Feykir


Feykir - 19.06.2008, Page 2

Feykir - 19.06.2008, Page 2
2 Feykir 24/2008 Leiðari Opið bréftil Þórhildar Elínar Elínardóttir i tilefni bakþankaskrifa hennar í Fréttablaðið miðvikudaginn n.júní sl. Aðgát skal höfð í nærveru barna og bjarna Kæra Þórhildur, ég heiti Guðný og er ritsljóri héraðsfréttablaðsins Feykis sem gefið er út á Norðurlandi vestra. Mín kæra Þórhildur, ég er lika móðir þriggja barna sem hafa gaman afþví að leika sér í náttúrunni í kring um heimili okkar á Sauðárkróki. Börnin mín hafa hvorki lágt enni né langa handleggi og gengur vel í skóla. Börnunum mínum og börnum annarra Skagfirðinga stóð ógn afísbirninum sem um daginn villtist svo sorglega afleið og dvaldi við bakgarðinn heima. Kæra Þórhildur, hvernig hefðiþér liðið vitandi afísbirni í Öskjuhlíðinni nú eða Heiðmörk? Kæra Þórhildur Elín, ég er mjög stolt aflögreglunni sem stjórnaði vettvangi bæði á Þverárfjalli og eins úti á Hrauniþann i7.júní sl. Lögreglan tók erfiðar ákvarðanir með öryggi íbúanna í huga. Kæra Þórhildur, efþú telur aðþú hefðir getað stýrt aðgerðum beturþá óska égfyrir hönd okkar Skagfirðinga eftirþví, aðþú sendir okkurþínar hugleiðingar. Heimamanni dreymdi nefnilega þrjá birni og samkvæmtþví á einn eftir að koma á land. Kæra Þórhildur,þú gætir kannski varið okkurfyrir þeim þriðja? En að lokum mín kæra Þórhildur, aðgát skal höfð í nærveru sálar, við erum kannski ekki lattedrekkandi íbúar 101 Reykjavík og fótin okkar eru yfirleitt samstæð en við erutn líka fólk og höfum hvorki lágt enni né langa handleggi. Kæra Þórhildur, þetta er nú þegar orðið oflangthjá mér en mig langar að benda þér á að hugsa þig um tvisvar ogjafnvel þrisvar áður en þú skrifar næstu bakþanka. Að mínu mati var ekkert að dómgreindþeirra vösku sveitar er gætir hagsmuna okkar íbúa. Sá eini sem í þessu máli, hér okkar á milli mín kæra Þórhildur, sýndi dómgreindarbrest varstþú sjálferþú kastaðir afþínum háa stalli aur yfir íbúa landsbyggðarinnar. Kæra Þórhildur, börnin mín lásu þessa bakþanka og þau eru særð. Þú særðirþau. Með vinsemd og virðingu Guðný Jóhannesdóttir, ritsljóri héraðsfréttablaðsins Feykis. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum Feykir Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauöárkróki Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðérkrókur Blaðstjórn: Árni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Herdís Sæmundardóttir, Ólafur Sigmarsson og Páll Dagbjartsson. Ritstjóri & ábyrgðarmaðun Guðný Jóhannesdóttir feykir@nyprent.is © 455 7176 Blaðamenn: Páll Friðriksson palli@nyprent.is © 8619842 Óli Arnar Brynjarsson oli@nyprent.is Lausapenni: Örn Þórarinsson. Prófarkalestur: Karl Jónsson Áskriftarverð: 275 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 325 krónur með vsk. Áskrift og dreifing Nýprent ehf. Sími 4557171 Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Sameining heilbrigðisstofnanna______ Skagfirðingar vilja yfirstjórn a Krók Skagfiróingar vilja aó yfirstjórn heilbrigðisstofnunarinnar verði áfram á Sauðárkróki enda telji byggðarráð sveitarfélagsins að Sauðárkrókur sé byggðakjarni á Norðurlandi vestra með fjölbreytta og öfluga þjónustu. Ráðið óskar eftir fundi með ráðherra. Málið var tekið fyrir á síðasta byggðarráðsfundi og hefur ráðið óskað eftir fundi