Feykir - 22.01.2009, Page 7
03/2009 Feykir 7
Norðvestlendingar ársins 2008
Bangsi tekurvið viðurkenningu sinni úrhendi Guðnýjar Jóhannesdóttir, blaðamanns.
Stella í Gröf, Heimir á Sauðadalsá, Jón Ágúst og Ásta ásamt Skúla Þórðarsyni.
losa þuríti húsnæðið. Verslunin
sjálf hafi verið orðin svo gömul
að hún hafi verið safni líkust.
-Auðvitað var eitthvað sem
þurfti að henda en pabbi hafði
aldrei hent neinu. Ég hirti svolítið
af lagernum og brot af því er á
verslunarminjasafninu, útskýrir
Bangsi.
Það hefur aldrei komið til
greina að þú tækir reksturinn
yfir? -Nei, ég held að ég hafi ekki
haft áhuga á því, svarar Bangsi
um hæl.
Rækjan kom meó
uppgang og bjartsýni
Bangsi er mikill áhugamaður um
gamla muni og nægjusamur er
hann talinn vera. Sigríður
safnsstjóri laumar því að mér að
dóttir hennar hafi gefið Bangsa
útvarp íyrir yfir 30 árum og
útvarpið eigi hann enn og það
hafi eitt þjónað hlutverki útvarps
á heimili hans allan þennan tíma.
Ég spyr Bangsa því hvað honum
finnist um lífsstíl unga fólksins.
-Ég veit ekki hvað ég á að segja.
Þetta eru svo breyttir tímar.
Fólkið er gott en ég er hræddur
um að það sé svolítið verið að
plata fólk gagnavart lánum og
þess háttar, fólk hefur beinlínis
verið hvatt til þess að skuldsetja
sig, svarar Bangsi.
En þú sjálfur, hefur þú tekið
lán? -Nei, aldrei. Ég þurfti einu
sinni á því að halda og þá var
mér neitað um það sem var svo
sem allt í lagi.
Aðspurður segir Bangsi að
mikið hafi breyst á Hvammstanga
í hans tíð. Rækjan hafi á sínum
tíma komið með mikinn
uppgang og bjartsýni en nú hafi
heldur dregið úr henni og
bjartsýninni með. -Hér hefur
mikið breyst og margt sem
maður er búin að fá sem áður var
ekki. Hér er gott að vera þó ég sé
auðvitað ekki viðræðuhæfur um
þetta, hef aldrei annars staðar
búið.
Hverjar telur þú hafa verið
mestu breytingarnar hér til
batnaðar í þinni tíð? -Það var
þegar við fengum höfnina,
hitaveituna og síðan þegar
rækjan fór að veiðast. Hún er
reyndar hætt að veiðast núna og
aðeins unnið með innflutta
rækju. En ég er ekki frá því að nú
sé að koma tími þar sem unga
fólkið okkar vill koma aftur heim
og það mun gera það fái það
atvinnu og skilyrði til þess að
snúa aftur.
Eitt af fjölmörgum gæluverk-
efnum Bangsa er uppbygging
myllu upp við Hvamm en þar
hefur hann í félagi við annan
byggt upp gamla myllu sem einu
sinni var. Mylluna láta þeir síðan
ganga á sumrin þegar vatn er í
ánni gestum og gangandi til
mikillar ánægju.
Ég spyr Bangsa svona að lokum
hvort hann sé ekki sannkallaður
þúsundþjalasmiður? -Það getur
verið. Ég veit það ekki, held samt
ekki, svarar hinn hógværi maður
ársins að lokum.
Stefán Vagn Stefánsson
Sprengju-
sérfræoingur
í Sérsveitinni
Páll Friðriksson, blaðamaður, afhendir Stefáni Vagni viðurkenningu sína.
Stefán Vagn
Stefánsson
yfirlögregluþjónn
á Sauðárkróki
deilir titlinum
Noróvestlendingur
ársins meö Birni
Siguróssyni „Bangsa"
á Hvammstanga.
Stefán var útnefndur fyrir það að
„þora að skjóta þá“ en það var
þegar hvítabirnir voru skotnir í
sumar í Skagafirði og stóð hann
þá í eldlínunni og tók ákvarðanir
í samvinnu við sérfræðinga og
ráðherra hvernig standa ætti að
málum.
Stefán Vagn er sonur Stefáns
Guðmundssonar fyrrverandi
alþingismanns og Sigríðar
Hrafnhildar Stefánsdóttur sem
nú er látin. Hann er í sambúð
með Hrafnhildi Guðjónsdóttur
og eiga þau þrjú börn, Söru Líf,
Atla Dag og Sigríði Hrafnhildi.
Árið 1997 hóf Stefán störf hjá
lögreglunni á Sauðárkróki í
sumarstarfi og segist hálfþart-
inn hafa verið plataður í það en
sjái ekki eftir þeirri ákvörðun.
Árið 1998 hóf hann nám í
Lögregluskólanum og útskrif-
aðist þaðan árið 2000. Fljótlega
sótti Stefán nýliðanámskeið í
Víkingasveitina sem var mikil
þrekraun, að sögn Stefáns.
-Við byrjuðum tólf en við
vorum sex sem útskrifuðust.
Árið 2004 fór ég í breskan
herskóla og lærði að meðhöndla
og aftengja hryðjuverkasprengj-
ur og starfaði eftir það sem
sprengjusérfræðingur hjá Sér-
sveitinni. Árið 2006 fór ég til
Noregs í grunnkúrs hjá norska
hernum og í framhaldi af því tók
ég þátt í friðargæslu í Afganistan
í sex mánuði. Þegar ég kom
heim frá Afganistan bauðst mér
að vinna í nýstofnaðri greining-
ardeild Ríkislögreglustjóra og
var þar þangað til mér bauðst að
koma á Krókinn og starfa sem
yfirlögregluþjónn í eitt ár.
Ráðningu þinni lýkur 1. apríl
næstkomandi, hvað tekur þá
við? -Mér þótti mjög gott að fá
tækifæri til að koma á Krókinn
aftur en hvað framtíðin ber í
skauti sér er erfitt að segja. Ég hef
mikinn áhuga á að starfa hér
áfram.
Hvaða viðbrögð hefur þú fengið
við nafnbótinni Norðvestlend-
ingur ársins? -Ég hef fengið
góð viðbrögð. Ég vil líta á þetta
sem viðurkenningu til allra
þeirra sem komu að aðgerðunum
við Þverárfjallsveg og við Hraun
þar sem ég tel að unnið hafi verið
mjög gott starf.