Feykir - 03.12.2009, Side 2
2 Feykir 45/2009
íþróttahús á Hofsósi_
Vilja 2 milljónir til
undirbúmngs
Hofsbót óskar eftir þvf að fá
tvær milljónir á næsta ári til
undirbúnings byggingar
íþróttahúss á Hofsósi og er
horft á að það verði við hlið
sundlaugarinnar.
Hofsbót ses. hefur óskað
eftir því við Sveitarfélagið
Skagaíjörð að gert verði ráð
fyrir tveggja milljón króna
framlagi á íjárhagsáætlun
2010 til undirbúnings fram-
kvæmd á byggingu íþróttahúss
á Hofsósi. Einnig óskar stjórn
Hofsbótar ses. eftir áframhald-
andi viðræðum um málið
samkvæmt fyrri samþykktum
byggðarráðs Skagaíjarðar.
Meirihluti Byggðarráðs
samþykkti á fundi sínum að
vísa erindinu til Félags- og
tómstundanefndar og gerðar
fjárhagsáætlunar 2010.
Jafnframt er nefndinni falið að
afla frekari upplýsinga um
hvað liggi að baki umbeðinni
íjárhæð.
Meistaradeild Norðurlands
KS-Deildin enn á ný
Kaupfélag Skagfirðinga og
aðstandendur
Meistaradeildar Norðurlands
hafa ákveðið að halda áfram
samstarfi um KS deildina
árið 2010.
Undirbúningur er kominn á
fullt skrið og keppnisdagar hafa
verið ákveðnir. Úrtakan fyrir
laus sæti verður 27. Janúar en
keppniskvöldverðaeftirfarandi:
17. febr. 3. mars 17.mars og
7.apríl. Mikill hugur er í þeim
knöpum sem eiga fast sæti og
vitað er um marga sterka knapa
sem ætla sér í úrtöku.
Leiðari
Jólin koma
(efseríurnar eru í lagi)
Nú er aðventan byrjuð með sínum helgiblæ enda
stutt tiljóla. Jólaundirbúningur hefur teygt sig ansi
Ingtfram í tímann og mótti þefa qfjólunum strax i
upphafi nóvember. Fólk hefurfært sig í aukana með
jólaskreytingar ó liðnum órum og lýsa nújólaljósin
allan desember í mörgum gluggum og ó þakskeggjum
húsa. Þessi Ijós lýsa upp skammdegið og það birtir til í
sólartetrinu hjófólkiþó ekki sé ég að segja að skuggsýnt
séþar. Ég fór að hugleiða þetta þegarfarið var ó leit við
mig að athuga seríumar ó mínu heimili. Fæstarperurnar
loga ó þeim ótal seríum sem til eru og mótti heyra mikla
og djúpa stunu úr barka mínum er ég leit ó verkefnið
sem bíður mín. En Ijósin eru til að lýsa og gleðja svo ég
verð að fara í verkefnið með bros ó vör og með Ijós í
hjarta. Ég læddist í huganum til minna æskujóla en þó
var jólaskrautið tekið upp ó þorlúksmessu og aðeins tvær
seríur í gangi sem yfirleitt virkuðu þegar þær voru settar
í samband. Og gleðin var ósvikin þó ekki væru seríurnar
fleiri. Gleðilega aðventu.
Páll Friðriksson
blaðamaður Feykis
1 Óhád fréttablad á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum 1
Feykir
Útgefandi: Ritstjóri& ábyrgðamiadun Áskriftarverð:
Nýprent ehf. Guðný Jóhannesdóttir 275 krónur hvert tölublað
Borgarflöt 1 Sauðárkróki feykir@nyprent.is © 455 7176 með vsk.
Póstfang Feykis: Blaðamenn: Lausasöluverð:
Box 4,550 Sauðárkrókur Páll Friðriksson 325 krónur með vsk.
palli@nyprent.is © 8619842
Blaðstjórn: Óli Arnar Brynjarsson Áskrift og dreifing
Árni Gunnarsson, oli@nyprent.is Nýprent ehf.
Áskell Heiðar Ásgeirsson, Lausapenni: Sími 455 7171
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll Örn Þórarinsson. Umbrot og prentun:
Dagbjartsson. Prófarkalestur: KarlJónsson Nýprent ehf.
Blonduos
Enn byggist fráveitu-
kerfið upp
Blönduósbær hefur tekið í
notkun nýja dælustöð fyrir
fráveituna í Brautarhvammi
en stækkun á sumarhúsa-
hverfinu gerði það að
verkum að rotþrær sem
fyrir voru, önnuðu ekki
kerfinu.
