Feykir - 03.09.2009, Blaðsíða 10
lO Feykir 32/2009
inn. Þegar inn í höllina er komið
þ.e.a.s á búningsklefagang, má
alltaf gera ráð fyrir að rekast á
öryggisvörð sem enn aftur
athugar hvort einhver sem ekki
ber spjald. Þegar hingað er
komið er komið á svæði þar
sem UEFA ræður ríkjum og allt
sem hér gerist, þarf að passa inn
í regluvirki UEFA. Regluvirki
UEFA er rammgert og höfum
við aðeins fengið að kenna á
því, en ég tek samt ffam að KSf
og staðarhaldarar hafa lagt sig
virkilega fram við að aðstoða
okkur. Sem dæmi þá er harð-
bannað að vera í nærbuxum
(þ.e.a.s. ef þær eru notaðar) sem
eru að öðrum lit en keppnis-
búningurinn og tékka dómarar
á þessu fyrir leik, auk þess sem
athugað er með skartgripi
o.s.ffv.
En nú er komið af því að
ræða aðeins um leikinn, en
leikurinn í dag var gegn
gestgjöfunum hérna í Austuríki.
Að sjálfsögðu var vel sótt á
völlinn og því miður voru fáir á
okkarbandi. Ég býst við því að
þegar þið lesið þetta, þá vitið
þið líka að við töpuðum naum-
lega 5-4, en með stóru Hvatar-
hjarta get ég sagt að sjaldan hef
ég verið stoltari Hvatarmaður.
Þvílíkur karakter sem býr í
drengjunum okkar, þvílík orka
og gleði. Ég get sagt ykkur
lesendur góðir að forráðamenn
UEFA á þessu móti hreinlega
dýrka drengina okkar og eftir
hvern leik hafa þeir komið til
okkar til þess að hæla okkar leik
og þrautseigju. Á meðan hin
liðin hafa 3 lið til skiptanna þá
erum við að keyra á 10
mönnum. Éggetsagtogskrifað
að sama hvernig leikurinn á
móti Armeníu-strákunum fer
þá förum við héðan með
kassann úti með stolt í hjarta og
bjarta minningu í brjósti. Og
hana nú.
Átti að hella okkur
fulla fyrir leik
Þið getið ekki trúað þvi sem
hérna er að gerast. Á meðan
flest lið hérna eru að koma fram
við andstæðinga af virðingu, þá
eru liðsmenn Armena á annari
línu. f gær, í og effir hófið hjá
UEFA, reyndu þeir hvað þeir
gátu til þess að bera í okkur
vínföng og settu síðan punktinn
yfir i-ið með því að bjóða mér
og Gissuri upp í herbergi þar
sem átti að hella í okkur
Armenískt Koníak.
Það hefði geta orðið slæmt
þar sem hann er leikmaður,
þjálfari og fyrirliði liðsins. Allan
daginn mátti finna fýrir vaxandi
Hvöt á EM
Ævintýraferð Hvatar
til Austurríkis í sumar
síðar en þar var á ferðinni
Brynjar Guðjónsson. Almennt
vorum við betri aðilinn í seinni
hálfleiknum og hefðum geta
unnið leikinn hefði smá heppni
gegnið til liðs við Hvöt,
stangarskot og alf mörg skot í
hliðarnetið er sönnun þess.
Þegar flautað var til leiksloka
vorum við eftir allt saman sáttir,
lögðum okkur fram en
töpuðum fyrir fínum strákum
frá fsrael sem brutu ekki einu
sinni á okkur í öllum leiknum.
Gott lið og enginn skömm að
tapa fyrir þeim.
Út stoltu Hvatarhjarta
sendi ég kveðju neim
Ef einhver hefði sagt mér í
síðust viku, ffá skipulagningu
mótsins, hefði ég eflaust ekki
trúað honum. En hér er hver
hreyfing okkar skipulögð að
einhverju eða öllu leyti. Dæmi:
Allir meðlimir og „viðhang-
endur“ fótboltaliðanna fengu
hálsspjöld sem við þurfum að
bera 24-7, eða allan daginn.
Þessi spjöld eru líka aðgangskort
að keppnissvæðunum og sam-
komum tengdum þeim.
Öryggisgæslan er svo
veigamikil að hellingur af
öryggisvörðum loka hreinlega
höllinni og t.d. þegar við
komum í rútunni til leiks, þá er
stoppað fýrir framan bláan
dregil sem liggur inn í höllina,
þar eru tveir fflefldir öryggis-
verðir og passa að einungis þeir
sem eru með hálsspjöld komist
LiðHvataríEMÍfutsal.
