Feykir


Feykir - 22.05.2008, Side 3

Feykir - 22.05.2008, Side 3
20/2008 Feykir 3 fundinum var formanni og félögum frá Grósku færður afrakstur vökunnar rúmar 300.000 kr. Má ætla að sá peningur komi í góðar þarfir. Kvenfélag Staðarhrepps sá um fundinn að þessu sinni í tilefni þess að félagið á lOOáraafmæli um þessar mundir. Að loknum aðalfundi var boðið upp á dýrindis tertur, hnallþórur og randalínur, kaffi og kleinur. Fluttu konur úr félaginu ágrip úr sögu þess í gegnum tíðina og minntu á það hvað starfssemi kvenfélaganna var mikilvægur á upphafsárum síðustu aldar. Má segja að félögin hafi unnið þau verk sem félagsmálastofnanir inna af hendi í dag. Fjögur kvenfélög í Skagafirði hafa náð hundrað ára aldri og eitt þeirra, Kvenfélag Rípurhrepps er elsta kvenfélag landsins, hundrað og íjörtíu ára. Húnaþing vestra Myndarlegur hákarl að landi Daníel Karlsson og Kári Bragason komu á dögunum að landi á Hvammstanga með myndarlegan hákarl. Hákarinn dró ófáa niður á bryggju enda ekki á hverjum degi sem þetta stór hákarl veiðist á þessum slóðum. Björn Þ.Sigurðsson, eða Bangsi eins og hann er kallaður og Sveinn Gunnarsson byrjuðu þegar að gera hákarlinn kláran í kæsingu. Er ekki laust við að þeim sem finnst hákarl góður séu þegar farnir að fá bragð í munninn og hlakka til vetrarins enda verður hákarlinn þá vel kæstur. Skagafjörður Kvenfélag Staðar- hrepps 100 ára Frá fundinum. Frá vinstri: María Gréta Óiafsdóttir, Hrönn Jónsdóttir, Guðlaug Arngrímsdóttir og Birna Stefánsdóttir. Aðalfundur Sambands 11 kvenfélaga sem starfa í Skagfirskra kvenna var Skagafirði. haldinn 27.apríl sl. f Á Vinnuvöku kven- félagsheimilinu Melsgili í félaganna í vetur var safnað Skagafirði. Þar funduðu fyrir Grósku, íþróttafélag fulltrúar og formenn þeirra fatlaðra í Skagafirði. Á Mynd vikunnar Þeir voru stoltir af bleika bílnum sínum þessir kátu piltar sem blaðamenn Feykis mættu á Blönduósi sl. föstudag. Spurning hvort stelpurnar séu eins spenntar. Blönduós Skotvissir byssumenn Keppendur frá Skotfélaginu Markviss á Blönduósi hafa verið iðnir við að æfa og hafa keppt á tveimur mótum það sem af er sumri. Brynjar Guðmundsson og Guðmann Jónasson hafa unnið til þrennra silfúrverðlauna og einna gullverðlauna í flokka- keppni. Guðmann hefúr skotið í úrslitum á báðum mótunum. Skipulagðar æfingar á skot- svæði Markviss hetjast þann 4. IcelandicTourist Board júní og verða líkt og undanfarin ár á miðvikudögum milli kl. 20:00 - 21:00. Boðið verður upp á leiðsögn í leirdúfuskotfimi og eru allir velkomnir hvort heldur til að skjóta eða bara til að spjalla. Hvaðgerír Ferðamálastofa fyrírþig? Kynningarfundur á starfsemi Ferðamálastofu verður haldinn 27. maí kl. 14:00-16:30 á Hótel Varmahlíð. Farið verður yfir starfsemi Ferðamálastofu og þjónustu stofnunarinnar viðferðaþjónustuaðila. Auk þess verða kynnt þróunarverkefni á sviði menningartengdrarferðaþjónustu, sem Ferðamálastofa og Impra á Nýsköpunarmiðstöð íslands eru að hleypa af stokkunum. Fundurinn er öllum opinn sem áhuga hafa á að kynnast Ferðamálastofu og kynna sér möguleika til uppbyggingar á menningartengdri ferðaþjónustu. www.ferdamalastofa.is Lækjargata 3 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is Strandgata29 | óOOAkureyri | Sími 464 9990 | Fax 464 9991 I Netfang: upplysingar@icetourist.is MultiOne liðléttingar til afgreiðslu strax Vélarnar fást í ýmsum stærðum Fjöldi aukahluta i boði . VELAR WÓNUSTA Járnhálsi 2 110 Rey L kjavík Simi 5 800 200 www.velar.is A

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.