Feykir - 19.06.2008, Síða 11
24/2008 Feykir 11
( ÚR ELDHÚSI LESENDA )
Herdís og Óskar kokka
Ginleginn lax í forrétt
Það eru þau Herdfs Jakobsdóttir og Óskar Ólafsson frá
Steiná 2 í Svartárdal, sem bjóða upp á stórgóðar
uppskriftir að þessu sinni. Ginleginn lax í fbrrétt,
stórgripapottrétt f aðalrétt og súkkulaði marengs í
eftirrétt.
Og ef það dugar ekki til, þá fylgir mjög einfaldur kjúklingaréttur
með. Herdís og Óskar skora á frændfólk sitt, þau Sesselju
Sturludóttur og Jakob Sigurjónsson á Hóli í Svartárdal, að koma
með uppskriftir að tveimur vikum liðnum.
FORRÉTTUR
Ginleginn lax
með jógúrtsósu
600 gr laxaflak, beinhreinsað
Marirtering:
i/2 bolli ólífuolía
1/4 bolligin
1/4 bolli sykur
2 msk salt
2 msk þurrt martini
1 msk sítrónupipar
Rifinn börkur ogsafi
afeinni sítrónu.
Blandið öllu saman sem á að fara í
marineringuna. Setjið laxaflakið á
grunnt fat og hellið marineringunni
yfir. Hyljið með plastfilmu og
látið standa á köldum stað í tvo
sólarhringa. Skerið laxinn í þunnar
sneiðar og setið á forréttadiska.
Jógúrtsósa:
1 dós melónujógúrt
2 msk majones
1 msk scett sinnep
1/2 lítill laukur,
mjög smátt saxaður
1 sellerístöngull
mjög smátt saxaður.
Blandið öllu saman og kælið í 2 klst.
svo að bragðið nái að jafna sig. Gott
að bera fram með ristuðu brauði.
AÐALRÉTTUR
Stórgripapottréttur
1 saxaður laukur
2 msk matarolía
500gr. nautakjöt
1 msk hveiti
1 hvítlauksrifpressað
eða saxað smátt
1 -2 tsk karrý
Vt tsk chilliduft
'Á Itr. nautasoð
Vi-1 dl tómatsósa
kartöflur skornar í teninga
( sjóða í smá stund )
Vi tsk salt
Steikið lauk og setjið í eldfast mót.
Hristið hveiti, krydd og kjöt saman.
Steikið á pönnu og setjið í mótið.
Hrærið saman soð, tómatsósu og
hvítlauk og hellið því yfir kjötið.
Sjóðið kartöflur í smá stund og
þerrið og setjið saman við kjötið.
Látið malla í ofni við 160-180°C í
1-1 Vi tíma. Borið fram með fersku
salati og brauði.
EFTIRRÉTTUR
Súkkulaði marengs
4 eggjahvítur
200 gr. sykur
100 gr. Lindt
súkkulaði 70% brœtt.
4 dl rjómi
10 stk Lindt kúlur
í svörtu bréfi
kakó
Þeytið eggjahvítur stífar, bætið þá
5 msk af sykri saman við, 1 msk í
senn. Bætið síðan rest af sykri úti og
hrærið í 30 sekúndur. Teiknið ca 24
cm hring á bökunarpappír og setjið
smá fitu á pappír. Setjið eggjahvítuna
jafnt á pappírinn. Bræðið súkkulaði
og látið það síðan kólna aðeins.
Því er síðan hellt yflr eggjahvítuna
og hrært í með prjóni til að dreifa
súkkulaðinu.
Bakað í miðjum ofni í ca 50-60 mín
við 120°c.
Þeytið rjóma og setjið yflr marengs.
Skerið kúlur í tvennt til að skreyta
marengsinn með og sigtið smá kakó
yfir.
Borið fram með ferskum jarðar-
berjum.
AUKARÉTTUR
Einfaldur
kjúklingaréttur
1 kjúklingur eða unghœna
1 dós kjúklingasúpa
frá Campbell
2 msk majones létt (má sleppa)
1 dós spergill
1 dós ananas
1 -2 tsk karrý
Sjóðið kjúkling (unghænu) og rífið
síðan niður ( nema skinn)
Hrærið saman majones, kjúklinga-
súpu og karrý. Kjöt, spergill og
ananas settur út i og látið í eldfast
mót ( má nota soð af spergli og
ananas til að þynna út réttinn) og
sett í ofn við 200°C í 30-40 mín eða
þar til þetta er orðið heitt í gegn.
