Feykir - 07.05.2009, Qupperneq 10
lO Feykir 18/2009
Menningarumfjöllun Feykis
Leikfélag Sauóárkróks
fagnar tímamótum
Þessum heiðurskonum Hönnu Pétursd., Önnu Pálu Guðmundsd. og G. Abelína Magnúsd. voru veittar
viðurkenningar í tilefni afmælisins, en þær léku í Nýársnóttinni fyrsta leikriti endurreists Leikfélags
Leikfélag Sauðárkróks sýnir nú leikverkið
Frá okkar fyrstu kynnum eftir Jón Ormar
Ormsson. Þar eru dregnar fram glettur úr
sögu leikfélagsins en það fagnar nú því að á
liðnu ári voru 120 ár liðin frá stofnun þess.
Sl. laugardag var sérstök hátíðarsýning á
verkinu og að henni lokinni fór fram
afmælishóf leikfélagsins.
Leikfélag Sauðárkróks var stofnað árið 1888 á
undan flestum leikfélögum á landinu. Leikfélag
Reykjavíkur var stofnað 1897, Leikfélag
Akureyrar 1907, Vestmannaeyja 1910 og
Þjóðleikhúsið ekki fýrr en 1950. Stjórn
leikfélagsins samdi því við Jón Ormar Ormsson
um að setja saman afmælissýningu sem
frumsýna átti á Degi íslenskrar tungu 16.
nóvember 2008. Þegar komið var fram á sumar
varð ljóst að Pétur Pan yrði meira en nóg verkefni
handa okkur um haustið svo afmælissýningunni
var frestað frarn í Sæluviku 2009. Verkið heitir
Frá okkar fyrstu kynnum, sett saman af söngvum
og brotum úr leikritum sem hafa verið sýnd hér
á Sauðárkróki undanfarin 120 ár og svo slæðist
dálítið nýmeti með. Hefur verkinu verið afar vel
tekið og uppselt á allar sýningar fram að þessu.
Það er Jón Ormar Ormsson sem samdi verkið og
er jafnframt leikstjóri auk Guðbrands Ægis
Ásbjörnssonar. Leikfélagið naut styrks frá
Menningarráði SSNV.
£ £ If ITlenningarráð
m m m 1 Norðurlands vestra
Verkefnisstjóri
þróunarverkefnis á sviöi nýtingar
silungsveiðivatna hjá Veiöimálastofnun
Veiðimálastofnun auglýsir eftir verkefnisstjóra með aðsetur á Sauðárkróki til að
stýra nýsköpunar og þróunarverkefni á sviði nýtingar silungsveiðivatna og ferða-
þjónustu henni tengdri. Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi á fram-
haldsstigi á fagsviðum Veiðimálastofnunar eöa öðru námi sem nýtist í verkefninu
og búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum og sjálfstæðum vinnubrögðum.
Æskilegt er aö umsækjendur hafi reynslu af verkefnastjórn og/eða þróunar- og
nýsköpunarstarfi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir ásamt
ferilskrám berist fyrir 15. mai til Veiðimálastofnunar Sæmundargötu 1, 550
Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Jónsson (sími 5806343) sviösstjóri
nýsköpunar- og þróunarsviös Veiðimálastofnunar.
Sigurveig formaOurLS og Sigurlaug gjaldkeri LS.
Þröstur Guðbjartsson leikstjóri og Jón Stefán Kristjánsson leikstjóri
Góð ráð fengin hjá Guðbrandi Ægi. Steini Hannesar, Bragi Har. og Elsa Jóns.
Frá Heilbrigðisstofnuninni
Sérfræðikomur
Edward Kiernan, kvensjúkdómalæknir verður með móttöku
á stofnuninni 14. og 15. maí.
Tímabókanir í síma 455 4022
ofnunin