Feykir - 17.12.2009, Page 2
2 Feykir 47/2009
Norðurland vestra________________
Ásbjöm ósáttur við niður-
skurðarhníf ríkisstjórnar
Asbjörn Ottarsson fyrsti
þingmaóur Nv- kjördæmis
gagnrýnir í aðsendri grein á
Feyki.is, nkisstjórnina fyrir
ósanngjarna beitingu
niðurskurðarhnífsins á
landsbyggðinni og spyr
eftir Jóni Bjarnasyni.
Ásbjörn segir að lands-
byggðin komi verst út úr
þessumniðurskurðaaðgerðum
ríkisstjórnarinnar og telur að
seint verði hægt að segja að
ríkisstjórnin sé allra lands-
manna. Tekur hann dæmi um
að á meðan verið er að draga
úr framlögum til heil-
brigðisstofnana á Patreksfirði,
Blönduósi og Sauðárkróki
aukast útgjöld aðalskrifstofu
heilbrigðisráðuneytis í
Reykjavík.
-Þessi svokallaða velferð
eru að sjálfsögðu öfugmæli.
Það er a.m.k. ekki velferð fyrir
alla, svo ekki sé dýpra í árinni
tekið, segir Ásbjörn
Leiðari
Fyrirmyndar vinnubrögð
Mikið varð ég glöð að lesa í Vikudegifyrr í vikunni að
Akureyringar hafa tekið höndum saman í sveitastjóm
það er minni og meirihlud og unnið saman að gerð
fjárhagsáætlunar. í samtali við minnihluta kemurfram
aðþað sé matþeirra sem þar sitji aðþegar illa áriþurfi
allir að leggjast á áramar og róa bátnum í takt að
takmarkinu. Sama hafa menn gert með góðum árangri á
Blönduósi.
Mikið vildi ég óska að þeir sem fara með völd á alþingi og
einsþeir sem þarfara ekki með völd í dag gæti sest niður,
lagt deilur til hliðar og unnið saman að markmiðinu
okkar allar, það er að rétta þjóðarskútima við og stefna
henni afturfram á við.
Mérfinnst blóðugt að núna þessum 14 mánuðum eftir
hmn séu menn enn að takast á um leiðir að takmarkinu
og lítið finnst mér hafa þokast í rétta átt. Hinu og
þessu er kastaðfram, eða öllu heldur lekið ífjölmiðla
úr öllum áttum og umræðan er mglandi. Einn segir
okkur stefiia þráðbeint íþjóðargjaldþrot á meðan sá
næsti segir stöðuna betri en margir héldu. Spekingar
tala eftirfyrirframpöntuðumflokkslínum og við hin
vitum ekki hvað við eigum að halda. Á endanum hættum
við að halda nokkurn skapaðan hlutog hellum okkur í
undirbúning jólanna, kreppan og rifrildið verðurjú þarna
enn eftir jólin.
Ég skora á alþingismenn hvar sem íflokkiþeir standa að
taka nú upp boðskap jólanna, leggja deilur til hliðar, snúa
bökum saman og vinna þetta saman.
Enn og aftur kalla ég eftir Þjóðstjóm nú eða bara
samstöðu
Guáný Jóhannesdóttir
ritstjóri Feykis
Óháð fréttablad á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Askell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri & ábyrgðarmaðun
Guðný Jóhannesdóttir
gudny@feykir.is © 455 7176
feykir@feykir.is
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
palli@feykir.is © 8619842
Óli Arnar Brynjarsson
oli@feykir.is
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Áskriftarverð:
275 krónurhvert tbl. með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing:
Nýprent ehf. Sími 455 7176
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Húnaþing vestra_________
Jólasveinar bardúsa
ýmislegt
Það er margt að gerast í
Bardúsu á Hvammstanga
nú fyrir jólin. Heyrst hefur
að uppi á lofti hafi
jólasveinar vinnustofu í
einu horninu.
Hægt verður að skoða
jólasveinahornið og gæða sér
á nokkrum piparkökum í
leiðinni. Þar kennir ýmissa
grasa, en sagt er að þar sé
hangikjötið hans Ketkróks,
bjúgun hans Bjúgnakrækis,
mjólkurbrúsar Skyrgáms, kerti
sem Kertasníkir hefur sankað
að sér og sjónauki Glugga-
gægis.
Sögustund var fyrir börnin
síðasta laugardag og þann 19.
desember verður önnur
sögustund og byrjar kl. 14:00.
Bardúsa fær þá til sín
sögumann sem les sögur fyrir
börnin í jólasveinahorninu.
Kvenfélagið Freyja verður svo
með hýasintusölu í Bardúsu
rétt fyrir jólin.
