Feykir


Feykir - 12.02.2009, Blaðsíða 10

Feykir - 12.02.2009, Blaðsíða 10
lO Feykir 06/2009 Dagur leikskólans Leikskólabörn á Noröurlandi vestra héldu sl. föstudag Dag leikskólans hátíðlegan. Á Sauóárkróki hittust leikskólabörn í Skagafirói og héldu í skrúögöngu, á Blönduósi héldu Dörnin í heimsókn í ráöhús bæjarins aó skoöa ísbirnuna sem þar er og á Hvammstanga voru leikskólabörn meö opió hús í tilefni dagsins. Sauöárkrókur Á Sauðárkróki fóru börnin í skrúðgöngu frá Kirkjutorgi að Ráðhúsinu þar sem þau sungu fyrir starfsfólk Ráðhússins. Því næst var gengið fylktu liði á Flæðarnar þar sem mynduð var stór vinakeðja og leikskólalögin Við erum vinir og í leikskóla er gaman sungin saman. Þrátt fyrir brunagadd skemmtu viðstaddir sér konunglega og eftir útiveruna héldu allir heim á leikskóla í kakó og ristað brauð. Blönduós Á Blönduósi héldu elstu börnin á Barnabæ í heimsókn á bæjarskrifstofuna, heilsuðu upp á starfsfólkið og sungu af hjartans list. í leiðinni var ísbirnan sem þar dvelur að sjálfsögðu skoðuð vel og rækilega og fylgir sögunni að börnin hafi ekki verið hrædd enda birnan í glerbúri. Hvammstangi Á Hvammstanga voru börnin með opið hús og buðu öllum sem leið áttu um að koma og fylgjast með starfsemi leikskólans. Hefðbundnu starfi var haldið áfram og gátu foreldrar og aðrir gestir því fylgst með daglegu lífi leikskólabarnanna.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.