Borið fram með hrísgrjónum, salati
og heilum sveppum úr dós.
Verði ykkur að góðu!
GUÐMUNDUR VALTYSSON
Vísnaþáttur 478
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Jói í Stapa sem á fyrstu vísuna að
þessu sinni. Er hún gerð sumarið 2006,
er hann var staddur inn á Kaffi Viðvík á
Skagaströnd:
Horfi ég út á hafsins svið
hugann til að ncera.
Gaman er að vaka við
víkina silfurtœra.
Tvær vísu koma hér eftir Jóa, ortar á
sömu slóðum:
Signa landið sólinfœr
sundrast skýjagráminn,
hugi alla hrifiðfcer
Húnafióabláminn.
Þó að byrgi þokan grá
þá máfegurð dreyma,
meðan ögn af æskuþrá
öldnu hjörtun geyma.
Kristján Eiríksson er höfundur að næstu
vísum og munu þær ortar norður í
Fnjóskadal:
Virðist hér við vatnið bláa
varla tjaldandi,
og Illugastaða ilman trjáa
ofnæmisvaldandi.
Uni ég við öldunið
og ómfrá litidum glöðum.
Fögur blasafiöllin við
fólki á Brettingsstöðum.
Húnvetningurinn Sigrún Haraldsdóttir
mun hafa ort svo, stödd í Þýskalandi:
Við hliðargluggann teinótt trén
tryllt í burtu ana,
er Golfinn ég til þrautarþen
á þýskum autobana.
Hér er völlur grasi gróinn
garðar standa í blóma.
Þó held ég blái Húnaflóinn
hafi meiri Ijóma.
Tvær vísur koma hér í viðbót eftir
Sigrúnu:
Öldufaldur togar tœr
tindrar sjávargljái.
Haraldsdóttur heillaðfær
Húnaflóinn blái.
Heimsins er ég glefsur grœt
oggusur kaldra sjóa.
Þá hugsun rnína lágt ég læt
líða um Húnaflóa.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir er höfundur
að næstu vísum:
Húmar að og hœgir vind
heiðalóa syngur.
Unir sér í einni lind
allur fiallahringur.
Yfir hafifuglafiöld
fremur skraf og hljóma.
Um sóluvafið sumarkvöld
sólarstafir Ijóma.
Ein vísa kemur hér í viðbót effir
Hólmfríði. Er hún gerð er hinar
sögufrægu óskir íslendinga komu fram
vegna svokallaðrar Kyotobókunar:
Margt erþað sem miðurfer
magn vill landinn hljóta.
Islendingar óska sér
umfram drullukvóta.
Þá er til þess að taka, að í síðasta
þætti birtust noklcrar vísur eftir
Önnu Sveinsdóttur, áður húsfreyja á
Varmalandi í Skagafirði.
Smávægilegt stafabrengl varð í þriðju
vísunni og er sjálfsagt að leiðrétta það:
Sína illaýmsirgá
æskuvillu að muna.
Er þeir tryllast afað sjá
ungdómsspillinguna.
Hálfdán Bjarnason, kenndur við
Bjarghús mun hafa ort þessa:
Hýrnar bráin höldum á
hugsaðfá til veiði.
Kynlegþrá að kasta og ná
kannske smáu seiði.
Ekki hefur Hálfdán verið feiminn við
hringhendurnar, eftir næstu visu hans
að dæma:
Oft er dreymin innsta þrá
afþví gleymist skuggi.
Stakan sveimar ofaná
andans heimabruggi.
Ein vísa i viðbót eftir þennan ágæta
hagyrðing:
Allt þó vaði í villu og reyk
von skal maður spara,
þreytum glaðir lukkuleik
lífsins svaðilfara.
Guðmundur Ketilsson, kenndur við
Ulugastaði, var kunnur hagyrðingur á
sinni tíð. Hefur mér þótt þessi vísa hans
vel kunnugleg um eitthvert áratuga
skeið. Kannast trúlega margir við hana:
Þegar nafn mitt eftir á
allra þögn erfalið.
Illugastaðasteinar þá
standið upp og talið.
Þá minnir mig að þessi ágæta
hringhenda sé eftir Guðmund:
Dönsku fljóðin drambmáluð
deyfa þjóðarhaginn.
Nú er úr móð að nefna Guð
netna góðan daginn.
Ekki vond tilhugsun að enda með
annarri hringhendu effir Guðmund:
Andann Ijóða burt ég bý
brjóstið óðum dofnar.
Förlast móðurmálið því
minniðgóða sofnar.
Verið þar
mcð sœl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154