Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1919, Blaðsíða 5

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1919, Blaðsíða 5
For mál i. Avant-propos. Frumvarp það til dansk-íslenskra sambandslaga, sem nefndir af hálfu Daca og íslendinga, er fund áttu með sjer í Reykjavík sumarið 1918, höfðu orðið sammála um, var samkvæmt 21. gr. stjórnskipunarlaga 19. júní 1915 lagt undir atkvæði allra kosningar- bærra manna í landinu til samþyktar eða synjunar eftir að alþingi liafði fallist á það. Fór atkvæðagreiðsla þessi fram 19. október 1918 á líkan hátt sem kjördæmakosningar til alþingis. Þá var með aug- lýsingu stjórnarráðsins 10. sept. 1918 rýmkað nokkuð um skilyrðin fyrir atkvæðagreiðslu utanhjeraðsmanna og mönnum, sem eigi voru heimanfærir til kjörstaðar, leyft að kjósa brjeflega heima hjá sjer. Nokkru fyrir atkvæðagreiðsluna sendi hagstofan öllum yfir- kjörstjórnum á landinu eyðublöð undir skýrslur um úrslit atkvæða- greiðslunnar, sem þær áttu sjálfar að útfylla, og ennfremur eyðu- blöð undir skýrslur um sjálfa atkvæðagreiðsluna, sem sendast áttu áfram til undirkjörstjórna og iitfyllast af þeim. Sex mánuðum eftir atkvæðagreiðsluna hafði hagstofan loks fengið skýrslur þessar úr öllum hreppum í viðunanlegu formi og eru skýrslur þær, sem hjer birtast bygðar á þeim. Bráðabirgðayfirlit um hluttöku í atkvæðagreiðslunni og úrslit hennar hefur áður verið birt í Hagtíðindum 4. árg. nr. 3 (maí 1919). Hagstofa íslands i ágúst 1919. Porsteinn Porsteinsson.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.