Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1919, Qupperneq 20
18 Atkvæðagreiðsla um sambandslög 1918 21
skiftust. í einu kjördæmi landsins, Vestur-Skaftafellssýslu, voru öll
greidd atkvæði með sambandslögunum, en ekkert á móti. í öllum
öðrum kjördæmum voru einhver mótatkvæði, en í flestum mjög fá.
í tveim kjördæmum voru þau þó hjerumbil fjórði hluti allra greiddra
atkvæða, ísafjarðarkaupstað (25.3 °/o) og Norður-ísafjarðarsýslu (24.i
%) og i einu kjördæmi, Árnessýslu, hjerumbil fimti hluti greiddra
atkvæða (19.8 °/o). í þrem öðrum kjördæmum voru þau meir en Vio
af greiddum atkvæðum, í Vestur-Skaftafellssýslu (13.7 %), Norður-
Þingeyjarsýslu (12.7 °/°) og Suður-Þingeyjarsýslu (10.i %). í öllum
öðrum kjördæmum náðu þau ekki V10 greiddum atkvæðum.
Ógild hafa alls orðið 1.8 % af öllum greiddum atkvæðum og
er það með minna móti í samanburði við alþingiskosningar undan-
farið, enda var atkvæðagreiðsla þessi svo einföld sem framast er
unt. Annars er mjög mikill munur á því i kjördæmunum, hve mikið
hefur orðið ógilt af atkvæðum og er ekki ólíklegt, að stafi nokkuð
af þvi, að kjörstjórnirnar hafi verið misjafnlega strangar í dómum
sínum um gildi atkvæða. En svo hafa líka sumir gert atkvæði sín
ógild af ásettu ráði. Svo er t. d. um alla þá, sem skilað hafa auð-
um seðli, en vel má vera, að það hafi verið fleiri, en taldir eru
í töflu IV (bls. 39), því að í þeim kjördæmum, þar sem engir
auðir seðlar eru tilgreindir, geta þeir vel verið taldir í einu lagi með
ógildum seðlum. Mest hefur verið um ógilda seðla í Rangárvalla-
sýslu (11 », Vestur-ísafjarðarsýslu (8V2 %), ísafirði (8^/2 °/o), Suður-
Múlasýslu (5V2 %) og Strandasýslu (4V2 %)■ Annarsstaðar hafa þeir
ekki náð 2 °/°'