Feykir - 08.01.2009, Page 4
4 Feykir 01/2009
Skagafjörður
85 ára afmæli fagnað
með útgáfu á híjomdiski
Nú rétt fyrir jólin kom út
hljómdiskurinn Höllin mín.
Á disknum eru 14 lög öli
samin af Jóhannesi
Runólfssyni á Reykjarhóli í
Fljótum. Jóhannes syngur
sjálfur fyrsta lagið sem er
samnefnt diskinum.
Skagfirðingarnir Ari
Jóhann Sigurðsson og Pétur
Pétursson syngja þrjú lög
hvor og Jónas Þór Jónasson á
Akureyri syngur sjö lög.
Rögnvaldur Valbergsson
hefur útsett flest lögin og
annast undirleik í þeim en
Daníel Þorsteinsson hefur
útsett þrjú laganna og sér um
undirleik í þeim.
Jóhannes varð 85 ára í
nóvember sl. og diskurinn
gefinn út af því tilefni. Það
eru nokkrir vinir Jóhannesar
sem hafa aðstoðað hann við
útgáfuna. Þar ber helst að
nefna Jónas Jóhannsson á
Akureyri, Ingimar Ingimars-
son á Ytra-Skörðugili og
Símon Gestsson á Barði.
Jóhannes ólst fyrstu 8 árin
upp á bænum
Dýrfinnustöðum en var
næstu 10 ár í Brimnesi í
Viðvíkursveit. Fljótlega eftir
tvítugt fór Jóhannes til
Reykjavíkur og lærði m.a.
vélvirkjun. Eftir að hafa
stundað atvinnu í Reykjavík
um árabil sneri hann aftur til
átthaganna árið 1970. Þá fór
hann fljótlega „að dingla á
orgelið" eins og hann komst
sjálfur að orði í samtali við
fréttaritara. Árið 1974 flutti
svo Jóhannes að Reykjarhóli á
Bökkum þar sem hann hefur
búið síðan.
Eftir að hann hætti daglegu
amstri við fjárbúskap fyrir
nokkrum árum og snéri sér
alfarið að hrossarækt hefur
hann haft meiri tíma til að
helga sig lystagyðjunni því
auk tónsmiða er hann góður
hagyrðingur. Þess má geta að
Jóhannes sér sjálfur um sölu á
diskinum ásamt hjálpar-
hellum sínum sem fyrr var
getið. ÖÞ:
tc
I
3
S
Pálmi Sighvatz skrifar
Fyrirspurn til stjórnar
Kaupfélags Skagfirðinga
M Landsmenn horfa
U skelfdir upp á hrun
Qármálakerfisins en
margir Skagfirðingar hafa
huggað sig við að staða
Kaupfélags Skagfirðinga
sé sterk og sé ekki hluti af
spilaborginni sem féll s.l.
haust.
Á netmiðlinum Eyjunni
er grein eftir Sigurjón M.
Egilssonsemgreinirfrámikilli
flækju eignarhaldsfélaga sem
tengjast öll með einum eða
öðrum hætti Kaupfélagi
Skagfirðinga. Félögin eiga
hvert í öðru og sömuleiðis
blandast inn í þau eignarhald
einkahlutafélag helstu
stjórnenda KS s.s. Þórólfs
Gíslasonar, Sigurjóns Rúnars
Rafnssonar og Jóns Eðvalds
Friðrikssonar.
Um er að ræða gríðarlega
stórar upphæðir sem tengjast
mjög umdeildum viðskiptum
með fjárglæfrafyrirtækið
Gift sem er eignarhaldsfélag
Samvinnutrygginga og
komst í fréttirnar fyrir að
hafa tapað tugum milljarða á
örfáum mánuðum.
Effir að umfjöllun Sigur-
jóns M. Egilssonar birtist hafa
vaknað áleitnar spurningar í
hugum Skagfirðinga s.s.:
1. Hvort að það samræmist
stöðu stjórnenda samvinnu-
félagsins KS að vera við-
skiptafélagar þess?
2. Nýttu framangreindir
stjórnendur Kaupfélags
Skagfirðinga aðstöðu sína
sem trúnaðarmenn sam-
vinnufélagsins til þess að
auðgast persónulega?
