Feykir


Feykir - 13.03.2008, Blaðsíða 11

Feykir - 13.03.2008, Blaðsíða 11
10/2008 Feykir 11 Jóhann og Hrönn elda Ávaxtakaka og ostabollur Það eru hjónin Jóhann, Jói á Áka og Hrönn Pétursdóttir sem að þessu sinni bjóða lesendum upp á brot af því besta úr eldhúsi sínu. Þau hjón skora á Manu Sif Gunnarsdóttur og Björgvin Sveinsson Grenihlfð 11 Sauðárkróki. Látið suðuna koma upp smástund. Kryddið með salti og pipar. Ostabollur 150 gr. magurostur 60 gr. hveiti 60 gr. léttmajónes Smávegið paprika, skorin í litla bita Salt ogpipar eftir srnekk Rifinn ostur Rífið ostinn í skál og bætið hveiti, majónesi og papriku saman við. Hrærið saman og útbúið 4-6 bollur sem lagðar eru á bökunarpappír og bakaðar í 180°c heitum ofhi í 20 mín. saman við. Lauksúpa með ostabollum 250gr. laukur 4 hvítlauksrif Paprika, skorin í bita Timían saxað 6-8 dl. hænsnakraftur Salt og pipar Smá olía til steikingar 150 gr. hvitkál Hitið olíuna í potti. Skerið lauk og hvítlauk í þunnar sneiðar og steikið létt Bætið papriku, timíani og hænsnakrafti saman við. Látið súpuna sjóða við vægan hita í 20 mínútur. Skerið kálið í strimla og bætið þvi Berið fram m/hrísgrjónum, góðu brauði og grænni guacamole- sósu Ávaxtakaka 3 stk. bananar V2 dós perur 1 boxjarðaber Vínber Saxað og látið í botn á eldföstu móti Rjómakrem 2 eggjarauður vel þeyttar 2 msk. flórsykur 2 msk. serry (má sleppa) 1 peli þeyttur rjómi saman við Þetta sett yfir ávextina, 1 marengsbotn mulinn og settur ofan á ijómakremið. Salsaréttur m/ kjúklingi og kartöfluflögum 1 krukka salasósa mild eða medium Fajita mixkryydd 4-6 kjúklingabringur 1 poki Nachosflögur 1 krukka ostasósa Rifinn ostur Steikið kjúklinginn upp ú Fajita kryddinu og skerið í bita. Dreifið salsasósunni í botninn á eldföstu móti og síðan helmingnum af flögunum. Dreifið kjúklingnum jafht yfir og síðan restinni af flögunum. Hitið ostasósuna og hellið henni yfir allt saman. Rifinn ostur settur yfir og bakað í 10-15 mín. þar til osturinn er orðin gullbrúnn. Súkkulaði sósa 100 gr. suðusúkkulaði 200gr. rjómasúkkulaði 3 stk. mars 1 V2 dl rjómi Hitað saman við vægan hita, kælt og sett ofan á. Verði ykkur að góðu. ( GUDMUNDUR VALTÝSSON ) Vísnaþáttur 471 Heilir og sælir lesendur góðir. Tilefni fyrstu vísunnar að þessu sinni, var umfjöliun unt kjör eldra fólks. Einn af íbúum Reykjavíkurhrepps sem þekkti þetta af eigin raun, orðar þetta svo vel í eftirfarandi vísu: Þeir öldruðu lifa ekki í eyðslu ogglaum þó einhverjum þcetti það gaman. Ellilaun eru svo andskoti aum að endarnir ná ekki saman. Endalaust virðist ætla að dynja á okkur landsins börnum sú tugga fréttamanna, að enn þurfi að reisa álver hingað og þangað um landið. Er sú urnræða þó helgileikur hjá þeirri skelfingu sem talað er um flesta daga um þessar niundir, að eyðileggja þá dásamlegu ímynd sem Vestfirðir hafa í hugum margra landsmanna með olíu. Lýsir næsta vísa vel slíkum hugrenningum. Man því miður ekki fyrir víst hver höfundur hennar er: I náttúru íslands skrattinn skálmar skjálfandi lýðurinn buktar og mjálmar. Þar eru auðvaldsins