Feykir - 22.05.2008, Side 5
20/2008 Feyklr 5
íþ róttafréttir
Hvöt - Völsungur 4-3
Hvatarsigur í
fyrstaleik
Strákarnir okkar í Hvöt
sigruóu Völsung frá
Húsavík í fyrsta leik
sumarsins 4-3. Staðan f
hálfleik var 2 - 1 og voru
það þeir Frosti, Óskar og
Raggi sem skoruðu mörk
Hvatar og fengu sfðan
aðstoð Völsunga með
fjórða markið. Lýsing á
leik er tekin af heimasfðu
Hvatar.
Hvatarmenn byrjuðu betur
og meðal annars komst Óskar
einn í gegn en markmaðurinn
varði vel og það var því á móti
gangi leiksins að Völsungur
komst yfir með ágætis marki á
13. mínútu eftir að vörnin lét
plata sig. Þremur mínútum
síðar náði Frosti að skalla
boltann aftur fyrir sig og í
markið eftir hornspyrnu og að
öðrum þremur mínútum
liðnum skoraði einn leikmanna
Völsungs sjálfsmark effir mikla
þvögu í vítateignum og staðan
orðin 2-1 fyrir Hvatarmenn. í
seinni hálfleik, sem og í þeim
fyrri, þá voru Hvatarmenn
meira með boltann en
Völsungur átti margar öflugar
skyndisóknir og hefðu hæglega
getað skorað með meiri heppni.
Hvatarmenn áttu sín færi og úr
einu þeirra skoraði Óskar á 52.
mínútu eftir að hafa rokið upp
vinstri kantinn og lagt boltann
laglega framhjá markmanni
Húsavíkurliðsins. Raggi
(Ragnar Heimir Gunnarsson)
skoraði á 67. mínútu beint úr
aukaspyrnu með örlítilli
viðkomu í varnarveggnum,
staðan orðin 4-1 og öruggur
sigur virtist í höfn. Aldrei skal
segja aldrei og leikurinn er víst
ekki búinn fyrr en dómarinn
flautar leikinn af, í einni af
sínum góðu sóknum komst
sóknarmaður Völsungs einn á
móti markmanni og var í þann
mund að komast fram hjá
Nezir í markinu þegar Nezir
felldi hann og vítaspyrna
umsvifalaustdæmd. Völsungur
skoraði úr vítinu og aukinn
kraftur færðist í leik
aðkomuliðsins. í stöðunni 4-2
skoruðu Hvatarmenn mark
sem var dæmt af vegna
rangstöðu, rétt dæmt en mér
sýndist boltinn vera á leiðinni í
markið áður en Raggi sem
klárlega var rangstæður kláraði
dæmið og negldi boltanum
inn. Á 85. mínútu skoruðu
Völsungur sitt þriðja mark og
stressið helltist yfir heimamenn,
skildi það enda þannig að Hvöt
myndi ekki ná sínum fyrsta
sigri í 2.deild? Leikurinn fjaraði
út án þess að fleiri mörk væru
skoruð og því langþráður
draumur orðinn að veruleika,
sigur í 2. deild.
Næsti leikur Hvatarmanna
verður á Blönduósvelli gegn ÍR,
liðinu sem er spáð sigri í
deildinni. Þetta verður án efa
hörkuleikur og það væri
geggjuð byrjun á tímabilinu að
fara með sigur af hólmi.
Magni - Tindastóll 0-2_
Stólarnir með
öruggan sigur
Strákarnir okkar í
Tindastól sóttu þrjú stig á
mölina á Grenivík á
föstudagskvöldið er liðið
sigraði Magna með
tveimur mörkum gegn
engu.
Þar sem grasvöllurinn á
Grenivík var ekki tilbúin
bjuggust menn við að leikurinn
yrði færður í Bogann á Akureyri
en heimamenn héldu að þeir
yrðu sterkari á mölinni og völdu
þann kostinn. Ekki varð þeim
kápan úr því klæðinu og sátu
eftir með sárt ennið en
kampakátir Stólarnir héldu
heim með öll stigin. Eftirfarandi
lýsing er tekin af heimasíðu
Tindastóls: -Leikurinn ein-
kenndist af mikil barátta fyrsta
hálftímann og áttu Tinda-
stólsmenn ágætar sóknir. Á 30.
mínútu komst Ásgeir Jóhannes-
son inní teiginn hjá Tindastóli
en Gísli Eyland Sveinsson
markmaður Tindastóls varði
vel. Stuttu síðar náðu Tindastóll
forystunni þegar Kristján Páll
Jónsson fékk góða sendingu inn
fyrir vörn Magna og skaut frá
vitateigshorninu á markið, skot
sem Atli Már Rúnarsson
markmaður náði ekki að verja
og staðan 0-1 og þannig var
staðan í hálfleik.