Aðgerðin var talsvert
umfangsmikil en leggja þurfti
nýjar stofnlagnir fyrir
sumarhúsin og svo aftur að
leggja lögn frá grunnskólanum
aðÞjóðvegi 1. Vorusvofengnir
verktakar í að reka lögn í
gegnum þjóðveginn þannig að
ekki þyrfti að grafa hann í
sundur. Síðan liggur þrýstilögn
frá dælubrunni og í gegnum
þjóðveginn til að dæla inn á
fráveitukerflð. Með þessari
aðgerð fer öll fráveitan austan
Blöndu í gegnum hreinsistöð
fráveitunnar þar sem fram fer
svo kölluð einsþreps hreinsun.
Hreinsistöðin var tekin í
notkun árið 2003 og hefur
Blönduósbær með markviss-
um aðgerðum byggt upp
fráveitukerfið á liðnum árum.
Sauðárkrókshöfn
Nýtt bryggjuhús
Nýja bryggiuhúsiö við hlið þess gamla. Mynd: GSS
Fyrir skömmu var tekið í
notkun nýtt bryggjuhús á
Sauðárkrókshöfn. Húsið er
uppsteypt og frágengið af
K-Tak ehf. en rafmagnsvinna
var unnin af Tengli ehf.
Bryggjuhúsið hýsir aðal
rafmagnsinntak efri hluta
hafnarsvæðisins ásamt mælum
og rofum vegna endursölu á
rafmagni til skipa og báta.
Einnig er í húsinu búnaður
fýrir hafnarlýsingu. Ofan á því
er svo mastur mikið, með
tveimur lömpum sem lýsa upp
næsta nágrenni hússins.
Að sögn Gunnars S. Stein-
grímssonar yfirhafnarvarðar
var eldra húsið orðið mjög
lélegt, hékk nánast uppi á
steypustyrktarjárninu einu
saman. Einnig var rafbúnað-
urinn orðinn mjög svo
hrumur.
Blönduós
Aðalfundur Hollvina-
samtaka HSB1. des
Aðalfundur Hollvinasamtaka
Heilbrigðisstofnunarinnar á
Blönduósi var haldinn þann
1. des., en samtökin vom
stofnuð árið 2005. Þeirra
helsta markmið er að vinna
að framgangi stofnunarinnar
og starfsemi hennar.
Samtökin hafa safnað fyrir
tækjum og búnaði til HSB s.s.
tækjabúnaði fyrir röntgen-
myndir, þjálfunarbúnaði til
endurhæfmgardeildar og
tækjum vegna blóðþrýstings-
mælinga.
Sigursteinn Guðmundsson,
fyrrverandi yfirlæknir á HSB
sem verið hefur stjórnar-
formaður Hollvinasamtakanna
frá upphafi gaf ekki kost á sér
lengur sem formaður, en situr
áfram í stjórninni. Við
formennsku tekur Ásgerður
Pálsdóttir til næstu tveggja ára.
Aðrir í stjórn eru þau Jóhann
Guðmundsson, Jóna Fanney
Friðriksdóttir og Héðinn
Sigurðsson. Varamenn eru þeir
Erlendur Eysteinsson og
Guðmundur Finnbogason.
Húnaþing vestra
Tölvur og
farsímar
endurnýttir
Tíundu bekkingar
Grunnskóla Húnaþings
vestra standa fyrir
nýstárlegri Qáröflun með
þvf að safha gömlum
fartölvum og GSM símum
sem ekki eru lengur f
notkun og koma þeim í
endurvinnslu.
Þeir sem vilja losna við
gömlu tækin sín eru hvattir
til að koma þeim til skila til
krakkanna en ágóðinn
rennur í ferðasjóð bekkj-
arins.
Austur Húnavatnss.
Jólatón-
leikar Tón-
listarskóla
Tónlistarskóli Austur-
Húnvetninga heldur sína
árlegu jólatónleika á
næstu dögum. Fyrst
verða tónleikar á
Húnavöllum laugardaginn
4. desember kl. 15:00,
eftir helgi er komið að
tónleikum í Blönduós-
kirkju þriðjudaginn 8.
desember kl. 17:00.
Þvi næst verða tónleikar
í Hólaneskirkju á Skaga-
strönd miðvikudaginn 9.
desember kl. 17:00 og að
lokum verða tónleikar í
Blönduóskirkju hjá Söng-
deild skólans fimmtudag-
inn 10. desember kl. 20:30.
FNV______________
Prófin
byrjuð
í gærmorgun hófust
fyrstu prófin í FNV en
haustannarprófin standa
nú yfír allt fram til 15.
desember.
Nokkrir jólasveinar
heimsóttu FNV daginn
fýrir prófatörnina, 1. des. á
síðasta kennsludegi haust-
annar og færðu nemendum
og starfsfólki skólans
mandarínur að gjöf með
ósk um gleðileg jól. Eflaust
munu þessar góðu kveðjur
efla andann og hvetja
nemendur til dáða í undir-
búningi prófanna.