Hvatarmenn á Blönduósi urðu sl. vetur íslandsmeistarar í
futsal sem er innanhússfótbolti með samræmdum alþjóðlegum
reglum. Þessi árangur drengjanna gaf þeim kost á að taka þátt í
Evrópumóti í futsal sem fram fór í Austurríki 18. - 23. ágúst s.I.
Kári Kárason Hvatarmaður ritaði ferðasögu liðsins sem birtist
á Feyki.is en við höfum hér í styttri útgáfu.
Þaö fór um auman
Húnvetninginn
Jæja, þá er ætlunin að skrifa
stutta en innihaldsríka ferða-
sögu, af ferð meistaraflokks
Hvatar á Evrópumót UEFA í
Futsal. Til að gera langa sögu
stutta, þá gerðist það
markverðasta að hamborgar-
arnir á sportsbarnum á Kastrup
kosta 4.500 kr með vatni.
Morguninn 19. ágúst var
hreint út sagt æðislegur. Sólin
skein sem aldrei fýrr og við
blasti eitt það fallegasta
umhverfi sem undirritaður
hefur augu barið. Trjám vaxnar
brekkur á alla kanta og kyrrð
sem myndi gera alla dofna.
Annars beið stíf áætlun fyrir
allan daginn og hófst hann með
fundi með yfirvöldum UEFA.
Það verður að segjast eins og er
að það fór um auman
Húnvetninginn að standa fyrir
framan fjölda manns og kynna
sig og lið okkar, en með smá
gríni um smæð Blönduóss og
að hérna væru rúmt prósent af
heildaríbúafjölda heimahag-
ana, uppskar maður hlátur og
þar með voru allir vegir færir.
Fyrsti leikurinn var gegn
Asa Tel Aviv. Það verður að
segjast eins og er að smá stress
var í gangi því á fyrstu
mínútunni gátum við ekki neitt
og var því hægðarleikur fýrir
liðsmenn Asa að setja á okkur
mark. Vaknaði þá liðið og
náðum að skora mark stuttu
Hvatarmenn njóta útsýnis afsvölum hótelsins.
spennu þar sem ísraelamir
voru að vingast við okkur á
fullu og þjálfarinn jafnvel kom
að tali við mig til að gefa mér
hint um leikinn o.s.ffv. Á hinn
bóginn var það þannig að þegar
Armenarnir sáu að við vorum
að tala við ísraelana þá voru
þeir mættir til þess að vingast
við okkar og þannig mætti lengi
telja. Inníþessajöfnubættustu
síðan dómararnir sem voru
kammó við okkur en forðuðust
Armenana. Allaveganna þá var
það vitað fýrir leikinn að
Armenar þurftu að sigra okkur
stórt til að tryggja sig áfram.
Jæja, ræðum leikinn, en
hann byrjaði ekki vel strax í
búningsklefa, en Brynjar þurfti
að draga sig út úr liðinu vegna
meiðsla í baki, varamönnunum
fækkaði þá frá 5 niður í 4 og
það var slæmt. Frá stúkunni
mátti heyra að her manna á
bandi Armenana voru mættir
og á göngunum var augnaráð
Armenana þannig að einum
varð að orði „ bíddu við erum
við að fara út í heilagt stríð eða
fótboltaleik". Þegar inná völlin
var komið varð strax ljóst að
fáir ef nokkrir voru á okkar
bandi og einnig varð það ljóst
að við vorum ekki af fara að tala
neitt saman inná vellinum,
þvílíkur var hávaðinn frá
áhorfendurm Armenanna.
Armenarnir spiluðu þennan
leik af skynsemi stíluðu mikið
inn á það að fiska brot á okkur
fýrir afar litlar sakir. Þannigað
í restina vorum við að fá mörg
víti á okkur vegna „ brota“ sem
voru engan veginn að hjálpa til.
Frosti fékk snemma gult fýrir
að handleikaboltann utan
vítateigs. En til að ljúka þessu
með leikinn þá töpuðum við
7-0 og þar af voru mörkin úr
vítunum 4. En það er alltaf
hægt að finna ljós í myrkrinu
en Stefán skoraði sitt fyrsta
Evrópumark í dag, að vísu í
eigið mark en Evrópumark er
Evrópumark.
í kvöld ætlum við að gefa
okkar manni honum Nick,
harðfisk, opal nammi og opal
snafs.auk þess sem við af-
hendum honum hvatartreyju
þar sem við höfum allir skifað
nafn okkar auk persónulegrar
skilaboða til Nick. Vonandi
mun honum líka við veigarnar
og treyjuna.
Ég vona að þið lesendur hafi
haft gaman af ferðssögu okkar
og fengið innsýn í veru okkar á
Evrópumótinu í Futsa.
Með Hvatarkveðju,
KáriK