sungnir sálmar svigna þarjámblettdnir álklceddir páltnar. Hávær umræða þessa dagana um matvælaverð á landinu muni hækka. Þarf engan að undra slíkt, miðað við þær hækkanir á vörurn sem við bændur þurfum nauðsynleg að kaupa. Áður hefur verið látið að því liggja, að nratvælaverð á Islandi væri heimsmet. Kristján í Gilhaga telur að sarnt komi útlendingar og fari hér á flakk: Ýmsir stoppa oft til þess í sig kroppa í tiœði. Utn landið skoppa langs ogþvers og lifa á sjoppufœði. Síðan bætir Kristján við þessa ágætu umfjöllun, að skásti kostur væri að treysta á Guð ef ekki væri Baugur. Um þá góðu verslunarmöguleika yrkir Kristján: Túristar rangla og reika og ratað í vandrœði geta. En blessað svíttið það bleika býður þeitn ódýrt að éta. Þó ruglað virðist verðlagið er víst að allir halda sínu striki. Og bleika svínið brosir öllum við býður vórurfyrir skít á priki. Góðar undirtektir hafa verið vegna sléttubandavísna síðasta þáttar. Kemur hér ein slík og mun vera eftir Þingeyinginn Arndísi Steingrímsdóttur: Orðum fléttum, röðutn rétt rimið slétta vöndum. Skorðtim þéttum nokkuð nett náum sléttuböndum. Á ferð yfir Víkurskarð mun Arndís hafa ort þessa: Gustar kalt um gil og skor gljáin hylur laut og barð. Tekur fjórtán faðirvor ferðin yfir Víkurskarð. Ágætt að halda áfram með snjallan kveðskap frá Þingeyingum. Jóhannes G. Einarsson mun hafa ort þessa. Var spurður um stöðu bænda: Mérfinnst afar illt að sjá afurð búa rænda. Lítilmenni leggjast á lífsafkomu bœnda. Einhverju sinni er Jóhannes ver spurður hvort hann teldi sköllóttir nrenn væru kynþokkafyllri en hinir, var svarið á þessa leið: Mjög varfyrr á meyjum lið margt ég felldi tárið. Svo hef ég varla flóarfrið frá því ég missti hárið. Urn náin kynni yrkir Jóhannes: Við konu ég átti í kynnum konan var afspyrnu hress Á klukkustund sextíu sinnutn settdi hún S.M.S. Þegar tal berst að svokallaðri kynlífsbyltingu, yrkir Jóhannes: Um kynlífsiðkun hef ég hljótt né hatnpa þekkingunni. Ég hef sjálfsagt frekar fljótt fallið í byltingunni. Frjálsræði erflestum hjá fráleitt það tnig ergi. Fólkið liggur öllum á allsstaðar og hvergi. Ljómandi vist í því verelsi senr Jóhannes yrkir þar unr. Held það hafi verið sá ágæti Bjarni frá Gröf, sem orti fyrir áratugum síðan vísu sem passar nákvæmlega við peningastefnu dagsins í dag: Þeirsem ekki þurfa lán þeir geta fengið peningana En hinir verða hjálpar án sem helst af öllu þyrftu hatta. Freistandi er að rifja upp aðra vísu eftir Bjarna: Oft ég drekk hjá vinunt vín vel ég Bakkus þekki. Þó bið ég Guð að gœta ntín hantt gerirþað bara ekki. Langar að biðja lesendur urn að sætta sig við þessi málalok. Flott að enda spjallið nreð þessari dýrt kveðnu vísu Einars Kolbeinssonar í Bólstaðarhlíð: Yrkið Ijóðin, glœðið glóð geyntið slóða háttittn. Styrkið móðinn, eflið óð egniðfróða máttinn. Þarf varla að benda á að þarna fer lagleg sléttubandavísa. Verið þar með sœl að sitmi. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðuin 541 Blöttdttósi Sínti 452 7154

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.