Feykir - 29.10.2009, Page 11
40/2009 Feykir 11
1 lambalœri
Allskonar laukar (rauðlauk,
blaðlauk, hvítanlauk, perlu-
Gott er að taka lærið út úr frysti
ca. 5 dögum fyrir notkun og láta
það þiðna í ísskáp. Síðustu tvo
EFTIRÉTTUR
Hitaeiningabomba
1 dósjarðarber
(sleppa safanum)
1 dós perur (sleppa safanum)
3- 4 bananar
200gr. rjómasúkkulaði
4- 5 kókosbollur
Brytjið banana og perur. Setjið í
eldfastmótásamtjarðarberjunum.
Brytjið súkkulaðið og stráið
yfir. Síðan eru kókosbollurnar
stappaðar og settar ofan á. Bakið
í ofni við 200° þangað til kakan
verður Ijósbrún. Borið ffam heitt
með þeyttum rjóma eða ís.
Verði ykkur að góðul
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Aóalbjörg og Ragnar kokka
Lambalæri og hitaeiningabomba
dagana á að taka það út, skera
niður lauka sem þú vilt nota og
setja í plastpoka og síðan lærið
þar ofan í. Loka fyrir pokann og
setja aftur í kæli, og taka hann
svo út nokkru áður en þið ætlið
að byija að elda það.
Svo í lokin á að taka lærið úr
pokanum og krydda það með því
kryddi sem þér þykir gott til að fá
gott bragð á skorpuna.
Að þessu sinni eru það Aðalbjörg Valdimarsdóttir og Ragnar
Heiðar Sigtryggsson f Bakkakoti í Refasveit sem kma með
uppskriftir vikunnar. Fyrst fáum við uppskrift að Ijúffengu
lambakjöti og endum málb'ðina með svaka freistandi
hitaeiningabombu.
Aðalbjörg og Ragnar skora á Ingunni Maríu Björnsdóttir og
Sighvat Steindórsson Hlíðarbraut 9 Blönduósi að koma með næstu
uppskriftir.
AÐALRÉTTUR
Lambalceri
lauk og venjulegan lauk)
Það krydd sem þér þykirgott
Þroskahjálp
Ánægðir íbúar við
Kleifartún
Ánægðir ibúar taka við iyklum og blómum.
í sfðustu viku voru
þjónustufbúðir f Kleifartúni á
Sauðárkróki afhentar nýjum
fbúum en þeir em
skjólstæðingar SSNV um
málefni fatlaðra.
Það voru ánægðir íbúar
sem tóku við lyklum að
íbúðum sínum við hátíðlega
athöfn 24. október sl. Eigandi
húsanna er Húsbyggingar-
sjóður Landssamtakanna
Þroskahjálpar en leigutaki er
SSNV málefni fatlaðra.
Sveitarfélagið gerir leigu-
samning við hvern og einn
íbúa sem sjálfur stendur
straum af öllum kostnaði af
eigin tekjum og húsaleigu-
bótum en sveitarfélagið annast
og veitir alla þá þjónustu sem
íbúarnir eiga rétt á.
Lögð er áhersla á að íbúar
ráði sjálfir sínum málurn og
búi við sambærileg lífskjör
eins og aðrir íbúar Skaga-
fjarðar.
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 509
Heilir og sælir lesendur góðir.
I tveimur þáttum nú í haust hef ég spurt
um höfund að vísunum; Hljóðnar raust og
blikar blað, og einnig; Enn er masað yfir
glasi. Hef ég nú fengið þær upplýsingar
ffá einum ágætum vísnavini, sem ég
þakka vel fyrir, að höfundur muni vera
Rögnvaldur Rögnvaldsson sem ættaður
var frá Lidu-Þverá í Miðfnði. Fluttist um
fertugt til Akureyrar og átti þar heima
til æviloka. Þá er til þess að taka, að
góður póstur hefur nú nýverið borist til
þáttarins. Er það Jón Gissurarson bóndi
á Víðimýrarseli sem er svo vinsamlegur
að senda mér margar góðar visur sem ég
hef reyndar einhvern tímann beðið hann
um að lofa mér að fá til birtingar. Hann
byrjar svo fallega.
