingarfélags hússins sem í 6 vikur haföi móast viö aö þrífa upp glerbrot og naglaspýtur í kringum húsiö. Gott framtak þetta strákar. lítillega þannig að hægt sé að byggja brúnna á þurru og það er bara varúðarráðstöfun að skilja eftir smá part þarna ef kæmu mikil vorflóð í ána. Svo er meiningin að halda áfram eftir páskana þá vonumst við til að frost í jörðu verði farið að minnka, en það er í rauninni grundvöllur fyrir að við getum haldið áfram.“ Jón segir að þeir eigi að skila veginum 20 ágúst. Það er að segja veginum lögðum slitlagi en þeir hafi svo nokkrar vikur til að ljúka ýmissi frágangsvinnu tilheyrandi verkinu. ÖÞ: Og gómsætar múffur tilvalið ípáskabaksturinn, sumarbústaðinn og...

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.