Feykir


Feykir - 03.12.2009, Qupperneq 2

Feykir - 03.12.2009, Qupperneq 2
2 Feykir 45/2009 íþróttahús á Hofsósi_ Vilja 2 milljónir til undirbúmngs Hofsbót óskar eftir þvf að fá tvær milljónir á næsta ári til undirbúnings byggingar íþróttahúss á Hofsósi og er horft á að það verði við hlið sundlaugarinnar. Hofsbót ses. hefur óskað eftir því við Sveitarfélagið Skagaíjörð að gert verði ráð fyrir tveggja milljón króna framlagi á íjárhagsáætlun 2010 til undirbúnings fram- kvæmd á byggingu íþróttahúss á Hofsósi. Einnig óskar stjórn Hofsbótar ses. eftir áframhald- andi viðræðum um málið samkvæmt fyrri samþykktum byggðarráðs Skagaíjarðar. Meirihluti Byggðarráðs samþykkti á fundi sínum að vísa erindinu til Félags- og tómstundanefndar og gerðar fjárhagsáætlunar 2010. Jafnframt er nefndinni falið að afla frekari upplýsinga um hvað liggi að baki umbeðinni íjárhæð. Meistaradeild Norðurlands KS-Deildin enn á ný Kaupfélag Skagfirðinga og aðstandendur Meistaradeildar Norðurlands hafa ákveðið að halda áfram samstarfi um KS deildina árið 2010. Undirbúningur er kominn á fullt skrið og keppnisdagar hafa verið ákveðnir. Úrtakan fyrir laus sæti verður 27. Janúar en keppniskvöldverðaeftirfarandi: 17. febr. 3. mars 17.mars og 7.apríl. Mikill hugur er í þeim knöpum sem eiga fast sæti og vitað er um marga sterka knapa sem ætla sér í úrtöku. Leiðari Jólin koma (efseríurnar eru í lagi) Nú er aðventan byrjuð með sínum helgiblæ enda stutt tiljóla. Jólaundirbúningur hefur teygt sig ansi Ingtfram í tímann og mótti þefa qfjólunum strax i upphafi nóvember. Fólk hefurfært sig í aukana með jólaskreytingar ó liðnum órum og lýsa nújólaljósin allan desember í mörgum gluggum og ó þakskeggjum húsa. Þessi Ijós lýsa upp skammdegið og það birtir til í sólartetrinu hjófólkiþó ekki sé ég að segja að skuggsýnt séþar. Ég fór að hugleiða þetta þegarfarið var ó leit við mig að athuga seríumar ó mínu heimili. Fæstarperurnar loga ó þeim ótal seríum sem til eru og mótti heyra mikla og djúpa stunu úr barka mínum er ég leit ó verkefnið sem bíður mín. En Ijósin eru til að lýsa og gleðja svo ég verð að fara í verkefnið með bros ó vör og með Ijós í hjarta. Ég læddist í huganum til minna æskujóla en þó var jólaskrautið tekið upp ó þorlúksmessu og aðeins tvær seríur í gangi sem yfirleitt virkuðu þegar þær voru settar í samband. Og gleðin var ósvikin þó ekki væru seríurnar fleiri. Gleðilega aðventu. Páll Friðriksson blaðamaður Feykis 1 Óhád fréttablad á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum 1 Feykir Útgefandi: Ritstjóri& ábyrgðamiadun Áskriftarverð: Nýprent ehf. Guðný Jóhannesdóttir 275 krónur hvert tölublað Borgarflöt 1 Sauðárkróki feykir@nyprent.is © 455 7176 með vsk. Póstfang Feykis: Blaðamenn: Lausasöluverð: Box 4,550 Sauðárkrókur Páll Friðriksson 325 krónur með vsk. palli@nyprent.is © 8619842 Blaðstjórn: Óli Arnar Brynjarsson Áskrift og dreifing Árni Gunnarsson, oli@nyprent.is Nýprent ehf. Áskell Heiðar Ásgeirsson, Lausapenni: Sími 455 7171 Herdís Sæmundardóttir, Ólafur Sigmarsson og Páll Örn Þórarinsson. Umbrot og prentun: Dagbjartsson. Prófarkalestur: KarlJónsson Nýprent ehf. Blonduos Enn byggist fráveitu- kerfið upp Blönduósbær hefur tekið í notkun nýja dælustöð fyrir fráveituna í Brautarhvammi en stækkun á sumarhúsa- hverfinu gerði það að verkum að rotþrær sem fyrir voru, önnuðu ekki kerfinu. Aðgerðin var talsvert umfangsmikil en leggja þurfti nýjar stofnlagnir fyrir