Góðar senda vísur verð
vini sinnis glöðum.
Beríst þœr meðfyrstuferð
fram að Eiríksstöðum.
Um það leyti sem 400 þættir höfðu orðið
til, var tekið smá spjall við undirritaðan
sem birtist í Bændablaðinu. Eftir að
hafa lesið blaðið orti Jón þessar ágætu
hringhendur.
Kappans þjála kvœða raust
kyndir bál um vetur.
Áhugamálið efalaust
auðgar sálartetur.
Þáttinn hannar höndin hlý
hans það sannar iðju.
Föngin kannar ávallt í
annarra manna smiðju.
Til vísunnar yrkir Jón.
Vœngi hefur, vermirþjóð
vísan skarti búna.
Hún er lipur, Ijúf oggóð
lífiðgleður núna.
Að lokum þessi eftir Jón.
Oft í nœði yrkja vil
yljar kvœðavaka.
Lífið glœðir Ijós ogyl
lipurfœðist staka.
í síðasta þætti birti ég nokkrar vísur úr
ferð Iðunnar upp á Hveravelli í tilefni
af 50 ára afmæli félagsins. Skildum við
við ferðafólkið í Hreppum og þegar
komið var í Hruna, rifjuðust atburðir
sem mörgum eru kunnir. Jóhannes frá
Asparvík orti þessa.
Hér varforðum Hrunadans
háður myrkraveldi.
Þá var miklumfjöldafans
fagnað í vítiseldi.
Þáverandi klerkur staðarins sýndi kirlcj una
og var Þórhildur Sveinsdóttir frá Hóli svo
hrifm af honum að hún orti þessa.
Ber þeim lofer brúka ei last
betri er presta siður.
Ei mun þessi upphefjast
eða sökkva niður.
Áð var við Gullfoss, sumir fengu sér
hressingu en aðrir vitjuðu kamra. Kom
á kreik sú frétt að einn karlinn hefði farið
þar villur vegar. Orti þá Andrés Valberg.
Eftir leiða og langa bið
að líkna þörfumfínum.
Fór á kvennaklósettið
karl í öngum sínum.
Stuttu síðar kom sú frétt að kona ein
hefði lent á karlaklósetti. Urðu þá til fleiri
klósettvísur. Magnúsi Jónssyni frá Barði
fannst lítið til koma og orti þessa.
Nú á karlinn engin orð
yftr kvœðaflokkinn.
Hér eru skáld á bœði borð
og berjafótastokkinn.
Þegar ekið var frá Gullfossi ringdi enn
mildð. Vildi Ingþór Sigurbjörnsson ná
sambandi upp og orti.
Á efstalofti efþúgetur
einhverfundið hjálpartól.
Lokaðu fyrir lekann, Pétur,
láttu heldur sktna sól.
Ekki varð lyklavörður við bæn Ingþórs.
Þórhildur huggaði sig við fagrar sýnir í
þokunni.
Augað nýtur, hugur hlcer,
hjartans lýtur boðum.
Fjallastrýturfœrast nœr
falda hvítum voðum.
Jóhannes frá Asparvík hresstist við
vísuna og orti.
Okkar verður leiðin Ijúf
leyndu sárin gróa.
Þarna erfjall með þoku kúf
og þarna er lyng í móa.
Þegar komið var á Bláfellsháls var numið
staðar við vörðuna stóru. Var farið út í
rigninguna og tíndu ferðafélagar grjót í
hrúguna eins og alsiða var á þeim tíma.
Að því loknu orti Adolf þessa fallegu
hringhendu sem verður lokavísa þessa
þáttar.
Fjallahreimurfyllir sál
fógnuð heima vandar.
Heiðin geymir huldumál
hljóðir sveima andar.
Vcrið þar með
sœl að sinni.
Guðmumiur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduási
Sími 452 7154