Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1919, Side 15
21
Atkvæðagreiðsla um saml'andslög 1918
13
á móti hefur engin kona neytt atkvæðisrjettar síns í 8 hreppum auk
Grímseyjarhrepps. Þessir hreppar eru: Þverárhlíðarhreppur, Breiðu-
víkurhreppur, Múlahreppur, Fremri-Torfustaðahreppur, Fjallahreppur,
Svalbarðshreppur, Skeggjastaðahreppur og Gaulverjabæjarhreppur,
3. Atkvæðagreiðsla utansveitarmanna.
Volants hors de leur dislrict.
Samkvæmt alþingiskosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni,
sem ekki stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar
það með vottorði sýslumanns eða bæjarfógeta, að hann standi á
annari kjörskrá í kjördæminu og að hann hafi afsalað sjer þar
kosningarrjetti. En með auglýsingu stjórnarráðsins 10. sept. 1918
var svo fyrir mælt, að menn þyrftu ekki að sýna slíkt vottorð,
heldur væri kjörstjórninni skylt að spyrjast fyrir með þjónustusím-
skeyti, hvort þeir væru á kjörskrá þar sem þeir kveddust eiga
heima, og yrði atkvæðið að eins tekið til greina, ef svo reyndist.
Varð þetta ákvæði til þess, að ýmsir afhentu brjefleg atkvæði á
kjörstað utan hrepps síns, sem látin voru bíða þar til svar kom um,
hvort þeir stæðu á kjörskrá, en voru ekki tekin með sem greidd at-
kvæði, ef svarið kom ekki.
Við atkvæðagreiðsluna um sambandslögin greiddu alls 392
menn atkvæði utan þess hrepps, þar sem þeir stóðu á kjörskrá. Er
það 2 o °/o af öllum þeim, sem atkvæði greiddu. Hafa tiltölulega
langtum fleiri notað sjer þennan rjett nú heldur en við alþingis-
kosningarnar 1916, er að eins um 1 °/° af kjósendum greiddu at-
kvæði utan þess hrepps þar sem þeir stóðu á kjörskrá. Nokkuð
mun það stafa af rýmkun skilyrðanna fyrir atkvæðagreiðslunni
samkv. auglýsingu stjórnarráðsins 10. sept. 1918, sem sjest á því,
að rúmlega þriðjungur þessara atkvæða (135) voru brjefleg atkvæði.
Af þeim, sem greiddu atkvæði utanhrepps, var allur þorrinn karl-
menn, en konur að eins 46.
í töllu I (bls. 20—21) sjest hve margir af kjósendum í hverju
kjördæmi greiddu atkvæði utansveitar og í 3. yíirliti (bls. 14) er sýnt,
hve margir það voru í samanburði við alla kjósendur hvers kjör-
dæmis, sem atkvæði greiddu. í Skagafjarðarsýslu hefur verið mest
um, að menn greiddu atkvæði utansveitar. Af kjósendum þar, sem
atkvæði greiddu, hafa 8.i °/o greitt atkvæði utansveitar, þar af meiri
hlutinn menn víðsvegar úr sýslunni, sem greitl hafa alkvæði á
Sauðárkróki,