með heilbrigðisráðherra og nefnd um sameiningu stofn- ananna á Sauðárkróki og Blönduósi sem fyrst. Leggur byggðarráð í máli sínu áherslu á að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki sé kjölfesta í héraði og að Skagfirðingar hafi búið við afar góða heilbrigðisþjónustu sem beri að þakka. Þá hafi stofnunin fengið viðurkenningu heil- brigðisráðuneytisins fyrir árangur í rekstri. Góð og öflug þjónusta ásamt fyrirmyndar- rekstri sé fyrst og fremst góðu starfsfólki að þakka. Byggðarráð leggur áherslu á að boðaðar breytingar á skipulagningu og stjórnun heilbrigðisþjónustu á Norður- landi vestra komi ekki niður á þeirri þjónustu og árangri sem náðst hefur hjá Heilbrigðis- stofnuninni á Sauðárkróki og að störfum og verkefnum fjölgi fremur en fækki. Samþykkir byggðarráð að óska eftir fundi með heil- brigðisráðherra og nefndinni sem fyrst. Sauðárkrókur Dagmæður í baráttuhug Dagmæður á Sauðárkróki eru langþreyttar á sinnuleysi bæjaryfirvalda gagnvart leikvöllum í bænum. Hafa þær krafist úrbóta sem skjótast svo börn og aðrir gestir geti heimsótt þá og átt þar góðar stundir. í kjölfar umræðna um leikvellinakomudagmæðurnar upp heimasíðu á netinu þar sem bæjarbúum var gefinn kostur á að tjá sig um málefni leikvallanna. Einnig var settur af stað undirskriftalisti til stuðnings málefninu. Síðastliðinn mánudag mættu galvaskar dagmæður í Ráðhúsið og afhentu listann, sem skartaði yfir tvöhundruð og fimmtíu nöfnum. Það var Guðmundur Guðlaugsson Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri tók við undirskriftariistanum úr hendi Aðal- heiðar Sigfúsdóttur dagmóður. sveitarstjóri sem tók við listanum og sagði að málefni leikvalla munu fara í gang þó ekki hafi verið gerð sérstök fjárhagsáætlun um það. Sjötta Jónsmessu- hátíðin á Hofsósi Lífleg helgi framundan Lfkt og undanfarin ár verður Jónsmessunni fagnað með veglegum hætti á Hofsósi og verður samkoma af þessu tilefni haidin í sjötta skipti. Það eru félagasamtök í Hofsós og nágrenni sem standa að þessum viðburði sem notið hefur vinsælda og verið talsvert fjölsóttur undanfarin ár og dregur að fjölda brottfluttra af svæðinu. Hátíðin byrjar á föstudag með gönguferð. Gengið verður frá Bæ á Höfðaströnd með- fram sjónum og til Hofsóss. Leiðsögumaður verður Haukur Björnsson fyrrverandi bóndi í Bæ. Eftir gönguna verðu hægt að fá kjötsúpu í félagheimilinu og þar verður hljómsveitin Hundur í óskilum með tónleika og á eftir leika Stúlli og Dúi fyrir dansi eitthvað fram eftir. Á sunnudeginum verður fjölbreytt dagskrá sem hefst kl. 11.00 með smalakeppni á vegum hestamannafélagsins. Á eftir fylgja knattspyrnumót á íþróttavellinum, mynda- sýning í Kaupþing banka og tjaldmarkaður auk þess sem ýmislegt verður í boði fyrir krakka m.a. skátatívolí, fitnessbraut og Björgvin Frans leikari mun skemmta. Kl. 16.00 hefst síðan grillveisla og 20.30 verður menningarvaka f Höfðaborg sem lýkur með stórdansleik þar sem hljómsveit Geirmundar mun halda uppi fjörinu. Síðasti liður í hátíða- höldunum er svo hin árlega messa í Grafarkirkju sem verður kl. 20.00 á sunnu- dagskvöldið. Þetta gamla guðshús er merkilegt og dregur árlega að fjölda ferða- manna sem þangað koma ekki síst til að fanga þetta sérstæða guðshús á mynd. ÖÞ.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.