Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1919, Síða 18
lb Atkvæðngreiðsla um sambandslðg 1918 21
Fjarvera utansveitar:
atkvæöi send á kjörstað kjósanda........ 123
atkvæði afhent á kjörstað utansveitar . 135
------ 258
Elli ............................................. 130
Veikindi eða lasleiki ........................... 288
Sjúkrahjúkrun ..................................... 18
Heimilisástæður.................................. 105
Annríki ........................................... 60
Forföll............................................ 10
Óupplýst.......................................... 763
Samtals .. 1 632
í töflu III (bls. 38) er yfirlit yfir ástæðurnar til brjeflegu at-
kvæðagreiðslunnar í hverju kjördæmi eftir því sem það hefur getað
orðið upplýst.
Um þau 135 brjeflegu atkvæði, sem afhent voru af utansveitar-
mönnum á öðrum kjörstöðum, verður ekki upplýst, hvaðan þau
stafa, en 1 497 brjefleg atkvæði hafa verið send á kjörstað kjósanda
eða ll.o °/o af þeim atkvæðum, sem greidd hafa verið. Hvernig
þessi atkvæði skiftast á kjördæmin og hreppana sjest í töflu I (bls.
20—21) og töflu II (bls. 22—37). En í 1. yfirliti (bls. 9) er saman-
burður á því, hve mörg koma á hvert 100 atkvæða úr hverju kjör-
dæmi. Er það æðimisjafnt eftir kjördæmum, hve mikið menn hafa
notað sjer þann rjett að greiða atkvæði brjeflega. Strandasýsla er þar
langhæst á blaði. Hafa þar rúmlega 40 % öllum þeim, sem at-
kvæði greiddu, greitt atkvæði brjeflega. Næst er Mýrasýsla með 27 °/o
og 4 önnur kjördæmi með yfir 20 °/o, Dalasýsla (24 °/o). Austur-
Skaftafellssýsla (24 °/o), Vestur-ísafjarðarsýsla (22 %) og Vestmanna-
eyjar (21 %). Aftur á móti hefur verið lítið um brjefleg atkvæði í
sumum kjördæmum.
Þar sem að eins lítill hluti þeirra, sem greiddu atkvæði brjef-
lega við alþingiskosningarnar 1916 (vegna fjarveru utansveitar) voru
konur, þá hafa við þessa atkvæðagreiðslu langtum fleiri konur en
karlar greitt atkvæði brjeflega. Alls hafa 641 karlmenu greitt at-
kvæði brjeflega eða 6.2 % af öllum karlmönnum, sem atkvæði
greiddu, en 991 konur eða 30.o % af öllum konum, sem atkvæði
greiddu. í sumum kjördæmum hefur jafnvel allur þorrinn af konum
þeim, sem atkvæði greiddu, greitt atkvæði brjeflega, svo sem í
Strandasýslu 73 % og í Mýrasýslu 66 %, og í 3 öðrum kjördæm-
um meir en helmingurinn, í Norður-Þingeyjarsýslu (59 %). Dala-
sýslu (55 %) og Vestmannaeyjum (54 %).