3. Hefur stjórn Kaupfélags
Skagfirðinga samþykkt
formlega sameiginlegt brask
stjórnenda KS og eignar-
haldsfélaga í eigu samvinnu-
félagsins?
4. Er raunveruleg hætta á
að orðspor Skagfirðinga beri
hnekki vegna umdeildra
viðskipta stjórnenda KS
5. Er stjórn KS sátt við þá
stöðu að hrókeringar með
eignarhald á Sparisjóði
Skagafjarðar sem hefur leitt
til þess að hann er kominn úr
höndum Skagfirðinga?
Pálmi Sighvatz
Samvinnumaður
Ferskur á netinu
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Guörún Ósk Steinbjörnsdóttir
skrifar úr Húnaþingi vestra
Aukakílóin, auka-
kílóin út um allt á...
Hver vaknar ekki upp við
vondan draum í janúar og
finnur hvernig vömbin er
farin að hristast taktfast
við gönguiagið? Nú held
ég að tími sé til kominn
að segja þessari ímynd
stríð á hendur og breyta
hugsunarhætti sínum
í stað þess að reyna
endalaust að losa sig við
aukakílóin sem eru ekki
endilega svo slæm.
Fyrir nokkru skundaði ég í
búð og erfinginn var með í
för. Þetta er svo sem ekki í
frásögurfærandi nema hvað
ormurinn á það til að segja
mjög svo óviðeigandi hluti,
einfaldlega þegar honum
dettur svo í hug, á þessum
aldri. Þegar við rúllum
okkur þama milli rekkanna
oghrúgum íkörfuna öllu
því sem hugurinn girnist,
heyrist allt í einu í kauða.
„Nei sjáðu mamma, vóóóó
feitur!" Ég leit upp og fann
hvemig hjartað tók aukaslag
og svitinn fór að spretta
fram eins og enginn væri
morgundagurinn. Þama
stóð ung kona, vissulega í
yfirþyngd, eins og ormurinn
benti svo pent á. Því sagði
ég það sem mér datt fyrst
íhug, og hvað haldið þið
að það hafi verið?: „Nei,
Teitur er ekki héri' (ég þekki
engann Teit, hvorki lífs né
liðinn). Ormurinn lét sér
þetta ekki gott heita og fór
að reyna að útskýra fyrir
löðursveittri móður sinni að
hann væri ekki að tala um
neinnTeit, heldur veslings
feitu konuna sem stóð
þama spölkom frá.
Eftir þetta fór ég mikið að
hugsa, hvernig má það vera
að bamungur sonur minn
sé komin með skoðun á því
hvað erfeittfólk. Vissulega
er mikið rætt um offitu
í samfélaginu og líka á
heimilinu. Ég fór að standa
mig að því að vera að
nagast út í þessa yndislegu
mör sem umlykur mig fyrir
framan orminn. Vissuiega
grípur hann eitthvað af
þessu, geturekki annað
verið. En batnandi fólki
er best að lifa, því síst af
ölluvil ég aðormurinn alist
upp við það að hann telji
sigfeitan, vegna þess að
hann hlustar á stórglæsilegu
móður sína nagast út í fáein
aukakíló sem gera hana
bara betri til að knúsa.
Ég fékk svo hugljómun
síðasta sunnudag.
Þannigvar að ég satmeð
systur minni upp í sófa,
báðar hundþreyttar og
grútmyglaðar. Ég lít á hana
og segi: „veistu mér líður
svo feitt í dag". Hún svarar
í sömu mynt. Við ræðum
þetta aðeins og vorum
sammála um að nú skildi
taka á því og gera þetta
litla sem þyrfti að gera til
að koma öllu í lag. I sömu
andrá kveiki ég á imbanum
og þar mætir mér Dr. nokkur
Phil. Þar er hann að ræða
við ungan mann sem er
hvorki meira né minna
en 400 kg. Þá fór ég að
skammast mín fyrir alvöru.
Guðrún Osk Skorar
á Kolbrúnu Stellu
Indriðadóttur verðandi
stórbónda é Lindabergl í
Vestur-Hún.