í síðari hálfleik átti Kristján
Páll Jónsson síðan góðan skalla
að marki Magna sem Atli varði
vel. Á 70. mínútu átti Tindastóll
góða sókn upp kantinn og Pálmi
Þór Valgeirsson fékk boltann
inn í teig Magna eftir fyrirgjöf
og þar fékk hann nægan tíma til
að athafna sig og átti svo gott
skot sem endaði í markinu og
staðan 0-2.
Inná komu Alli, Arnar Skúli
og Snorri og áttu þeir allir góða
innkomu. Allir leikmenn stóðu
sig mjög vel og voru skynsamir
í leik sínum. Frumraun Saso og
Kristjáns Páls í deildarleik með
Tindastóli var góð. Leikurinn
var ekki áferðarfallegur en
leikmenn unnu sína vinnu vel
oguppskáruþrjústig. Sanngjarn
sigur Tindastóls og fyrstu stig
sumarsins í höfn.
Knattspyrna_________
Hverstu stórt er
Hvatarhjartað?
Á heimasíðu Hvatar
kemur fram að f fyrra voru
liðin 20 ár sfðan Hvöt
vann 4. deildina eins og
hún hét þá. Nú tuttugu
árum síðar leikur Hvöt í
annari deildinni og hafa
heimamenn sett stefnuna
á að halda þvf sæti.
Mikið og gott starf
hefur verið unnið hjá
Knattspyrnudeild Hvatar
undanfarin ár og ber starfið
þess glöggt merki t.d. má
nefna árlegt knattspyrnumót
fyrir yngstu kynslóðina,
Smábæjarleikana en það mót
er f örum vexti ogkomast færri
að en vilja. Þá hefur þrotlaust
sjálfboðaliðastarf skilað
góðum árangri, en betur má
ef duga skal. Til þess að hægt
verði að tryggja sæti Hvatar
þurfi gott lið með góðum
leikmönnum og fjármagn
til þess að tryggja að svo
verði. Því biðla Hvatarmenn
á heimasíðu sinni til sinna
manna að styrkja félagið
með fjárframlögum sem
mun renna beint í sjóð sem
er ætlaður til þess að styrkja
liðið fyrir komandi átök.
Viljir þú Hvatarmaður
góður styrkja liðið með
frjálsu framlagi þá vísum við
á reikningsnúmer: 0307-13-
104343, Kennitala: 650169-
6629
Munið margt smátt gerir
eitt stórt!
Tengiliðir verkefnisins eru:
Kári Kárason, S:825-1133.
Valgerður Gísladóttir, S:895-
4391. Vignir Björnsson,
S-.862-4587
Tindastóll kvennaknattspyrna
Samningur við
stelpurnar
UMF Tindastóll gerði á dögunum leikmannasamninga við
meistaraflokk kvenna í knattspyrnu og er það í fyrsta
skiptið í sögu félagsins sem það er gert.
„Tilgangurinn er að við
tryggjum stelpunum ákveðinn
rétt í sambandi við tryggingar.
Einnig fá stelpurnar nauðsyn-
legan æfinga- og keppnisbún-
að eins og galla merkta með
nafni, skó og legghlífar,“ segir
Guðjón Örn þjálfari liðsins.
Aðspurður hvernig honum
litist á sumarið hjá stelpunum
svarar Guðjón eða Gaui eins
og hann er kallaður: „Mér líst
vel á sumarið. Liðið er byggt
upp á heimamönnum og
margar stelpur að koma aftur
í boltann að spila. Framtíðin er
björt, margar efnilegar stelpur
í þriðja flokki sem koma til
með að styrkja okkur og taka
við í meistaraflokknum í
framtíðinni.“
Markmiðið hjá meistara-
flokki kvenna í knattspyrnunni
í sumar er einfalt. „Komast
í úrslitakeppnina og vera í
topp tveimur,“ segir Gaui
og vill minna á að fyrsti
heimaleikurinn er á móti FH
27. maí og hvetur alla til að
mæta.