Þá er Verslunarminjasafn
Bardúsu, Grettistak og Ferða-
málafélagVestur-Húnvetninga
í samstarfsverkefni sem styrkt
er af Menningarráði Norður-
lands vestra. Á vegum þessa
verkefnis verða haldin
námskeið í fornu handverki á
næsta ári.
Kaupfélag Skagfirðinga
Vogabær og Mjólka
sameinast KS
Samkeppniseftirlitið telur að
samruni Kaupfélags
Skagfirðinga og Mjólku ehf.
sé andstæður markmióum
samkeppnislaga og geti haft
skaðleg áhrif á samkeppni.
Þrátt fyrir það ætlar eftirlrtið
ekki að aðhafast neitt.
Þetta kemur fram í áliti
Samkeppniseftirlitsins en þar á
bæ segjast menn ekki hafa
heimild til að stöðva
samrunaferli KS og Mjólku þar
sem það fellur ekki undir
gildissvið samkeppnislaga um
framleiðslu, verðlagningu og
sölu á búvörum. Samkeppnis-
eftirlitinu skortir því laga-
heimild til að grípa til íhlutunar
á grundvelli laganna. Samruni
afurðastöðva í mjólkuriðnaði
fellur undir landbúnaðarráðu-
neytið og þar segir í 71. gr.
búvörulaga að þrátt fyrir
ákvæði samkeppnislaga sé
afurðastöðvum í mjólkuriðn-
aði heimilt að sameinast, gera
með sér samkomulag um
verkaskiptingu milli mjólkur-
samlaga að því er varðar
framleiðslu einstakra mjólk-
urvara og hafa með sér annars
konar samstarf til þess að halda
niðri kostnaði við framleiðslu,
geymslu og dreifmgu mjólk-
urafurða. Það sem Sam-
keppniseftirlitið setur aðallega
fyrir sig í samrunanum er 7,5%
eignarhlutur KS í Mjólkur-
samsölunni ásamt því að
Þórólfur Gíslason kaupfél-
agsstjóri KS er varaformaður
stjórnar MS. Hlutur KS í
Mjólku er 87,5%.
-Samkeppniseftirlitið telur
ekki ástæðu til að aðhafast neitt
vegna samruna Kaupfélags
Skagfirðinga og Vogabæjar en
KS keypti 50% hlut í fýrirtæk-
inu fyrr á þessu ári.
Skagaströnd
Leitað að lagi fýrir
Höfðaskóla
í tilefni af 70 ára afmæli
Höfðaskóla á Skagaströnd
efnir skólinn til samkeppni
um skólasöng, bæði lag og
texta, og einnig merki
skólans.
Á heimasíðu skólans segir
að lagið þurfi að vera í
þægilegri söngtóntegund og
textinn að einhverjum hluta
að passa einkennisorðum
skólans en þau eru; styrkur,
vinsemd, virðing. Merki
skólans verður notað sem
táknmynd hans á opinberum
vettvangi.
Þátttakendur skila hug-
myndum sínum til skólastjóra
fyrir 1. febrúar 2010 en nánari
upplýsingar er að finna á
heimasíðu skólans.
Sparkvöllur Varmahlíð
Hyíiír
undir
verklok
Það hyllir undir það að
sparkvöllurinn í Varmahlíð
verði fullgerður en
Ungmennafélagið Smári
félagið sótti um styrk til
sveitarstjórnar til þess
verkefnis.
Byggðarráð samþykkti á
síðasta fundi sínum tillögu
sveitarstjóra að fjármagn til
að ljúka framkvæmdinni
yrði tekið af fram-
kvæmdaliðum sem gert er
ráð fyrir í fjárhagsáætlun
ársins 2009 og ekki verður
farið í á árinu. Áætluð
fjárhæð er kr. 3.000.000.
Norðurland vestra
194 án
atvinnu
194 einstaklingar eru nú
að einhverju eða öliu leyti
án atvinnu á Norðurlandi
vestra. Er þarna um að
ræða 114 karlmenn og
80 konur.
Eitthvað er um laus störf
hjá starfatorgi Vinnumála-
stofnunnar.
Hólar___________
Vilja
kaupa
íbúðir
sínar
Guðmundur B.
Eyþórsson, fjármálastjóri
Háskólans á Hólum hefur
sent Byggðarráði
Skagafjarðar erindi fyrir
hönd fbúa við Nátthaga á
Hólum þar sem falast er
eftir þvf hvort mögulegt
sé að fbúarnir geti fengið
að kaupa íbúðir þær sem
þeir búa í af
sveitarfélaginu.
Byggðarráð tók jákvætt í
erindið og hefur Guðmundi
Guðlaugssyni, sveitarstjóra,
verið falið að vinna að
framgangi málsins.