Feykir - 03.12.2009, Blaðsíða 9
45/2009 Feykir 9
0 hópur Heilbrigóisstofnunarinnar á Sauóárkróki
skoraói skemmtilega á leióbeinendur sína
Lauflétt áskorun
Heilbrigðisstofnunin á
Sauðárkróki hefur síðustu vikur
haldið úti sárstöku prógrammi
fyrir fólk í yfirþyngd.
Prógrammið spannar
yfir 5 vikur þar sem farið er
yfir mataræði, hreyfmgu og
hópurinn aðstoðaður við að
breyta um lífsstíl. Eftir þessar
fimm vikur tekur síðan við 2
ára eftirfylgni. Nú þegar hafa
tveir hópar klárað fimm vikna
prógrammið með góðum
árangri.
í lok þessara fimm
vikna skoraði hópurinn á
sjúkraþjálfarana á stofnuninni
að fara upp tröppurnar frá
íþróttahúsi og upp að Nöfum
með 30 aukakíló utan á sér.
Það er skemmst frá þvi að segja
að sjúkraþjálfararnir urðu við
áskoruninni og það sem meira
er höfuð það upp tröppurnar
sem þó eru að verða það illa
farnar að þær eru nánast
orðnar hættulegar.
-Það er alveg synd hvað
þessar tröppur eru illa farnar
því við vitum að ferðamenn
sem dvelja á Hótel Áningu
nota þær mikið á sumrin.
Næsta áskorun okkar er því á
sveitarstjórnina þess efnis að
laga tröppurnar, segja fulltrúar
hópsins.
Undirbúningur hafinn - verið að hlaða hlassinu á.
Trappa 101 og enn bros.
Sigurinn unninn, á toppnum!
( MITT LIÐ )
Hallbjöm ásamt sonum sínum
Hlynir, Reyni Smára og Birki.
Líkt og margir þá
fyrirlít ég KR
Nafn: Hallbjörn Bjömsson.
Heimili: Brekkutúni 2,
Sauðárkróki.
Starf:: Vinn hjá Capacent Ráðgjöf
með starfsheitið rekstrarráðgjafi.
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
Ég tel mig tii Newcastle United
aðdáenda með mikiu stolti.
Ástæðan er líklega sú að þegar
ég byrjaði að fylgjast almennilega
með enska boltanum í kringum
1996-7 þá höfðaði til mín
þetta hálfgerða „sveita" lið úr
norðurhluta Englands með mikla
sögu, gott gengi, skemmblegan
bolta og klikkaða stuðningsmenn.
Ég verð samt að viðurkenna að
það tók nokkum b'ma að venjast
búningunum þar sem þeim svipar
óhemju til KR búninga, en líkt og
margir þá fyrirlít ég KR.
Reyndarsagði mérgamall KR-ingur
fyrir nokkm að þegar KR valdi sér
búning í fyrsta skipti (fyrir langa,
langa löngu), þá leituðu þeir eftir
búningum frá Englandi og fengu
þá Newcastle búninga en á þeim
tíma var Newcastle að berjast á
toppnum. Ekki veit ég hvort sagan
er rétt en ef svo þá eru KR-ingar
ótýndir þjófar ofan á allt annað.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar á
umræddu liði?
Auðvitað hefur maður lent í deilum
eins og gengur en alltaf á rólegu
nótunum þar sem ég er mjög
umburðariindur. Reyndar hefur
það verið svo undan farin ár að
maður hefur því miður orðið meira
var við vorkun frá félögunum þar
sem gengi míns félags á vellinum
hefur ekki verið með besta móti.
Það fer mun verr í mig heldur en
nokkrar deilur.
Hver er uppáhalds leikmaðurinn
fyrr og síðar?
Af Newcastle-mönnum þá það
Alan Sharer sem kemur fyrst
upp. Það er löng
hefð fyrir hetjudýrkun
á framherjum hjá
Newcastle og ég fer
ekki að bijóta hana.
Reyndar kemur annar
einnig upp í hugan og
það er Peter Beardsley
sem ég hélt mikið upp
á á mínum yngri ámm.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu?
Nei, því miður hefur ekki orðið af
því ennþá en þetta erspuming um
hvenær það verður, ekki hvort.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu?
Ekki er mikið um slíkt. Ég á eina
forláta treyju sem ég varð mér úti
um og ég flagga henni helst þegar
illa gengur til að sýna móralskan
stuðning, enda hef ég verið töluvert
í henni undanfarið.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi
við liðið?
Mjög illa. Ég á þrjá syni og tveir
eldri hafa frekar fýlgt fjöldanum
heldur en ráðum föður síns og
em harðir Man Utd aðdáendur.
Það hefur síðan verið hörð barátta
um þann yngsta sem er að verða
þriggja ára en þar virðist ég einnig
ætla að verða undir. Konan er
algjörlega hlutlaus og sér um
að stilla til friðar þegar heitt er í
kolunum.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag?
Allir eiga einhversstaðar skugga-
lega fortíð og verð ég að svara
þessu játandi. Það rekégeingöngu
til bemskubreka.
Uppáhalds málsháttur?
Hlustaðu hundrað sinnum,
hugsaðu þúsund sinnum, talaðu
einu sinni.
Spurning frá Dodda málara. -
Hvar er Newcastle?
Eftir að hafa farið í gegnum mjög
svo stormasamt b'mabil á síðasta
ári ekki síður utan vallar en innan
þá er verið að safna vopnum og
endurskipuleggja liðið. Það gengur
mjög vel og Newcastle mun verða
í baráttu um Evrópusæb á næsta
ári, ekki spuming.
Hvern myndir þú vilja sjá svara
þessum spurningum?
Magnús Thorlacius
Hvaða spurningu
viltu lauma að
viðkomandi?
Er ekki pottþétt að
Arsenal verður í
titilbaráttunni í vor?