Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1919, Blaðsíða 10

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1919, Blaðsíða 10
8 Atkvæðagreiðsla um sambandslög 191S 21 2. Hluttaka í atkvæðagreiðslunni. Parlicipation des électeurs. í atkvæðagreiðslunni um sambandslögin tóku alls þátt 13 653 kjósendur eða 43.s % af kjósendatölunni á öllu landinu. Hefur hluttaka i alþingiskosningum aldrei verið jafnlítil síðan um aldamót, að undanskildum landskosningunum 1916, er hluttakan var að eins 24.3 °/o. Við kjördæmakosningarnar sama ár var hluttakan aftur á móti 52.6 °/o að meðaltali í þeim kjördæmum, sem kosning fór fram í. En mest hefur kosningahluttakan verið 78.4 °/o árið 1911. Þegar litið er sjerstaklega á hluttöku karla og kvenna í at- kvæðagreiðslunni sjest það, að það stafar frá kvenfólkinu, hve hlut- takan er lítil. Af karlmönnum greiddu atkvæði 10 352 eða 59.3 °/o af öllum karlkjósendum, en af kvenfólkinu greiddu að eins 3 301 atkvæði eða 24.i °/o af öllum kvenkjósendum. Við kjördæmakosn- ingarnar 1916 var hluttaka bæði karla og kvenna nokkru meiri, karla 69.í °/o og kvenna 30.2 °/o, en við landskosningarnar sama ár miklu minni, karla 38.í °/o og kvenna 10.3 °/o. Á þrem siðustu dálkunum í töflu I (bls. 20—21) sjest, hve rnargir af kjósendum hvers alþingiskjördæmis hafa tekið þátt í atkvæða- greiðslunni. Er þar hver kjósandi talinn þar sem. hann hefur verið á kjörskrá, en ekki þar sem hann hefur greitt atkvæði, ef hann hefur greitt atkvæði utan kjördæmis síns. í 1. yfirlitstöflu (bls. 9) er sýnt með hlutfallstölum hvernig hluttakan í atkvæðagreiðslunni var í liverju kjördæmi. í þrem kjördæmum greiddu meir en 2/3 kjósenda atkvæði, Vestmannaeyjum (76.i °/°)> Austur-Skaftafellssýslu (71.o °/o) og Strandasýslu (69.9 °/o). Minst var hluttakan í atkvæða- greiðslunni í Vestur-Skaftafellssýslu (27.4 %), enda stóð þá Kötlu- gosið yfir um þær mundir, en í tveim öðrum kjördæmum náði hluttakan heldur ekki þriðjungi kjósenda, Eyjafjarðarsýslu (28.s °/o) og Akureyri (32.i °/0)- 1 Vestmannaeyjum var mest hluttaka í at- kvæðagreiðslunni bæði af körlum og konum (85.i °/o af körlum og 62.5 °/o af konum). Minst hluttaka karla var í Eyjafjarðarsýslu (43.o °/o), en kvenna í Vestur-Skaftafellssýslu (7.5 °/o). í eftirfarandi yfirliti er kjördæmunum skift i flokka eftir hluttökunni í atkvæða- greiðslunni. Tala kjördæma Karlar Konur Alls Yfir 90 °/o.... » » » 80—90 —........ 2 » » 70-80 — ....... 4 » 2

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.