sumarhúsin og svo aftur að leggja lögn frá grunnskólanum aðÞjóðvegi 1. Vorusvofengnir verktakar í að reka lögn í gegnum þjóðveginn þannig að ekki þyrfti að grafa hann í sundur. Síðan liggur þrýstilögn frá dælubrunni og í gegnum þjóðveginn til að dæla inn á fráveitukerflð. Með þessari aðgerð fer öll fráveitan austan Blöndu í gegnum hreinsistöð fráveitunnar þar sem fram fer svo kölluð einsþreps hreinsun. Hreinsistöðin var tekin í notkun árið 2003 og hefur Blönduósbær með markviss- um aðgerðum byggt upp fráveitukerfið á liðnum árum. Sauðárkrókshöfn Nýtt bryggjuhús Nýja bryggiuhúsiö við hlið þess gamla. Mynd: GSS Fyrir skömmu var tekið í notkun nýtt bryggjuhús á Sauðárkrókshöfn. Húsið er uppsteypt og frágengið af K-Tak ehf. en rafmagnsvinna var unnin af Tengli ehf. Bryggjuhúsið hýsir aðal rafmagnsinntak efri hluta hafnarsvæðisins ásamt mælum og rofum vegna endursölu á rafmagni til skipa og báta. Einnig er í húsinu búnaður fýrir hafnarlýsingu. Ofan á því er svo mastur mikið, með tveimur lömpum sem lýsa upp næsta nágrenni hússins. Að sögn Gunnars S. Stein- grímssonar yfirhafnarvarðar var eldra húsið orðið mjög lélegt, hékk nánast uppi á steypustyrktarjárninu einu saman. Einnig var rafbúnað- urinn orðinn mjög svo hrumur. Blönduós Aðalfundur Hollvina- samtaka HSB1. des Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi var haldinn þann 1. des., en samtökin vom stofnuð árið 2005. Þeirra helsta markmið er að vinna að framgangi stofnunarinnar og starfsemi hennar. Samtökin hafa safnað fyrir tækjum og búnaði til HSB s.s. tækjabúnaði fyrir röntgen- myndir, þjálfunarbúnaði til endurhæfmgardeildar og tækjum vegna blóðþrýstings- mælinga. Sigursteinn Guðmundsson, fyrrverandi yfirlæknir á HSB sem verið hefur stjórnar- formaður Hollvinasamtakanna frá upphafi gaf ekki kost á sér lengur sem formaður, en situr áfram í stjórninni. Við formennsku tekur Ásgerður Pálsdóttir til næstu tveggja ára. Aðrir í stjórn eru þau Jóhann Guðmundsson, Jóna Fanney Friðriksdóttir og Héðinn Sigurðsson. Varamenn eru þeir Erlendur Eysteinsson og Guðmundur Finnbogason. Húnaþing vestra Tölvur og farsímar endurnýttir Tíundu bekkingar Grunnskóla Húnaþings vestra standa fyrir nýstárlegri Qáröflun með þvf að safha gömlum fartölvum og GSM símum sem ekki eru lengur f notkun og koma þeim í endurvinnslu. Þeir sem vilja losna við gömlu tækin sín eru hvattir til að koma þeim til skila til krakkanna en ágóðinn rennur í ferðasjóð bekkj- arins. Austur Húnavatnss. Jólatón- leikar Tón- listarskóla Tónlistarskóli Austur- Húnvetninga heldur sína árlegu jólatónleika á næstu dögum. Fyrst verða tónleikar á Húnavöllum laugardaginn 4. desember kl. 15:00, eftir helgi er komið að tónleikum í Blönduós- kirkju þriðjudaginn 8. desember kl. 17:00. Þvi næst verða tónleikar í Hólaneskirkju á Skaga- strönd miðvikudaginn 9. desember kl. 17:00 og að lokum verða tónleikar í Blönduóskirkju hjá Söng- deild skólans fimmtudag- inn 10. desember kl. 20:30. FNV______________ Prófin byrjuð í gærmorgun hófust fyrstu prófin í FNV en haustannarprófin standa nú yfír allt fram til 15. desember. Nokkrir jólasveinar heimsóttu FNV daginn fýrir prófatörnina, 1. des. á síðasta kennsludegi haust- annar og færðu nemendum og starfsfólki skólans mandarínur að gjöf með ósk um gleðileg jól. Eflaust munu þessar góðu kveðjur efla andann og hvetja nemendur til dáða í undir- búningi prófanna.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.